Alþýðublaðið - 26.02.1965, Síða 4

Alþýðublaðið - 26.02.1965, Síða 4
Ráðstefna um kjaramál i Atlantshafsrikjunum OKYRRÐ I HARLEM lim þeirra. — Sá orðrómur ÓKYRRÐ ríkir enn í Harlem, blökkumannahverfinu í New York, eftir morð- ið á hinum öfgasinnaða blökkumannaleiðtoga, Malcolm X. Á þriðjudaginn var sprengju varpað að bænahúsi Svartra Múhameðstrúarmanna í Harlem, og eldur brauzt út. Myndin sýnir slökkvilið ráða niðurlögum eldsins. Malcolm X verður jarðsettur á laugardaginn og íbúar Harlem hafa hótað að verzla ekki í búðum í hverfum, ef þeim verður ekki Iokað á morgun og á laugardaginn. Samtök nokkur munu krefja búðareigendur um framlög til heiðíirs Maleolm X og hóta skemmdarverkum, ef ekki verður gengið að kröf- er nú á kreiki í Harlem, aö eiturlyf jasalar standi á bak við mor® Malcolms X. UM næstu helgi, 27. og 28. febrúar, efnir Varðberg í Reykja- vík til ráðstefnu um „Kjaramál í Atlantshafsríkjunum.” Verður þar fjallað um nokkra þýðingarmikla þætti í viðleitni þessara ríkja til að bæta kjör þegna sinna. Meðal 4 fyrirlestra, sem fluttir verða á ráðstefnunni, mun Olav Brunvand aðalritstjóri frá Osló og fyrrum aðstoðar ráðherra, flytja erindi um „Efnahags- og kjaraþróun í austri og vestri”, en þeim málum er hann sérstaklega kunnugur, m.a. af ferðalögum sínum, bæði aust- an tjalds og vestan. Fjórir fyrirlestrar og um- ræðuhópar. Ráðstefnan verður sett af for- manni Varðbergs, Herði Einars- syni laugardaginn 27. febr. kl. 13,30 í Glaumbæ við Fríkirkju- veg og verður fyrirlestur Olav Brunvand síðan fyrst á dag- skránni þennan fyrri dag ráðstefn unnar. Þá mun einnig Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Iðn- aðarmálastofnunar íslands flytja erindi um „Hlut hagræðingar í efnahagsþróun og kjarabótum.” Siðari dag ráðstefnunnar munu þátttakendur snæða saman hádeg- isverð í Sigtúni við Austurvöll, en að honum loknum verður störf um ráðstefnunnar haldið áfram á staðnum. Mun Óskar Hallgríms- son flytja erindi um „Vinnutíma hér og erlendis, leiðir til styttrl vinnutíma” — og Magnús Óskars- son, vinnumálafulltrúi, fjalla um „Nokkur atriði varðandi samstarf launþega og vinnuveitenda í ná- grannaríkjunum,” m. a. ákvæðí vinnulöggjafar um sáttaumleitan- ir og lausn vinnudeilna, samstarfs nefndir og fræðslustarfsemi um verkalýðsmál. — Nánari upplýs- ingar um ráðstefnuna má fá f skrifstofu Varðbergs, þar sem dagskrá liggur frammi. Frh. á 13. síðu. Stúdentar gera verkfall í Madrid Madrid, 25. febr. (ntb-rt). 1 Um 2000 stúdentar við háskól- ann í Madrid ákváðu í dag að gera setuverkfall í mótmælaskyni við aðgerðir lögreglunnar gegn stúd- entum. . 1 *r Nýjar loftárásir á Vietcong-menn Saigon, 25. febrúar. (ntb-rt). Sprengjuflugvélar af gerðinni B-57 mannaðar bandarískum á- liöfnum gerðu í dag loftárásir á ýietcong-hermenn á svæöi einu um 95 km. norðaustur af Saigon. Tólf flugvélar tóku þátt í árás- Inni og er þetta fimmta daginn í röð sem loftárásir eru gerðar á ekæruliða í frumskóginum. Elugvélar aðstoðuðu einnig í dag hersveitir stjórnarinnar, sem tiermenn Vietcong héldu í umsátri ■i Bjnli Dinh héraði. Tólf Cam- þerra-vélar réðust einnig í dag Fram og FH sigruðu í gær TVEIR leikir fóru fram í I. deild í gærkvöldi. Fram vann Víking ■•neð yfirburðum, 31:20. Síðan sigr aði FH KR í miklum baráttuleik, 25:19. Sigur FH var verðskuldað- ur og Hjalti í markinu varði glæsi- tega. Nánar á morgun á íþrótta- siðu. ■| gær sigraði Sunderland Man- chester Utd. í