Alþýðublaðið - 08.01.1965, Blaðsíða 13
M.s. Dronning
Alexandrine
fer frá Reykjavík 16. janúar til
Færeyja og Kaupmannaliafnar.
Tilkynningar um flutning óskast
sem fyrst.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina!
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Einangrunargler
Framleitt elnungls tr tmii
Clerl. — ft ár* ibyrtl.
P»ntlð tímanlega.
Korkiðjan h.L
Skúlagötu 57 — Simi 83200.
Tok tl mér hvers konar fiýVliig
■r úr og á ensku
EIÐUR GUÐNASON,
llggittur dómtútkur og skjein-
þýffandi.
Skipholti 51 - Sfmi 32933.
Píanóstillingar.
og viðgerðir
guðmundur stefánsson
hljóðfæraverkstæði.
Langholtsvegi 51.
Sími 36081 milli kl. 10 og 12.
Telur ósennilegt
Frh. af 1. síðu.
á, að jarðgas er að finna í óbyggð-
um á norðaustur og austur Græn-
landi og eru þar leirhverir í jörðu,
þar sem gasið kemur upp, en slíku
var ekki U1 að dreifa eystra. Þar
sem gasið kemur upp i Grænlandi
eru talin mikil kolalög undir, en
slíkt er oftast samfara jarðgas-
streymi.
Þá sagði Jón, að oft væri erf-
itt að gera greinarmun á mýra-
gasi svokölluðu og hreinu jarðgasi.
Mýragas væri hrein yfirborðs-
myndun og væri venjulega hreint
metangas, eins og fundizt hefði
eystra, en jarðgas væri hinsvegar
oftast blandað hærri kolvetnum,
svo sem butan eða etan, en ekkert
slíkt hefði fundizt í gasinu eystra.
Jón Jónsson sagði það rétt vera,
að hér á landi hefði ævinlega ver-
ið taldar mjög litlar líkur til að
finna jarðgas, kol eða olíu vegna
i þess hve landið væri jarðsögulega
ungt og tiltölulega nýmyndað. Þó
væri ekki hægt að útiloka þann
möguleika, að undir basalthellunni
sem landið hvílir á gætu verið
kolalög, sem lokast hefðu inni, til
dæmis við jarðsig eða þessháttar,
en gasstreymið austur á Héraði
væri þó á alltof litlu svæði til
þess að unnt væri að draga slíkar
ályktanir.
Jón sagði, að basalthellan, sem
landið hvíldi á væri afskaplega
þykk. Hér í Reykjavík hefði verið
borað niður 2200 metra frá sjávar-
máli og þá hefði borinn ekki náð
gegnum helluna, væri því ekki
vit.að nákvæmlega um þykkt henn-
ar. Hann kvaðst hinsvegar vel geta
ímyndað sér, að undir þessarri
basalthellu væru jarðlög frá Krit-
artímabilinu, sem kemur næst á
undan Tertier í jarðsögunni, en á
Tez-tíer myndast einmitt undir-
staða íslands. í slíkum jarðlögum
frá Krít hafa einmitt oft fundist
kol og olía í Bandaríkjunum og
það rennir stoðum undir þessa
kenningu, að á Grænlandi norður
og vestur af Vestfjörðum hafa ein-
mitt komið í ljós slík jarðlög und-
ir basaltinu. Þá sagði Jón enn-
fremur, að það hefði komið fyrir
oftar en einu sinni að skip hefðu
fengið í togvörpur á Breiðafirði
steina úr bergtegundum, sem
greinilega hefðu myndast á Krítar-
tímanum. Hér gæti að visu verið
um að ræða barlest úr sokknu
skipi og eins gæti þetta hafa borizt
frá Grænlandi á ísöld.
— Ég tel ekki mlklar líkur á
því, að á landgrunni íslands muni
finnast möguleikar til að nýta eða
finna jarðgas eða olíu, sagði Jón
Jónsson. Fyrir utan landgrunnið
er dýpi svo mikið, að ekki mundi
að minum dómi liægt að nytja slík-
ar auðlindir, ef þær fyndust. Ég er
einnig þeirar skoðunar, að ekkert
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússningarsandur
og vikursandur, sigtaður eða
ósigtaður við húsdyrnar eða
kominn upp á hvaða hæð sem
er, eftlr óskum kaupenda.
