Alþýðublaðið - 08.01.1965, Page 15

Alþýðublaðið - 08.01.1965, Page 15
4t<WWwéwiwwww» MÁRGARET BAUMANN í kvöld, þegar allt væri komið á réttan kjöl aftur, yrði hún að hringja til hans og biðja hann af sökunar. Þá myndi hann hvetja hana til að þiggja boðið i helgar- veizluna á Woodleigh. Auðvitað yrði það dásamlegt, hún myndi njóta hvers augnabliks, en það myndi kljúfa hana í tvennt . . . Myndi honum nokkurn tima skilj ast það? Síðdegisútgáfan af Marbury Witness færði frásögnina af góð- gerðaskemmtuninni yfir á bak- siðu, en aðalfyrirsögnin fjallaöi um „Skemmtiferðaslysíð“ með mynd af sjúkrabílaflotanum á leið til Aðalsjúkrahússins og frá sögn af því hve frábært starf hafði verið unnið á sjúkrahúsinu í sambandi við slysið. Minnzt var á hið þrotlausa starf Rodways yfirlæknis og yfirhjúkrunarkon- unnar við að halda öllu gangandi og skipuleggja, ekki aðeins hjúkrun hinna slösuðu, heldur einnig rými fyrir ættingja sem höfðu komið um langan veg. Á staðnum fannst Ruth stund- um að allt færi í handaskolum. Móttökusalurinn leit út eins og vígvöllur. Nú varð enginn ung- ur skurðlæknir til að skipa henni á sinn stað í biðröðinni, en hún átti á hættu að koma þannig fram við meðlimi sjúkraliðsins, sem hafði komið á vettvang þeg ar fréttist um slysið. Það varð enginn skortur á hjúkrunarkon- um og hjálparfólki, þegar á kvöldið leið og fréttir bárust út um hve mikið slysið var. Fred, vélstjórinn, var einn af þeim, sem buðu sig fram, — í spariföt- unum: — Ég þekki þessar vélar yfir- hjúkrunarkona. Þetta eru lúmsk ir þorparar og það er einmitt á svona augnablikum, sem þeim finnst tilvalið að gera einhverj- ar skammir af sér. Þess vegna fannst mér vissara að vera hér til reiðu og hafa auga naeð þeim. WMWMWWWMWMMWmmv SÆNGUR EEST-BEZT-koddar Endurnýjum gömln sængrurnar, elgum dún- og fiðurheld rer. Seljum æðardúns- og gse sadúnssængur — og kodda af ýmsum atærðum. DÚN- OO FIÐURHREINSUN Vatnsstfg 3. Sfml 18740. Nokkrum sinnum um kvöldið sá Ruth Cort lækni í fjarlægð. Hann hafði mikið verk að vinna við að skipuleggja blóðgjafír með öllu því efnafræðistrfsliði, sem hann gat safnað að sér. Hún óttaðist að hann fengi óhugnan- ■legra verkefni yfir helgina, eftir því sem hinum stirðnuðu, lín- huldu líkömum í líkhúsinu fjölg- aði, þrátt fyrir að allt, sem f mannlegu valdi stóð, var gert til að bjarga lífi þeirra. Það var orðið framorðið þegar Ruth fór . sjálf í burtu. Hún hafði skoðað hvem sjúkling, sem lagður var inn, talað við ættingjana og geng ið úr skugga um að enginn yrði látinn vera án matar og staðar til að sofa á. Þetta fólk var ekkl frá Marbury, vagninn hafði að- eins átt leið þar um og lögregl- unni hafði enn ekki tekizt að nafngreina alla. Hún sá svo rnn, að slysavaktin, sem hafði verið að alla nóttina; var leyst af. Um- sjónarkonan var á skrifstofu sinni, þó svo ætti að heita að hún ætti frí. Hún leit hræðilega út, tekin og grá í andliti af kvöl- um. Rúth fann til sektar, vegna þess að hún hafði lialdið að „las- leikinn" væri aðeins afsökun til að komast hjá hátíðinni. Ó, hvílík kaldhæðni! Aldrei hafði nokkur dagur farið svo í bága við vonir hennar. Hann virtist langur eins og eilífðin sjálf. Hún var dauðuppgefin