Skólablaðið - 01.12.1914, Page 12

Skólablaðið - 01.12.1914, Page 12
188 SKÓLABLAÐIÐ Margt er enn ófullkomið við þessar mælingar Jóns skólastjóra, en hann hyggur að fullkomna þær, og stendur til í vetur að mæla öndun og krafta. Áhöld til þess fær hann fyrst í vetur; þau voru pöntuð af honum í tíma, en eru enn því miður ókomin. Allir skólar ættu að taka upp slíkar rannsóknir á lík- amsþroska barna. Mælistiku er ofur einfalt að setja á dyru- staf í skólastofunni. Vog þarf skólinn að eignast og eins öndunarmælí og kraftmæli; verð þeirra getur auðvitað verið misjafnt eftir gæðum og fegurð, en varla myndu öll áhöldin kosta yfir 50 kr. Nokkur áhrif hefur það haft á rannsókn þessa á Sauð- árkróki, að veikindi gengu þar þennan vetur, og veiktust flest skólabörnin meira eða minna. Spurningar og svör. 1. Ef sveitafélög reisa sér hús til barnafræðslu, og fylgja ekki þeim reglum, sem settar eru um stærðir húsanna, geia þau þá vænst landsjóðsstyrks? (NB. Barnafjöld- inn væri ekki eftir loftrými hússins). Fá einstakir menn einnig styrk til skólahússbyggingar, ef þeir vildu hjálpa með því fátæku sveitarfélagi, og mundi hann verða að tiltölu eins eða hærri eða lægri? 2. í fræðslulögunum stendur, að farskólakennarar eigi að hafa auk fœðis, húsnœðis og þjónustu að minsta kosti 6 kr. kaup fyrir hverja viku. En svo er dregið af þessu kaupi 44 kr. — fyrir tjós og hita — og kaup kennarans verður þá 100 kr. og alt frítt — fyrir 6 mánuðina. Er þetta löglegt? 3. Er eg skyldugur til að fara kanske dagleið í næsta kaupstað til að kaupa pappír og penna og blek og kenslubæKur handa barni mínu, þegar ekkert af þessu

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.