Skólablaðið - 01.08.1920, Blaðsíða 1

Skólablaðið - 01.08.1920, Blaðsíða 1
SKÓLABLAÐIÐ ÚTGEFANDI: HELGI HJÖRVAR XII. ÁR. ÁGÖST 15)20. 8. BLAÐ, t Pálmi yfirkennari Pálsson fæddist að Tjörnum, fremsta bæ í Eyjafiröi aö austanverðu, 21. nóvember 1859. Foreldrar hans voru Páll Steinsson og kona hans María Jónsdóttir, mestu merkis hjón. Bjó faöir Pálma allan búskap sinn a'ð Tjörnum við bestu efni, enda var hann mesti búhöldur. Uröu Tjarnir fyrirmyndar heimili í höndum foreldra Pálma. Páll ljet plægja móa einn vi'S túnið og breytti honum í tún; ramgerðan túngarS bygði hann um túnið. Voru bæöi þessi mannvirki næsta fátíö i Eyjafiröi um þær mundir. Hús öll bygði hann á jörðinni, traust og hagan- leg, og stóð hann sjálfur fyrir smíðinni, þvi aö hann var smiður góöur og manna verkhagastur. Fór mikið orð af mannvirkj- um og híbýlaprýöi að Tjörnum, og gerðu margir, utan úr sveitinni, sjer ferð þangað um helgar á sumrum til aö skoöa sig þar um og njóta gestrisni húsbændanna. Viö þennan heimilisbrag ólst Pálmi Pálsson upp, og mun í fyrstu hafa verið tilætlunin, að hann yrði bóndi og tæki við búi að Tjörnum, ef svo vildi ráðast, enda var það þá ótítt í Eyjafirði, eins og reyndar víðar, að bændur settu sonu sína til bóknáms. Þó atvikaðist svo, að hann var til náms settur; ljet honum námið vel, því að gáfur hans vo'ru drjúgar og farsælar. Sparði faðir hans ekkert til þess hann gæti stundaö námið tálmanalaust, innan lands og utan; þó hafði hann orð á þvi, að í raun rjettri hefði það verið skaði, að Pálmi- sinn hefði ekki orðið bóndi og smiður, þvi að til þess hefði hann verið svo vel fallinn. Pálmi Pálsson útskrifaðist úr latinuskólanum vorið 1880,

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.