og kvalin af þeirri hugsun, að hún hefði móðgað Kevin eftir að hann hafði sýnt isjúkrahúsinu slíka rausn. Nú var of seint að hringja til hans. Hún gat ekki einu sinni hugsað um mat, þó að hún vissi að ráðskonan hélt einhverju heitu fyrir hana. Cort, læknir var einnig á heim leið. Þau gengu saman yfir fer- hyrnt svæðið. Léttur sumarand- vari lék í hári Ruthar og himin- inn ljómaði af stjörnuskini. Hún bókstaílega slagaði af þreytu og hann tók undir handlegginn á henni. ___Svona, stöðug nú! Hann leit á hana með fagmannssvip og sagði: — Þér hafið fengið meira en nóg. — Þér hljótið að vera talsvert þreyttir sjálfir, læknir. — Ég finn ekki fyrir því. Það er talsverð óregla á hlutunum heima hjá okkur, hvort eð er. Þér vitið hvernig hljómlistar- menn eru! Þreytulegt andlit hans ljómaði af umhyggjusömu brosi: — Audrey mun þykja leitt að dagurinn yðar fór á þennan veg. Varir Ruthar skulfu. Hún gat ekki komið upp orði. Henni fannst hún hræðilega nærri því að falla saman. Það hlaut að vera vnadræðalegt fyrir mann eins og Cort, að hafa heimskan kven- mann volandi við öxl sér. Um- hugsunin um þetta gaf henni nærri yfirmannlega sjálfstjórn. — Andrey finnst þér vera dá- samlegar, sagði Cort. Síðan varð þögn þangað til hann sagði með dálítið hryssingslegri röddu: — Og þó að þér hafið kannski ekki sérstakan áhuga á þvi, er ég henni sammála. Þetta var algerlega óvænt. Hún hélt að hann væri að segja ■einn af þessum undarlegu kald- hæðnislegu bröndurum sinum, en þegar hún leit upp las hún þrá, hungur og skömmstulega um- hyggju í augum hans. 'fin það hlaut að hafa verið leikur skugg anna, því að John Cort bauð henni góða nótt á þann hryss- ingslega hátt, sem hún þekkti svo vel og stikaði inn í myrkrið löng um og hröðum skrefum. Ráðskonan beið hennar í dyr- unum. Atbúrðir umheimsins komu henni ekki við. Hún ljóm- aði og flýtti sér tll móts vlð Ruth: ■— Hvað haldið þér yfirhjúkr- unarkona. Matarvagninn er kom inn og við verðum að eta hænsni og sveppasalad alla helg ina. 9. EYÐILEGGING — Þvílík nótt. Hún minnir mig á loftárásirnar yfirhjúkrunar- kona. Ég var þá ungsystir á sjúkrahúsi í London og ég minn- ist einnar helgar, þegar við héld um út í 48 klukkustundir og náðum aðeins í kríublund og skó- skipti. Nú orðið fékk Ruth rnmnleg ar skýrslur hjá einni af nætur- hjúkrunarkonunum með sjúkra listanum. Og þennan suraudags- morgun skorti vissulega kki um ræðunefni. Slysavakti: hafði unnið alla nóttina. Ni yðarköll eftiir meira blóði bárust frá deild Corts. Sent hafði verið í skyndi eftir blóðgjöfum í sj Idgæfum blóðflokkum. Ættingja íem lög reglan hafði haft upp i /ru líka komnlr. í nokkrum ivikum hafði kapphlaup þein rðiB til einskis og þeir komið icint. Sjálf hafði Ruth A sofið mikið. Hún var þeg ■- búin að fara í eftirlitsferð <sg fullvissa sig um að allar neylþnrráðstafan - ir væru í fulium gaz^ /g allar sjúkrastofur nægilega mannaðar starfsliði. Þetta hafði gerzt um helgí, þegar hún sjálf hafði séð svo um að sem allra flestar hjúkr unarkonur áttu frí. Þær höfðu fúslega brugðist við þessum ó- vænta kalli um að vinna á frí- vakt til að ráða við neyðarástand ið. — Ekki veit ég hvers vegna við hugsum okkur helgarnar