Sovétvinurinn - 01.01.1937, Blaðsíða 9

Sovétvinurinn - 01.01.1937, Blaðsíða 9
[Sovétríkin 20 ára] Fyrstu kosningarnap fara nú fram eftir hinni nýju stjórnarskrá Sovétríkjanna. Nú um það leyti, sem Sovétríkin liafa staðið i 20 ár, eru að fara þar fram kosningar til Æðsta- ráðs Sovétríkjanna. Þessar kosningar til Æðsta-ráðsins fara í fyrsta sinn fram á grundvelli þeirrar nýju stjórnarskrár, sem samþykkt var og gefin út 5. des. í fyrra. — Stjórnarskrárinnar, sem ekki aðeins tryggir sovét- borgaranum jafnan, beinan og leynilegan kosning- arrétt, heldur einnig rétt til vinnu, rétt til hvíldar, rétt til menntunar o. s. frv. I Sovétríkjunum eru kosningar undirbúnar á nokkuð annan hátt en við eigum að venjast í okk- ar borgaralegu lýðræðislöndum. Þar eru það fjölda- félög fólksins, sem hjóða fram fulltrúaefnin, verka- lýðsfélög, samvinnufélög, æskulýðsfélög, menning- arfélög og deildir kommúnistaflokksins. Og áður en ákveðið er, livort maðurinn skuli vera i kjöri eða ekki, verður hann að gangast undir alvarlegt komið á um allan lieim og singirnin og „hin frjálsa samkeppni" eru liættar að vera tálbeita fyrir mann- lega skynsemi. Eins og ráða má af þessum tölum, stendur korn- framleiðsla Sovétríkjanna með miklum blóma. Árið 1935 voru framleidd alls 5 milljarðar pud (16kg.) af korni. Það ár var lialdin ráðstefna samyrkjubænda — og komst Stalin þannig að orði í ræðu, sem hann hélt á ráðstefnunni, að framleiðsla þess árs mætti kallast viðunanleg. Hún nægði sæmilega fyrir þjóð- arþörfunum. En til þess að vera öruggur um fram- tíðina þyrfti kornframleiðslan að aukast upp í 7 —8 milljarða pud á ári. Og þetta hefir tekizt strax í ár. Kornframleiðslan verður, eftir því sem nýj- ustu fregnir herma, yfir 7 milljarðar pud! Og enn er eitt ótalið: Bændur Rússlands, sem áður fyrr liöfðu orð á sér fyrir fáfræði og andlegt volæði, taka núna virkan þátt í og leggja sinn skerf menningarlífi landsins. Það sannast á rússnesku bændunum, ekki síður en verkalýðnum í iðnver- unum, að hinn staðgóði grundvöllur að almennri menning er velmegun og frelsi fólksins. Rússnesku bændurnir iðrast ekki cftir að hafa tekið þátt i bvlt- ingunni, því að reynslan hefir sannað þeim svo áþreifanlega, að ]>að var sigur byltingarinnar, sem gaf þeim hina voldugu möguleika lil lífsins. H. Þ. og nákvæmt próf kjósendanna. Svo þegar fólkið hefir ákveðið framhjóðendur sina, þá eru fram- boðslistarnir lagðir fram, 30 dögum áður en kosn- ingarnar endanlega eiga sér stað. Eftir að frambjóðandinn hefir verið tekinn inn á framboðsiistann, hefir svo það félag, sem hefir stillt honum upp, eða hvaða félag sem er og liver einstaklingur fullan rétt til að agitera fyrir lion- um, og fullkonma möguleika til þess. Öll tæki til slikrar agitationar, sem eru sameiginleg eign fólks- ins, eins og fundarhús, hlöð, prentsmiðjur og ann- að slikt, eru til ótakmarkaðra afnota fyrir kjós- endurna i því skyni. Og kosningarnar i Sovétríkjunum eru frá sjón- armiði kjósandans ekki aðeins það, að skila at- kvæðisseðli, þar sem krossað sé við eitt eða fleiri nöfn. Að kjósa í Sovétríkjunum er raunverulega að taka sjálfur [játt í stjórn ríkisins. I Sovétríkjunum er það ekki þannig, að þegar maður liefir verið kosinn til ákveðins timabils, þá geti hann setið það tímabil á enda, hvernig svo sem hann kemur fram, eða hvernig svo sem hann notar umhoð kjósenda sinna. I Sovétrikjunum er hverjum fulltrúa skylt að gefa kjósendum sínum skýrslu um starf sitt, eða þess ráðs, sem hann á sæti i, og ef hann ekki starfar í samræmi við vilja kjósendanna, geta þeir hvenær sem er svipt hann umboði sinu með einfaldri meirihlutaákvörðun. Undirhúningur undir þessar Æðstaráðs-kosning- ar liefir verið mikill. Um öll Sovétríkin hafa verið fræðsluhringar og fundir, þar sem kosningalögin liafa verið rædd og horin saman við eldra kosn- ingafyrirkomulag og kosningalög annarra landa. En sovétkjósendurnir láta sér ekki nægja að kynna sér stjórnarskrána. Þeir eru sér þess einnig fylli- lega meðvitandi, að á hverjum og einum hvílir ábyrgð á stjórn hins sósíalistiska rikis og skylda til að verja það vígi frelsisins, sem undirstéttirnar fyrir 20 árum sköpuðu sér á sjötta hluta jarðar- innar. Jóhannes Jósepsson. Moskvabrúin. Verið er að ljúka við eitt stórvirki i Moskva. Er það ný brú yfir Moskvafljótið. Er þetta mikið og fagurt mannvirki. Brúin er rúml. 700 metra löng og 40 metra breið, og hyggð úr rauðhrúnum granítsteini, sama lit og Kremlhöllin. Við enda brúarinnar verða fagrar myndastyttur. Upphaflega átti hrúin að vera fullgerð 1. jan. 1938, en verð- ur sennilega tilbúin 7. nóvember i ár. 9

x

Sovétvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.