deildrakeppninni, 1:0, mjög á óvænt. Liverpool vann IJirmingham 4:3, Leicester Fulham 5:1 og'Burnley Blackburn 4:1. ó svæði það hjá Phuc Tuc, þar sem Vietcong-menn hafa haft mik inn liðssafnað að undanförnu. Þá var gerð loffárás á stóran flokk Vietcong-manna á skógarsvæði við Thuy Ninh, um 105 km. norðvest- ur af Saigon. Bandarísku orrustuvélarnar og sprengjuflugvélarnar, sem mann- aðar eru bandarískum áhöfnum, gerðu fyrstu loftárásir sínar á Phuc Thuy á föstudaginn. Banda- rískum þyrlum var einnig beitt í dag í Vinh Ninh-héraði, í Saigon var skýrt frá því, að Nguyen Can Hoang verkalýðs- málaráðherra, sem er talinn náinn vinur Khanhs hershöfðingja, hefði sagt af sér. Ýmislegt er talið benda til þess, að stjórnmála- menn lilynntir Khanh verði hreinsaðir. Khanli hershöfðingi hefur verið skipaður farandsendi- herra og fór til Hongkong í morg- un, Fréttirnar um loftárásir Banda- ríkjamanna í dag bárust skömmu eftir að Phan Huy Quat forsætis ráðherra hafði sagt, að þjóðin í Suður-Vietnam liði of miklar þján ingar í baráttu sinni gegn Viet- cong og liún vildi „ljúka styrj- öldinni .með sóma.” Forsætisráðherrann bætti þvi hins vegar við, að skæruliðarnir mundu selja landið kommúnist- um. Vietcong-mönnum hafði mis- tekizt að túlka stríðið sem þjóðar uppreisn og gripu þeir nú "til beinnar árásar um leið og þeir hyettu til samninga. Tran Van D.o, varaforsætls- ráðherra og utanríkisráðherra, —- sagði í annarri ræðu, að Vietcong yrði að hætta árásum sínum og hörfa til Norður-Vietnam áður en hægt væri að ganga til samninga. Úr annarri myndinni í Boccacio 70. Þokkadísin Anita og vandlætarinn. Fjarst í eilíföar útsæ og Boccacio 70 sýndar Reykjavík, 25. febr. — OÓ. í næstu viku verður tekin til sýningar i Austurbæjarbíói kvik- myndin Boccacio 70. Myndin hef- ur undanfarin ár verið sýnd víða um heim og alls staðar hlotið mikla aðsókn og góða dóma. Upphaflega var Boccacio 70 þrjár stuttar myndir, sem allar fjalla um svipað efni. Hér verða tvær þeirra sýndar, en einni sleppt af óút- skýranlegum ástæðum. Það er ekki sök kvikmyndahússins hér, heldur þeirra, sem leigja út myndirnar. Önnur myndin sem hér verður sýnd, er eftir Fellini, með Anitu Ekberg í aðalhlutverkinu. Ér hún að flestra dómi bezt þess- ara • þriggja kvikmynda. Stjórn- andi hinnar myndarinnar er Vit- torio De Sica, aðalhlutverkið leik- ur • þar Sophia Loren. Þriðja myndin í seríunni er gerð af Vis- conti. Eins og fyrr segir, verður hún ekki sýnd hér. Með þessum tveimur myndum verður sýnd íslenzka kvikmyndin Fjarst í eilífðar útsæ, sem er fram leidd af Geysis-myndir h.f. og stjórnað af Reyni Oddssyni. Sýn- ingartími hennar er 20 mín. Er hún tekin í litum og Cinemascope. Myndin var sýnd á Listahótíðinni hér sl. vor, en síðan hefur hún ekki verið sýnd opinberlega. Þar sem íslenzk kvikmyndagerð er fjárhagslega mjög erfið og enginn möguleiki á að framleiða kvikmyndir í fullri sýningar- lengd; eins og nú standa sakir, hefur verðlagsnefnd fallizt á að taka megi sérstakt gjald fyrir kvikmyndasýningar þegar fslenzk- ar aukamvndir eru sýndar með. Sýnlst þetta elna lausnin til að kvikmyndagerð á íslandi geti staðið undir sér fjárhagslega og munu kvikmyndahúsgestir áreiðan lega ekki telja eftir sér að greiða tíu krónum meira fyrir aðgöngu- miða sína til að sjá stuttar inn- lendar myndir og jafnframt að koma stoðunum undir íslenzka kvikmyndagerð. * 4 26. febrúar 19§5 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.