SANDSALAN vi» Elliðavog s.f.
Simi 41920.
slíkt sé að finna á hryggnum, sem
tengir Færeyjar, ísland og Græn-
land. Hvað Jan Mayen snertir
gildir það sama. Jarðsaga eyjar-
innar er svipuð jarðsögu íslands.
Þar eru eldfjöll eins og hér, meðal
annars er þar næst hæsta eldfjall
í Evrópu, og það hefur gosið eftir
að sögur hófust.
Rafreiknir
Frh. af 16. siðu.
vinnur Þórhallur M. Einarsson
við rafreikninn, sér hann um
allt viðhald á vélunum.
Þessi rafreiknir er staðsett-
ur í kjallara í hinu nýja
húsi Raunvísindastofnunarinn-
ar, sem enn er í smíðum. Hann
er mun stærri en rafreiknir
Skýrsluvéla, sem var sá fyrsti,
sem kom hingað til Lands.
Munurinn á þessum tveimur
verkfærum er aðallega sá að
reiknir Háskólans er einkum
ætlaður fyrir visindalega út-
reikninga. Hefúr hann 10 sinn-
um meira minni en sá fyrri og
meiri reikningsgetu, en hann
er mun hæggengari við spjalda-
lestur og prentun. Dæmi um
hraða hans má nefna að hann
getur lagt saman 7.142 fimm
stafa tölur á sekúndu og marg-
faldað 826 fimmstafa tölur á
sekúndu.
Bráðlega kemur að því að
reiknirinn verði látinn taka til
starfa fyrir alvöru. Eru nú t. d.
starfsmenn Raforkúmálaskrif-
stofunnar að undirbúa úr-
vinnslu á segulmælingum og
landmælingum. Kemur reiknir-
inn til með að vera notaður
mikið í framtíðinni af þeim að-
ilum sem fást við visindalega
útreikninga og verkfræðistörf.
Miklar þjóðsögur hafa skap-
ast um vélar sem þessa og eiga
þær að getá gert ótrúlegustu
hluti, og það gera þær á sinn
hátt, en að syngja vögguvísur
o. s. frv. er eitthvað málum
blandað, enda miklu einfaldara
að syngja þær inn á plötur og
spila af þeim, heldur en að
framleiða tónlist i gegnum
„rafmagnsheila". Rafeinda
reiknar eru einfaldlega afar-
hraðgengar og afkastamiklar
reiknivélar.
Að lokum má geta þess að
rafreiknirinn i Háskólanum
notar ekki meira af rafmagni
en stór eldavél, séu þar allar
tilfæringar í gangi í einu.
SALTKJÖT
Framhald. af 16. síðu.
flutningur hafi aukizt ár .frá ári
og nú vilji íslendingar fá að flytja
inn árlega um 1000 smálestir.
Það sem ýmsum öðrum neytend
um í Noregi þykir óréttlátt, er að
á sérstökum árstímum nýtur is-
lenzka saltkjötíð tolifríðinda, og
verður svo einnig í ár. Tollurinn
verður nú 40 aurar norskir á kíló
en það er 80 aura lækkun frá þvi
sem venja er til. Talsmenn þess
arar skoðunnar benda á, að þótt
tollurinn væri ekki lækkaður á
Þlenzka kjötinu, mundi það samt
verða ódýrara en norskt saltkjöt
og sé því lækkun beinlínis skaðleg
fyrir þá aðila norska, sem fram
leiða saltkjöt.
Hannes á horninu
Framhalct af 2. síðu
um. Eg bað um kjötlæri og tók
ekki fram af hvaða flokki það
ætti að vera. Verzlunareigandinn
pakkaði því sjálfur inn og ég
setti það í innkaupatösku mína.
Þegar heim kom, fór ég að skoða
lærið og nótuna. Eg fékk ekki
betur séð en að lærið væri ann-
ars flokks, en verðið var sama
verð og er á fyrsta flokki.