sem hvíldartima, sagði Ruth við næt- urhjúkrunarkonuna, sem kom með skýrslurnar. — Hugsið yður götuslagsmálin á laugardagskvöld um og umferðarslysin á sunnu- dögum. Það verður ekkert lát á fórnarlömbum. Við ættum að bæta við okkur starfsliði í stað þess að gefa aukin frí! Hún gæti að minnsta kosti reynt að fá aukafólk um helgar. Hún lagði þetta á minnið og ætl- aði að koma því á framfæri á næsta stjórnarfundi. — Meðal annarra orða. Hvern- ig líður næturvaktstýrunni í dag? spurði hún, þegar hjúkrunarkon- an var í þann veginn að fara. Hún virtist hissa. — Það veH ég ekki, yfirhjúkr- unarkona. Tónninn í röddinni sagði eitthvað á þá leið. að öðru fólki gæti liðið misjafnlega, en „stýran“ væri hörð eins og tinna — og ætti litla samúð aflögu handa þeim starfssystrum sínum, sem ekki voru eins af guði gerð- ar. — Hún á eiginlega frí þessa helgi. — Ég veit það, en mér fannst fallega gert af henni að fórna hvíldartíma sínum og vera til taks á skrifstofunni í gærkvöldi. Hjúkrunarkonan sagði: — Vitið þér hvernig hún eyðir fríhelgunum sínum, yfirhjúkrun arkona? Ruth hristi höfuðið. Hún gat ímyndað sér næturvaktstýruna í hörðum golfleik, eða álíka hörðu pólitísku rifrildi. En liggj- andi í leti? Hún eyðir helgunum í að sjá um gamla konu, sem eitt sinn var barnfóstra hjá fjölskyldu liennar, sagði hjúkrunarkonan í trúnaði. — Hún liefur komið henni fyrir í litlum kofa og sér um að hana skorti ekkert og hvenær sem hún á frí, fer hún SÆNGUR Endurnýjum gömlu sængumar. Seljum dún- og fiðurheld ver. NÝJA FEBURIIREIN SUNIN Hverfisgötu 57A. Sími 16738. hugsar um garðinn fyrir hana' og reynir að gera henni sem mpstj til hæfis, hélt h.iúkrunarkonam áfram og síðan bætti hún viðí — Hún verður ekki hrifin af, að ég skuli hafa sagt yður þetta! Auðvitað, hugsaði Ruth. Hön vildi vera hörð og henni myndi ekki geðjast að ef einhver kæm- ist að hinum mennsku hliðunt hennar og hún fyrirleit innilega umbætur nýju yfirhjúkrunarkon- unnar! Það var ekki fyrr en kvöldið áður, sem þær áttu vhi- gjarnleg orðaskipti í fyrsta sinni. Ég hefði átt að leggja mig meii<d fram, hugsaði Ruth. En hvað fólk getur verið frábrugðið því, sem manni finnst við fyrstu sýnf þegar maður fer að kynnast pvi betur. Henni varð hugsað til Kevina Reid. Á Cote d’Azur hafði húh gert sér rómantízkar hugmyndiP um hann. Hann var hinn prúði riddari hennar, ávallt örlátur og skilningsríkur. Það var að vísu rétt, en hann hafði aðra hlið. Hana grunaði að hann gæti verið tillitslaus, þegar hagsmunir hans sjálfs eða einhvers honum ná- komins voru í veði. Rödd hans og bros bræddi hjarta hennar og fyllti hana löngun, þá varð húii skyndilega vör við hans annan mann, þennan skarpa, harðsoðn^ verzlunarmann, sem var hreyk* inn af velgengni sinni og eigii- um; sem treysti um of á það vald, sem þær léðu honum. Og Cort læknir, sem hennl fannst eins og bjarndýr, mat svo óendanlega lítils velgengni 'og veraldleg gæði. Hann lét sér yel líka óreiðan á húshaldi Audrey- __ Strokjárnið er bilað. Eigum við að senda það í viðgerð eða eigum við að láta pabba gera við það, svo að við verðum að kaupa nýtt? AIÞÝÐUBLAÐIÐ — 8. jantjar 1965 |S

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.