Alþýðublaðið - 26.02.1965, Page 3

Alþýðublaðið - 26.02.1965, Page 3
í London Yar sagt, að brezka stjórnin hefði ekki verið höfð með í ráðum í sambandi við yf- irlýsingu þá, sem gefin var út í París í gærkvöldi þess efnis, að Frakkar og Rússar væru sam- mála um nauðsyn þess, að efnt verði til alþjóðaráðstefnu um Vi- etnammálið. Yfirlýsingin kemur eltki á óvart, því að þetta hefur verið stefna Frakka í rúmt ár. Sagt er, að Rússar hafi ekki sagt Bretum frá afstöðu sinni til slíkr- ar ráðstefnu, en fulltrúar Breta og Rússa voru formenn Genfar- ráðstefnunnar um Indó-Kína 1954. Bandaríska utanríkisráðuneytið bar til baka í dag þá frétt Stokk- hólmsblaðsins „Expressen,” að leyniviðræður milli Bandaríkja- manna og Kinverja hefðu farið fram í bandariska sendiráðinu í Stokkhólmi. „Expressen” segir, að Alfred Jenkins sendiráðsritari — bandariskur fulltrúi á Genfar- ráðstefnunni 1954, — hafi stjórn- að þessum viðræðum. Örn Ó. Johnson, forstjóri Flugfélags íslands, og Switzer, fulltrúi, uudirskrifa samninginn. Flugfélagið fær forkaupsrétt að þriðju Fokker-flugvélinni Washington, 25. febrúar. (ntb-rt) . Formælandi Hvíta húsnrins sagði I dag, að Johnson forseti hefði enga heimild veitt til þess, að við- raeður verði hafnar í því skyni að Ieysa deiluna í Vietnam. Formælandinn, George Reedy, sagði að bandariska ntjórnin Kommar streyma til Moskvu Moskva, 25. febr. (ntb-rt). Fulltrúar 25 kommúnistafíokka, sem boðaðir hafa verið til undir- búningsráðstefnu kommúnista- flokka heims í Moskra, á mánu- daginn, eru farnir að týnast til Moskva. Tilgangur ráðstefnunnar er að undirbúa nlþjóðaráðstefnu um einingu kommúnista. Sendinefndir frá Ítalíu, Austur- Þýzkaiandi og Tékkóslóvaldu komu til Moskva í kvöld og finnsk sendi nefnd fór frá Helsingforg í dag. Sovézk blöð hafa sagt frá komu nefndanna, en 'fulltrúar þeirra Virðast lágt settir. Talið er, að fulltrúar 20 flokka sæki ekki fund- inn, og svo virðist sem Kínverj- ar og skoðanahræður þeirra taki ekki þátt. hefði ekki veitt neinni annarri rík, isstjórn heimild til að hefja und- irbúning að viðræðum. Bandaríkin hefðu ekkert frumkvæði tekið í átt til viðræðna og hefðu slíkt ekki í hyggju. Hætta á oð Kanada klofni í tvo ríki Reykjavík, 25. febrúar. — EG. SAMNINGUR va,- í dag undirritaður milli Flugfélags íslands og hol- lenzku fokker-flugvélaverksmiðjanna um kaup á flugvél af gerðinni Fokker Friendship. Er þetta önnur vélin af þessari tegund, sem Flugfélagið kaupir. Verður fyrri vélin afhent í lok apríl eða byrjun maí, en sú síðari, sem samningur var nú gerður um, í lok marz- mánaðar 1966. Jafnframt hefur Flugfélagið tryggt sér forkaupsrétt að þriðju vélinni af þessari gerð, og ef af samningum verður, yrði hún afhent á árinu 1967. Ottava, 25. febr. (ntb-rt). Alvarleg hætta leikur á því, að Kanada klofni 'sem ríki vegna spennunnar í sambúð frönskumæl- andi og' enskumælandi lands- manna, ef ekki verður undinn bráður bugur að því að koma á róttækum umbótum í stjórn mála í héruðum * frönatkumælandi manna og ef afstaða meirihlut- ans til máladeilunnar breytist ekki, segir í nefndaráliti, sem Les- ter Pearson forsætfsráðherra lagði fyrir þingið í Ottawa í dag. Nefndin segir rannsóknir sín- ar hafa leitt í ljós, að djúp gjá hafi mvndazt milli enskumælandi og frönskumælandi Kanada- manna. Þessi gjá sé dýpri en tal- ið hafi verið til þessa. Þrjár helztu niðurstöður nefndarinnar eru: 1) í landinu er stórt, þróttmikið og greinilega aðskilið, frönsku- Framh. á 13. síðu. Örn Johnson forstjóri Flugfé- lagsins undirritaði samninginn fyrir félagsins hönd, en