ÞAÐ ER HREIN tilviljun að
ég skyldi komast að þessu. Eg
vildi ekki láta hlunnfæra mig og
fór til kaupmannsins. Hann brást
illa við og mótmælti mati mínu
og kastaðist í kekki mllli okkar.
Eg lauk viðræðum mínum með
því að segja, að þetta næði þá
ekki lengra, ég færi bara til Neyt-
endasamtakanna með lærið og
nótuna. Þá lét hann sig og henti
í mig nokkrum krónum, sem
munaði. Eg tók þær og hafði þau
orð um, að ég vildi ekki gefa hon-
um neitt og til þess að forðast
snuð hans, mundi ég ekki verzla
framar við hann.
EG SENDI þér þessar línur, af
því að ég er sannfærður um, að
þessi kaupmaður leikur þennan
leik við fleiri en mig og á ýms-
an annan hátt. En það geta ekki
allir sett svona menn niður. Fólk
kann yfirleitt ekki að þekkja
matsflokkana 1 sundur og það
vita svona menn. En ekki finnst
mér þetta vera viturlegur verzl-
unarmáti, því að hann hlýtur að
hefna sín. Það kæmi mér ekki á
óvart, þó að þessi kaupmaður
færi á hausinn, þó að hann kunni
að geta frestað því nokkuð með
því, að hafa af fólki smáaura
um sinn.”
Hannes á horninu.
Lctndgrunnið
Frh. af 1. síðu.
botninum, sem við þurfum að
helga okkur. Hins vegar þurfum
við að gera upp við okkur, hvort
við færumst nær þvi marki, að
allt landgrunnið komist undir ís
lenzka flskveiðilögsögu með því
að helga okkur landgrunnsbotninn
að 200 m. dýpi, eða hvort við með
slíku skrefi leggjum stein í götu
þess máls.“
Engirtn fiskur
Framhald af 1. síðu
10 línubátar hafa nú iengið und
anþágu til að stunda vt iðar í soð
ið og fóru þeir á sjó í fyrsta skipti
í gærkvöldi, en gæftalaust hefur
verið síðan verkfallið skall á um
áramót. Afli línubátanna f haust
var með eindæmum lélegur, í töl
um talið náði hann ekki helmingi
mið'að við árið áður. Erfitt er orð
ið að fá menn til að halda bátum
úti á þennan veiðiskap, en hann
ásamt dragnótinni er sá eini sem
getur tryggt borgarbúum góffan,
nýjan fisk.
Nóg er til af saltflski og tekist
hefur að fá nokkúff magn af heil
frystri ýsu utan af landi, stnndum
um langan veg og þá hefur tekist
aff fá nokkurt magn af útfiutn-
ingsfiski fullunnum, en hann er
seldur óniffurgreiddur í fiskbúffun
um og því mijög dýr. Algengt verð
á hraðífrystum þ^rskflöþumi éýi
um 40 kr. á kg. Togarafzskor faést
ekki, þvi enginn togari hefnr iand
aff hér heima síffan í haust að
siglingarnar hófust og ekki von um
landanir fyrr en í snmar.
Múrinn
Framh. úr opnu.
Eftir það sem á undan ér.
gengið kæmi það ekki á óvart
þótt Uibricht leyfði almenningi
að toga í hökutopp sinn. —
og tæki pening fyrir.
Þann iskemmtanaskatt mundl
margur greiða glöðu geði.
Feluleikur
Frh. af 6. síðu.
látlaust síðan 21. október.
Síðustu fréttir eru svo þær,
að fyrir skemmstu var sonur Joe
Bananas, Salvatore Bonanno, 32
ára að aldri, handtekinn á rak-
arastofu í Tucson, Arizona, og
verður kallaður þar fyrir rann-
sóknakviðdóm. Annar sonur Joes,
Joseph jr.j 19 ára gamall, hefur
þegar verið yfirheyrður af sams
konar kviðdómi í New York.
LesiS AlþýSublaðið
Áskriftasiminn er 14900
Maðurinn minn
Andrés Kristinn Sigurðsson
verkstjóri, Rauðalæk 6,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, laugardaginn 9. þ. m.
kl. 10:30 f.h.
Sigríður Halldórsdóttir.
«c
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. janúar 1965 |,3