Sovétvinurinn - 01.09.1934, Blaðsíða 10

Sovétvinurinn - 01.09.1934, Blaðsíða 10
[SovétvinurinnJ Karlmaims-vetrarfrakkar sérstaklega fallegir, nýkomnir. Marteinn Einar§§on & Co. Hressingar- sk álinii Austurstræti 20 Reykjavík Köku- og sælgætisbúð, veitingahús. Heitur matur daglega millikl.12—2 og 7—9 Smurt brauð í miklu úr- vali. — Odýrasti og bezti veitingastaður borg- arinnar. Kaupfélag ISeykj a v i k u r selur meðal annars: Matvörur niargskonar, Ný- lenduvörur, Krydd, allskon- ar, Niðursoðnir ávextir, App- elsínur, Yínber, Sælgæti, Rit- föng, Bréfsefni, Ilmvötn, Hárvötn, Hreinlætisvörur, Snyrtivörur,Raktæki,Sænsku rafmagnsperurnar Luma. Verið samvinnufólk. Eflið samvinnuverzlunina. Verzlið við: Kaupfélag Reykjavíkur. Bankastra'ti 2. Sími 1245 (3 línur) S end inefnd inni frestað. Sovétvinafélaginu hefir borizt bréf frá sambandsstjórn Sovétvinafélaganna, þar sem því er tjáð, að ekki geti orðið af för sendi- nefndar héðan á þessu hausti. Það er á- kveðin tala verkamanna, er Sovétríkin Itjóða til sín í bvert skipti. Þeim löndum fjölgar stöðugt, þar sein Sovétvinafélög eru stofnuð, og þar með tölu sendinefndanna. Aðsóknin hefir nó orðið svo mikil, að full- trúar frá okkur komast ekki að, og að und- anförnu höfum við fengið tiltölulega flesta fulltrúa. I vor fer sendinefnd frá okkur. Sovétvinafélagið vinnur áfram að því að fá sérstaka hændanefnd og sérstaka nefnd sjómanna. I vornefndinni geta engu að síð- ur farið bændur og sjómenn. Sovétvinafélag- inu þykir leitt, að ekki skyldi geta orðið af för haustnefndarinnar, því áhuginn, sér- staklega meðal hænda, hefir aldrei verið jafn mikill. Söfnunin var víða, einkum á Austfjörðum, komin allvel á veg. Sovétvina- félagið biður nú alla fulltrúa sína að kalla inn söfnunarlista og senda innsafnað fé til félagsins hið allra fyrsta. Féð verður geymt til næstu sendinefndar. Austfirðingar t. d., er safnað hafa fyrir manni, fá einn fulltrúa sendan í vor, ef þeir æskja þess. LEIKSÝNING mikil var haldin í Moskva fyrir skömmu. Mættir voru frá íslandi Lárus Ingólfsson, leiktjaldamálari, Sigurður ísólfs- son og Bjarni Guðmundsson, blaðamaður. Allir láta þeir hið bezta af sýningunni. Lár- us hefir flutt erindi um hana í Sovétvina- félaginu. LEIÐRÉTTING: í greininni »Stalinskurð- urinn'* bls. 9 á að standa Andersen-Nexö í stað (A.N.) og undir Á. B. inn af alþjóðamerkjum þeim, sem hvert Sovétvina- féla^ hefir til sölu. Hinar ýmsu deildir hafa þegar lýst sig samþykk- ar því, að októbermánuður verði sérstaklega not- aður til innheimtu á hinum aJþjóðlegu gjöldum ársins 1934. Deildirnar liafa þegar fengið merki þau, sem gefin hafa verið út í þessu skyni. Við hvetjum alla meðlimi Sovétvinafélaganna til að aðstoða okkur í starfinu með þeim hætti, sem hér hefir verið minnzt á. Það, sem farið er fram á að hver og einn leggi af mörkum, er svo lítið, að sérhver vinur Sovétríkjanna getur séð af því án þess að taka það mjög nærri sér. Með beztu kveðjum. Miðstjórn Alþjóðasambands Sovétvina. Fernand Grenier (Frakkl.). E. H. Brown (Engl.). Fernand Jack (Belgíu). Wilhelm Mehring (Þýzkak). Gerard Vanter (Hollandi), ritari. Tungumálanámskeið. Sovétvinafélagið hefir nú stofnað til námskeiða í þýzku og ensku. Kennarar eru Björn Franzson og Gísli Ásmundsson. Kennslutími er 2 stundir á viku í hverri deild, og stendur námskeiðið yfir í 5 mán- uði. Kennslugjald fyrir allan tímann er 25 krónur. Þátttakendur eru orðnir allmargir, en þó komast nokkrir að enn. Upplýsingar á skrifstofu Sovétvina- félagsins, Lækjargötu 6. Eftir Kristinn Andrésson er nýlega komin út bók: *Frá Reykjavík til Odessa*, um ferð síðustu sendinefndar til Sovét- ríkjanna. Þórbergur Þórðarson, rithöfundur, liefir dvalið um tíma í Sovétríkj- unum. Hann mætti á rithöfundaþinginu mikla í Moskva, sem haldið var fyrir skömmu. Hann var eini Islendingurinn, sem sat þingið. 10

x

Sovétvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.