af hálfu Fokker verksmiðjannh undirrit- aði hr. Switzer, sem dvalið hefur hér á landi undanfarna daga. Við þetta tækifæri sagði Örn Johnson forstjóri fréttamönnum að Fokker Friendship vélarnar hefðu orðið fyrir valinu til end- urnýjunar flugflota félagsins á innanlands leiðum eftir ítarlega athugun. Hann tók það fram, að samningur sá, sem nú hefði hefði verið undirritaður, væri með því fororði, að ríkisábyrgð fengist fyrir láni er næmi 80% af and- virði vélanna. Mundi frumvarp um það efni væntanlega lagt fram fyrir Alþingi áður en langt um líður. Hvor flugvél ásamt varahlutum kostar um fjörutíu milljónir króna, en Flugfélagið leggur sjálft til hreyfla og vara- Fangelsun fyrir eintal um kynferðislíf Krists? Söguleg réttarhöld í Fjnnlandi hreyfla, sem kosta um fjórar milljónir í hvora vél. Fokker Friendship eru tveggja hreyfla flugvélar knúnar Rolls Royce Dart hreyflum, mjög svip- uðum hreyflum Viscount vélanna. Þessar vélar eru með jafnþrýsti- búnaði, þannig, að farþegar finna ekki til óþæginda þótt hátt sé flogið. Meðalflughraði þeirra er 440 km. á klukkustund, og eru þær um 50 mínútur að fljúga til Framh. á 13. síðu. Bottomley rœðir við Joshua Nkomo Salizbnry, 25. febr. (ntb-rt). Afríski þjóðernissinnaleiðtoginn Joshna Nkomo og sex samstarfs- menn hans voru fluttir í dagr til gistihúss við Londifljót í Suður- Rhodesíu til fundar við samveldis- málaráðherra Breta, Arthur Bottomley. • Wilson til Helsinki, 25. febr. — NTB. IIINN 28 ára gamli finnski rithöf- undur, Hannu Salama, neitaði því, að hann væri sekur nn gnílast, er hið umtalaða mál gegn honum og útgefanda hans kom fyrir borgar- réttinn í dag. Sækjandi málsins upplýsti, að Salama væri kærður um brot á strangasta kafla hegn- ingarlaga um guðlast, og getur hinn ungi rithöfundur átt von á fjögurra ára fangelsi, ef hann verð ur dæmdur sekur. Mál þetta hefur vakið gífurlega athygli í Finnlandi og er þegar talið ljóst, að það muni fara til lögmannaréttar og loks hæstaréttar. Skömmu eftir að réttur hafði ver ið settur, ákvað Veikko Laitinen, borgardómari, að fresta frekari réttarhöldum til 8. apríl, svo að Salama og útgefandi hans, K. Ren- pææ, geti undirbúið skrifleg svör við ákæruskjalinu. Salama var í rifnum klæðum fyrir réttinum, þar sem skyrta hans hafði rifnað, er hann brauzt gegnum þröng blaða- manna og ljósmyndara við réttar- salinn. Ákæruvaldið hefur bent á þrjár síður í hinni umdeildu bók „Juhannustanssit" (Jónsmessudans inn), þar sem ein af aðalpersón- um sögunnar, Hiltunen, gerir at- hugasemdir um kynferðislíf Jesú Krists í löngu eintali. Dómarinn spurði Salama, hvaða hlutverki þetta eintal gegndi, ef litið væri á bókina sem heild. Salama svaraði þvf til, að í öll- um bókmenntum væru persónur og þetta eintal væri tilraun til að lýsa Hiltunen og skapgerð hans. Hann kvað sér hafa ljóst, að ein- tal Hiltunens mundi hneyksla ein- hverja, en guðlast væri það alls ekki. Salama sagði, að hann hefði ekki dregið dul á það, ef ætlun hans hefði verið að lasta guð. Timo Larkovuo, einn af ákær- endum ríkisins, lagði til að Salama Framhald á 13. síðu. Danmerkur I/indon, 25. febr. (ntb-afp). Harold Wilson forsætisráðherra Breta skýrði frá því í dag, að hana hefði þekkst boð um að heim- sækja Kaupmannahöfn. Ekki hef- ur verið ákveðið hvenær Wilson fer í heimsóknina, en sennilega kemur hann við í Kaupmannahöfn á leið sinni til Noregs slðar á þessu ári, en honum hefnr áður verið boðið I heimsókn þangað. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. febrúar 1965 3'

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.