Skólablaðið - 01.09.1914, Blaðsíða 16
144
SKÓLABLAÐIÐ
þau hitna oft, og þyrstir þá; þau sitja oft við kenslu í slæmu
loíti, svala sér þá á köldu vatni, ef þau eiga kost á því.
Það ætti nú ekki að þurfa að brýna það fyrir skólahaldar-
anum, hversu afar nauðsynlegt er að börnin drekki heilnæmt
vatn. Allir vita að það er nauðsyulegt, og þó er þ ss oft ekki
gætt. Skbl. heíur áður minst á þetta, og vill enn vekja athygli
kennara á að passa það, að neytsluvatnið sé heilnæmt og að
þrifalega sé gengið um það og drykkjaríiátin.
Skólahúsunum er sumstaðar valinn staður þar sem erfitt er
um gott vatn; verður þá að bera það að í hreinum og helst
Iokuðum ílátum, og geyma það í lokuðu íláti í skólanum. Börnin
hafa venjulega eitt drykkjarker til að drekka úr. Því er nauðsyn-
legt að búa svo um, að drykkjarkerið sé ávalt skolað milli þess
sem drukkið er úr því. Æskiiegt væri að það lægi þess í miili í renn-
andi vatni, en því er ekki alstaðar svo auðvelt að koma við,
En alstaðar verður því við komið að skola það rækilega áður
en það er notað. Það ætti kennarinn að heimta að börnin geri,
ríkt eftir að þau hlýði því
Vatnskvartil með krana /, og skolpfötu, í horninu á skóia-
ganginum; kvartilið með góðu loki. Þetta kostar lítið. Munið
og ganga eftir þessu, þegar skólarnir byrja í haust!
Auglýsing.
Kennarastarfið við farskólann í Árskógshreppsfræðuslu-
héraði er óveitt. Kenslutíminn er 6 mánuðir. þeir, sem
sækja viija um starfið tilkynni fræðslunefndinni í Árskógs-
hreppi það fyrir 20. sept. þ. á.
18. júlí 1914.
Fræðslunefndin.
Útgefandi: Jón Þórarinsson.
Prentsmiðja D. Östlunds.