Alþýðublaðið - 08.01.1965, Side 1
45. árg. — Föstudagur 8. janúar 1965 — 5. tbl.
Enginn nýr fiskur
vegna aflabrests
FRESTUÐU
ÁRAMÓTUM
Reykjavík, 7. jan. ÓTJ.
Á ÓLAFSFIRÐI er engin áfengis
útsala, og verð'a þvi Ólafsfirðing
ar eins og aðrir sem líkt er ástatt
um að reiöa sig á skipsferðir á
vetrum, þegar allt annað er 6-
fært, Það urða þeir að gera nú um
áramótin, en þar sem blindbylur
seinkaði Drang, urðu æði margir
þurrbrjósta á gamlárskvöld.
En Ólafsfirðingar voru ekki af
baki dottnir. Þeir frestuðu gleð-
skapnum þartil á þrettándanum
Þá var mikiil glaumur og gleði
kveikt í „áramótabrennunni“ og
skálað fyirir nýja árinu. Allir vegir’
eru' nú ófærir sökum snjóa, og
hafa Ólafsfirðingar lítið liugsað
um bílferðir síðan i byrjun des.
Myndin sýnir skip amerisks olíufyrirtækis leita að olíu og jarðgasi í Norðursjónum.
NISLAND HELGA SER
RIGRUNNSBOTNINN?
Reykjavík, 7. jan. GO.
Algert neyðarástand er nú ríkí
andi meðal fisksala og þá um leið
húsmæðra. Nýr fiskur sést ekki
frekar cn glóandi gull og velður
eindæma gæftaleysi undan farna
mánuði og þar á ofan hraðminnk-
andi afli línubáta. Samkvæmt upp
lýsingum, sem blaðið hefur aflað
sér, komu ekki nema 10 tonn af
nýjum fiski tij dreyfingar hjá
stærsta dreyfingarfyrirtækinu síð-
asta hálfa mánuð ársins. Þörf þesn
fyrirtækis er um 100 tonn á viku.
Framhald á 13. síðu.
Manns leitað í
V estmannaeyjum
Víðtæk leit var í gær og nótt
í Vesmannaeyjum að manni sem
hvarf á þriðjudagskvöld. Sást þá
síðast til hans í námunda við höfn
ina. Maðurinn er irúmlega fertugur
að aldri og fjölskyldumaður, bú-
settur í Eyjum. í gær var slætt
í höfninni og leitað um alla eyjuna
en án árangurs. í gærkveldi var
hafin skipulögð leit, tóku þátt í
henni 60 skátar og margir aðrir
sjálfboðaliðar. Hafi leitin ekkl
borið árangur í nótt verður henni
haldið áfram í dag.
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ hefur undanfarið
haft til athugunar og undirbúnings, að ísland lýsti
yfir eign og umráðum yfir botni landgrunnsins.
Er það talið hægt að alþjóðalögum, en slík yflrráð
mundu engiu áhrif hafa á fiskveiðilandhelgi okk-
ar.
Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra
gerði þetta mál fyrst að umtalsefni í útvarpsræðu,,
er hann flutti á Alþingi vorið 1963. Þá varpaði
hann fram þeirri spurningu, hvort íslendingar ættu
ekki innan skamms að stíga þetta skref, enda þótt
ekki væri enn vitað um nein verðmæti í botnin-
um.
IlgfPj
Guðmunduir skýrði svo frá, að
þetta mál hefði einnig verið í at-
hugun í Noregi og hafa Norðmenn
síðan gefið út yfirlýsingu, þar sem
þeir lýsa yfirráðum sínum á land
grunntbotninum að því er varðar
Datt af stœðu
í GÆRMORGUN datt maður of-
an af vörustafla í vörugeymslu J.
Þorlák son og Noirðmann. Kvart
kði hann um þrautir i baki og
mjöðm. Var hann fluttur á Slysa
varðstofuna.
rannsóknir og hagnýtingu náttúru
auðæva í honum.
