Skólablaðið - 01.12.1914, Blaðsíða 16
192
SKOLABLAÐIÐ
Takmark móðurmálskenslunnar í barnaskólunum er ekki.
það eitt, að börnin verði lesandi og skrifandi, heldur það,
og einkanlega það, að þau verði hugsandi. því má kenn-
arinn aldrei gleyma.
En hann má ekki heldur gleyma því, að kenna börn-
unum að tala. Hvernig talar ómentaður maður ? Og hvernig
talar mentaður maður ? Hvernig fer ómentaði maðurinn með
móðurmálið sitt — í riti og ræðu ? (N. J. E).
Ungmennaskólirm að Núpi
í Dýrafirði var settur laugardaginn fyrstan í vetri. Nemend-
ur 25, allir af Vestfjörðum, nema einn úr Eyjafirði.
Myndaður er vísir til bókasafns við skólann með því
að cand. Einar Gunnarsson í Reykjavík hefur gefið honum
um 50 bindi stærri og smærri af ýmsum bókum.
Sömuleiðis hafa fyrri nemendur skólans sent honum í
haust 70 kr. til bókakaupa, er bætist við það, er hann átti
áður til (sbr. síðustu skólaskýrslu) til þeirra nota.
Hr. Einar Gunnarsson hefur einnig gefið skólanum nokk-
ur eintök af smá-skriðdýrum og skordýrum frá Suður-Afríku,
^ þessa árs byrjun var Skólablaðið
^ O 'OvaOXO, $ent fræðslunefndum, sem
ekki voru áður kaupendur blaðsins, og þær beðnar að gera
ritstjóra sem fyrst aðvart, er ekki vildu gerast icaupendur
þess. Sumar þeirra hafa beðið að senda sér blaðið ekki
áfram, venjulega af því, að einhver nefndarmanna hefur þá
haldið það áður. En þær nefndir, sem ekki hafa sent blaðið
til baka, eða beðist undan að það væri sent, fyrir lokþessa
árs, verða skoðaðar sem kaupendur áfram og blaðið sent
þeim einnig næsta ár.
Allir kaupendur gera blaðinu greiða með því að borga
þennan árgang og eldri skuldir sem fyrst.
Útgefandi: Jón Pórarinsson. — Prentsmiðja Sveins Oddssonar