Sovétvinurinn - 01.01.1937, Blaðsíða 2

Sovétvinurinn - 01.01.1937, Blaðsíða 2
soííCöoOíKiíitiooíJOíiíí; [Sovétríkin 20 ára] Réttarfar og afbrot í Sovétríkjunum. Eftir Þorvald Þórarinsson lögfræöing. i. Viö minnumst þessa dagana 20 ára afmælis bylt- ingarinnar í Rússlandi. Þessi bylting var skipulögð samtök verkamanna, bænda, hermanna og menntamanna í borgum og sveitum um að kollvarpa auðvaldsskipulaginu og stofnsetja sitt eigið ríkisvald, alræði öreiganna. Hlutverk þess var að brjóta á bak aftur andspyrnu afturhaldsaflanna, vernda Iiið unga ríki fyrir ytra og innra tjóni, og leggja grundvöllinn að uppbygg- ingu liins sósialistiska þjóðskipulags. Það lilaut vitanlega að verða fyrsta verk liinn- ar nýju stjórnar, að brjóta til grunna alla rikisvél auðmanna- og arðránsstéttanna, sem samkv. eðli sínu og tilgangi var frá öndverðu og hlaut að vera fjandsamleg hagsmunum hinnar vinnandi alþýðu. Einn liðurinn i þessu var tilskipun stjórnarinn- ar 24. nóv. 1917, en samkv. henni voru afnumdir allir dómstólar liins gamla skipulags, liverju nafni sem nefndust. Öllum dómurum og dómgæzluem- bættismönnum var vikið úr embættum, en i staðinn voru stofnsettar dómnefndir alþýðu, sem kosnar voru beinum kosningum á breiðum lýðræðisgrund- velli. Lög hins gamla ríkis voru þó enn í gildi formlega, en með þeirri miklu takmörkun, að á- kvæði þeirra urðu jafnan að víkja, þar sem þau brutu í bág við samvizku dómaranna og réttarmeð- vitund alþýðunnar. I livert sinn, sem vikið var frá bókstaf laganna, var skylt að gera þess glöggva grein í forsendum dóma. Á þennan Jiátt var þegar í upphafi lagður grund- völlurinn að víðtækum og raunhæfum breytingum á réttarfari og dómskipun landsins. Sú leið var ekki farin, sem sósíaldemókratar Austurríkis og Sovétríkin 20 ára fi/r Fylgirit Sovétvinarins. Útgefandi: SOVÉTVINAFÉLAG ÍSLANDS g Ábyrgðarmaður: Kristinn E. Andrésson. Félagsprentsmiðjan g Reykjavík 1937. R iíitiíiíiíltitititiíltititHitititititiíKititKititititttitKitititiíiíititittíit Þýzkalands fóru, að láta hina sömu dómstóla sitja áfram, með sömu dómurum. 1 þeim löndum var gefinn út mesti sægur af nýjum lögum, en þau urðu í höndum liinna gömlu dómara keisarastjórn- anna aðeins dauður bókstafur. Dómvenjur og rétt- arvarzla hélzt i þessum löndum hin sama og ver- ið liafði fyrir byltinguna, og allir þekkja nú sorgar- sögu þessara tveggja ríkja. Fullkomin nýtízku löggjöf um öll svið þjóðlífs og sambúðar manna, hefir nú fyrir löngu lej'st hina gömlu af hólmi í Sovétlýðveldunum. En um dómskipun hefir þeirri stefnu verið fylgt, sem mörkuð var í upphafi. Allir dómstólar eru skipaðir dómnefndum, og er allt gert til þess að tryggja sem víðtækasta þátt- töku almennings í dómstörfum. Hinir almennu dómstólar í sveitum, bæjiun og stóriðjufyrirtækj- um eru skipaðir 4 dómurum. Forsetinn er valinn af viðkomandi Jjæjar- eða sveitarstjórn. Hann skal liafa nokkra lagaþekkingu og reynslu í dómstörf- um, en þarf ekki að vera lögfræðingur. Meðdóm- endurnir eru kosnir almennum kosningum meðal íbúanna, og taka þeir aðeins þátt í meðferð eins máls í senn. Yfirdómarnir, lands- eða fylkisrétlir, eru skip- aðir þrem föstum, löglærðum dómurum, en auk þeirra eru tólf meðdómendur, þegar þeir fjalla um afbrotamál. Þessir 12 dómarar eru valdir með jöfnum kosningarétti meðal almennings, en ekki skipaðir af sérstökum nefndum, eins og tiðkast víða á Vesturlöndum. Auk þess eru jafnan í af- brotamálum skipaðir sækjandi og verjandi, og eri þeir venjulega valdir úr hópi lögfræðinga. I bverju lýðveldi er hæstiréttur, skipaður full- trúum, Sem valdir eru af liéraðs- og fylkisdómstól- um þess lýðveldis og á hann að gæta samræmis í dómstarfi öllu innan lýðveldisins. Loks er hæstiréttur allra Sambandslýðveldanna, sem samanstendur af forsetum hæstarétta hinna ýmsu lýðvelda og einum fulltrúa frá æðsta fram- kvæmdaráði Sovétlýðveldanna. Hann tryggir sam- ræmið i dómgæzlunni innan hinna ýmsu lýðvelda. Auk þess fer hann með mál, er rísa kynni út af ágreiningi milli ríkja, og mál gegn æðstu embættis- mönnum Sovétríkjanna. Hann hefir og vald til þess, að skipa sérstakar dómnefndir í stórmálum, er beinlínis varða hagsmuni þjóðarheildarinnar. Um áfrýjun máls til æðri réttar gilda líkar regl- ur og hér á landi. Frh. á bls. 19. Myndin á forsíðunni er af sýningarhöll Sovétríkjanna á heinissýningunni í París í sumar. 2

x

Sovétvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.