Skólablaðið - 01.09.1914, Side 15
SKOLABLAÐIÐ 143
20. Noröur-Múlasýsla: Skeggjaslaðahr. 80, Seyðisfjarðar-
hrepps fræðsluhérað 125, Vopnafjarðarhr. frh. 175, Jökuldalshr.
200, Jökulsárhlíðarhr. 125, Hröarslunga 100, Fellshr. 120, Fljóts-
dalshr, 150, Hjahastaðahr. 130, Loðrnundarfj. 45 (alls 1250 kr.)
21. Suður-Múlasýsla: Skriðdalshr. 70, Vallahr. 100, Eiða-
hreppur 140, Reyðarfjarðarhr. 375, Geithellahr. 110, Beruneshr.
120, Fáskrúðsfjarðarhr. 400, Norðfjarðarhr. 60, Helgustaðahr.
60, Stöðvarhr. 60 (alls 1495 kr.) Samtals kr. 20000,00.
Hugsanabókin.
Hefurðu nokkurntíma reynt að skrifa upp allar góðar
hugmyndir og hugsanir sem þú rekur þig á í bókum eða
sem þér mæta við vinnu þína eða í samræðum við aðra.
þessar ágætu hugmyndir birtast öllum, en þær gleymast fljótt
nema þær séu einhversstaðar skráðar.
Ágætar hugsanir leiftra snöggvast í huga manns við og
við frá tímaritum, bókum og heimsóknum annara kennara;
og margar þeirra eru ofmikils virði til að glatast. það er
mikil hjálp í því, að skrifa upp, og eiga til viðfangsefni
dagsins jafnóðum og þau koma fyrir.
þetta hugsanaregistur vekur ýmsar spurningar: Hvern-
ig á eg að vekja meiri áhuga á lestri, sögu og landafræði ?
Hvernig á ég að fara með nenianda sem svona er gerður?
Við munum reka okkur á, að mörgum slíkum spurningum
er ósvarað, en má þó öllum svara.
Litla hugsanabókin mun brátt reynast góð hjálp til þess.
(N. J. of E.)
Drykkjaivatn í barnaskólum.
Á mörgum heimilum er nú farið að gæta meira hreinlætis
um drykkjarvatn en áður gerðist. Þess er síst vanþörf. En í
barnaskólunum gleymist þetta of oft. Skólabörn drekka oft vatn,