í áðurnefndri ræðu fórust Guð-
mundi í Guðmundssyni svo orð
um þetta mál: „Á Genfarráðstefn
unni 1958 var samþykktur samning
ur með tiLskildum meirihluta at-
kvæða um yfirráðarétt strandrík
is yfir landgrunnsbotninum. Sam
kvæmt þessum samningi er strand
ríki heimilt að helga sér hafsbotn
inn á landgrunninu og það, sem
f honum er, án þess þar með að
öðlast rétt yfir hafmu yfir land-
grunnsbotninum og því, sem í því
NÝTT Á BLS. 5: SJAVARSÍÐA
er. Með landgrunninu í þessum
samningi er miðað við 200 m.
dýpi. Samningurinn öðlast gildi
þegar 22 iríki hafa stað-
fest hann. Mjög fá ríki
hafa staðfest þennan samning, m-#r
er kunnugt um aðeins 6. Engu að
síður hef ég ástæðu til að ætla
að ýmsir þjóðréttarfræðingar telji
efni samningsins gildar þjóðréttar
reglur. Hygg ég, að það fengi
staðizt að alþjóðarétti, að íslend
ingar helguðu sér landgrunnsbotn
inn. Spumingin er, hvort það er
okkur hagkvæmast að stiga slíkt
spor eða ekki.“ ,
Guðmundur sagði ennfremur:
„Hér er um að ræða mál, sem ís-
lendingar þurfa að athuga gaum
gæfilega. t dag þekkjum við eng-
in þau verðmæti á eða undir hafs
Framhald á 13. síðu.
Kaupa Lofteiðir
þriðju vélina?
FRÉTZT HEFUR að Loftleið-
ir séu að festa kaup á þriðju vél
sinni af RolIs Royce 400 frá Can-
adair. Þegar Loftleiðir keyptu þær
tvær sem þeir nú eiga, var skýrt
frá því að kaup á þriðju vélinnt
gætu komið til greina. Ekki fékkst
fréttin nú staðfest, þar sem forráða
menn félagsins voru flestir ea>
lendis. Bendir það þó til þes»
að einhver fótur sé fyrir henni.
Telur ósennilegt að olía
muni finnast hér við land
Reykjavík, 7. jan. - EG
ÉG TEL fremur litlar
likur á því, að olía eða
jarðgas sé að finna undir
landgrunninu við ísland,
og vinnslumöguleikar ut-
an við landgrunnið eru
nær útilokaðir vegna dýp
is, sagði Jóþ Jónsson,
jarðfræðingur hiá Raf-
orkumálastjórninni, er
Alþýðublaðið ræddi við
liann í dag.
Alþýðublaðið birti í
morgun frétt um að haf-
inn væri undirbúningur
olíu- og jarðgasleitar við
ísland og Jan Mayen. Af
því tilefni sneri blaðið
sér til Jóns Jónssonar
jarðfræðings hjá Raforku
málastjórninni, en hann
hefur meðal annars feng
ist við rannsóknir á gas-
inu, • sem streymir úr
jörðu, í litlum mæli að
vísu, austur á Fljóts-
dalshéraði.
Skýrði Jón blaðinu
svo frá, að þar eystra
hefði samkvæmt rann-
sóknum atvinnudeildar
Háskólans reynzt vera
um metangas að ræða.
Kom það einkum, og
kemur, upp á tveim stöð-
um, úti í sjálfu Lagar-
fljóti og á eyrum fyrir
botni Lagarins. Jón
kvaðst vera þeirrar skóð-
unar, að þarna væri um
lítið magn að ræða,. og
afar hæpið og nær úti-
lokað að hér væri um
jarðgas í eiginlegri merk
ingu að ræða, því það
kæmi djúpt úr iðrUm
jarðar, og væru vanalega
onnur ummerki á yfir-
borðinu þar sem það
kemur upp. Benti hann
Framh. á 13. síðu.