Alþýðublaðið - 08.01.1965, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 08.01.1965, Blaðsíða 6
 1 IÉ C © c ® pJiöfaSjiJicS 1 3 1 ■ BAK VIÐ TJÖLDIN Í 'HINUM fagra franska bæ Valence setti kennslukonan Emili-e Ver- gnal litlu nemendunum sínum fyrir að skrifa stíl um efnið „smá- 1 börn“. Brigitte Montauban; 10 ára, byrjaði sína ritgerð svona: í Frakklandi finnast litlar stúlkur í rósum oe litlir drengir í kálhausum. í Ameríku og Englandi kemur storkurinn með börnin. í öllum öðrum löndum verða börn til á eðlilegan hátt“. f HIN ástríðufulla Elke Sommer heimtar að ektamaður hennar, Joe ■ Hyams, borði, svo framarlega sem það er framkvæmanlegt, af sama ■diskí og hún (sennilega til að spara uppvask). —- En, segir hún, það ber ekki að skilja þetta svo, að ég sé ein af þeim, sem telja, að konan eigi að ráða. Það er hrein vitleysa. Og í því tilfelli er ástandið í Ameríku skelfi legt. Já, jafnvel jafnrétti kvenna og karla getur verið fráleitt. Konan á að vera kona, og karlmaðurinn karlmaður í öllu tilliti. Þegar ég t. d. verð að hætta að vinna eftir svo sem þrjú eða fjögur ár, þá verður maðurinn minn að sjá fyrir mér — og 1 Joe Hyams lýsir því þó yfir, að hann muni aldrei misnota sér skoðun Elka á sambandi manns og konu: — Ég mun aldrei gera hana að ambátt minni! hvað þá með jafnréttið? MtHUMUHUMttMUtMMmV Nashyrningur og blómarós Ekki er reiðskjótiiui frýni- legur, en það bætir úr skák, að hún Mary litla Chipper- field, sem á honum situr, er allra snotrasta hnáta. Þess má líka geta, að nashyrning- ur þessi á að leika í kvik- mynd á næstuhni með To- ny Hancork, og myndin verð ur kölluð eftir honum, — „Nashyrningur.” Nashyrning urinn heitir Gus og var hann keyptur af dýragarðin- um í Hamborg. Gus er 15 ára gamall og er 3 tonn að þyngd. Arabar á móti Sophiu Feluleikur Joe Bananas Salvatore Bonanno tekinn í Tucson. EINN er sá glæpon í Bandaríkj- unum, sem menn hafa hvað mest an hug á að ná í um.þessar mund ir og heitir sá Joseph Bonanno, venjulega kallaður Joe Bananas. Joe þessi Bananas er sagður vera yfirmaður hinnar frægu Mafíu og 21. október s.l. átti hann að mæta fyrir ríkisrannsóknakvið- dómi í New York til að skýra frá starfsemi sinni í heild og vænt- anlega með sérstöku tilliti til Mafíunnar. Ekki varð úr neinni yfirheyrslu á Joe Bananas þann dag, því að þá var sagt, að byssu bófar hefðu rænt honum á göt- unni fyrir utan heimili lögfræð- ings hans, William Power Mal- oney. Úm tíma var talið, að Joe væri dauður, hefði hlotið uppáhalds- dauðdaga New York glæpona (þ. e. a. s. fýrir fjandmenn sína): sementstunnu um fæturna, að minnsta kosti, og vota gröfin í Austurá. Bn svo skeði það þarna fyrir jólin, að lögfræðingurinn Maloney reisti hann frá dauðum og kvaðst hafa örugga vissu fyrir því, að Joe mundi mæta fyrir kviðdómnum 21. desember. Sagði hann kviðdóminum daginn eftir, þegar Joe hafði hvorki birzt þann 21. né 22., að hann byggði þe sa staðhæfingu sína á því, að Bill, sonur Joes, hefði hringt í sig og þannig endurlífgað pabba sinn. Hann kvaðst vera öldungis alveg viss um, að það hefði verið Bill, sem var í símanum. hann hefði oft áður talað við hann i síma. Hann var spurður, hvort hann héldi, að Bananas væri lifandi. Maloney kvaðst ekki hafa neina ástæðu til að skipta um skoðun í því máli. Hann taldi sig mundu vita það betur (og vafalaust er það rétt hjá honum), ef hann gæti náð í Joe og talað við hann. Það vakti athygli blaðamanna, sem voru að ræða við Maloney í blaðamannaherberginu eftir rétt- arhaldið, að húðdökkur ungur maður benti honum allt í einu að fylgja sér, og gerði lögfræð- ingurinn það. Kvaðst Maloney ekki hafa hug mynd um hver þessi ungi maður væri, en settist þó upp í bílinn hjá honum og ók burtu með honum. Síðar um daginn hafðist upp á þessum húðdökka unga manni og kom í ljós, að hann hét Murray Esposito frá Brook- lyn. Svona nafn og þetta hverfi virtust lofa góðu um, að eitt- hvað væri upp úr unga mannin- um að hafa, en sá sagði aðeins, að hann hefði setið við fótskör Bananas og hefði aðeins vi-ljað segja ,,Halló“. Það kom ^íðar í Ijós, að ungi maðurinn hafði verið skóburstari í hverfi Joe Bananas. Ýmsar sögur hafa síðan verið á kreiki um líkamlegt ástand Bananas, sumir segja enn að hann sé dauður, aðrir að hann sé í fullu fjöri með Mafíabræðrum sínum og aðeins svolítið sár í bak inu eftir að hafa spilað póker Framh. á 13. síðu VEGNA leiks síns í aöalhlut- verki í myndinni „Judith”, sem nú er verið að taka í ísrael, er Sophia Loren orðin flækt í hinni alþjóðlegu stórpólitík. Vegna þátttöku hennar í myndinni hafa 13 arabaríki og 5 brezk verndar- svæði í Austurlöndum nær skoð- að undir hið fagra skinn hennar og komizt að raun um, að þar er flagð og kolsvört sál. Aðalstöðv- ar arabasamtakanna gegn ísrael, sem eru í Damaskus, halda því fram, að Sophia sé að taka þátt í „rangtúlkun á sögulegum stað reyndum í þágu hins alþjóðlega síonisma.” Hin ákærða hafði ekki mætt fvrir rétti, en pan-arabísk-ráð- stefna í Damaskus bannfærði hana, að lienni fjarverandi. Af leikurum hafa bæði Frank Sinatra og Sammy Davis jr. vér- ið bannfærðír fyrir „að þjóna hinum.alþjóölega síonisma.” . 0 8. janúar 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.