Alþýðublaðið - 26.02.1965, Page 6
BAK VIÐ TJÖLDIN
Á BÖRPM í hinr>! sólríku Kalifomíu er komin fram ný tízka í sam-
bandi við whiskyc'rykkju, sem líka virðist vera að ryðja sér til rúms
á Rivícrunni. Nú er nefnilega farið að bera konum whiský með sama
lit og kjóllinn, sem þær eru í. Grænklædd kona fær grænt whisky,
rauðklædd rautt o. s. frv. Litarefnin em ekki sögð skaða whiskylð.
— ★ —
HEINRICH Liibke, forseti Vestur-Þýzka-
lands, er maður, sem með mikilli samvizku i
semi gerir skyldur sínar sem þjóðhöfðingi.
En nú er hann kominn með magasár, eins
og allir almennilegir stjórnmálamenn eiga
að hafa, og læknirinn hefur sagt við hann:
— Passið yður á köldu kampavíni.
Læknisráðum verða menn að hlýta, en jafn
framt hugnaðist forsetanum ekki að þurfa
að staíida glaslaus í boðum, og því hefur
hann horfið að því ráði að láta hita sína eigin flösku upp í 18 gráð-
ur, og getur hann því með góðri samvizku skálað við gesti.
— ★ —
TÓBAIÍSVERZLANIR í bænum Míles City í Montana í Bandaríkj-
unum liafa, vegna hinnar miklu hríðar lækna að sígarettureyking-
um, haidið fund þar sem ákveðið var, að þegar viðskiptavinur
hefði keypt 50 karton af sígarettum, skyldi honum afhent ávísun,
er gæfi honum ré#fc til að fá tekna ókeypis röntgenmynd af
lungum sínum.
— ★ —
ÞAÐ eru víst fáir, sem neita því, að Johnson
forseti finni í hjarta sínu til með meðbæðr-
um sínum. Hér er nýtt dæmi þar um: Hon-
um bárust fregnir um, að útvarps-fréttamað
urinn Bill Costello, sem í tuttugu ár hefur
starfað í Hvíta húsinu, væri alvarlega veik-
ur og hefði verið lagður inn á sjúkrahús.
Hann fór þegar í stað til frú Costello, fékk
hendi lyklana að hvíta kádiljáknum sínum
og sagði:
— Hérna, þér rnegið hafa bilinn á meðan maðurinn yðar liggur
á spítalanum, svo að þér eigið hægt með að heimsækja hann.
Þaö var raunar þessi sami Bill Costello, sem Johnson sagöi einu
sinni við þessi heimspekilegu orð:
— Afskaplega er það gott, að við mannfólkið skulum líta hlutina
mismunandi augum. Annars mundum við allir óska okkur sömu
konunnar.
- ★ -
GEORGES Bidault, fyrrverandi forsætisráð
herra Frakklands, er nú 65 ára gamall og
býr í útlegð í Brazilíu vegna aðgerða sinna
gegn de Gaulle. Hann telst landráðamaður
vegna þeirra athafna sinni. Fyrir skemmstu
þurfti hann á skírnarvottorði sínu að halda
og sneri sér af því tilefni til franska sendi-
ráðsins í Brazilíu og bað um að- fá slíkt
vottorð útgefið, en þar fékk hann eftirfar-
andi upplýsingar:
—»— Samkvæmt tilskipun frá 1946 er oss bannað að gefa út nokk-
urt afrit af skírnarvottorðum til landráðamanna.
Og það var ekki alveg laust við illgimi í rómnum á viðmælanda
Bidault, er hann benti hinum fyrrverandi forsætisráðherra á, að
tilskipunin væri undirrituð af Georges Bidault, sem þá var utan-
ríkisráðherra.
— ★ —
HVER er hin amerísku „.satatussymból" fyrir árið 1965?
Blað nokkurt heíur gert könnun á þessu máli og hefur komizt m. a.
að eftirfarandi niðurstöðum:
Útisundlaug er ekki lengur fín. Sundlaugin á að vera inni.
Einu ferðalög, sem nú er hægt að státa af við heimkomuna, eru
ferðalög til Egyptalands.
Eigi maður sitt eigið hús á það að vera með sér baðherbergi fyrir
hvem fjölskyldulrm, og gufubaði fyrir húsbóndann. Nú verða menn
að eiga minnst þrjá bíla, skíðabúnað — og bát. Kjölturakkar eru
OK, en verða að vera með aprikósulit! '
0 26. febrúar 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Reyna a5 stöðva
ofsalega fjölgun
heilagra kúa
HÓPUR amerískra dýralækna er
kominn iil Indlands til þess að
reyna að leyia eitt sérlegt vanda-
mál.
Þeir *iga að stöðva hina ofsa-
legu fjölgu* „heilagra kúa“. Þær
eru þegar orðnar 40 milljónir að
tölu — og eru ríkinu mikil byrði.
Þær gegna svo miklu hlutverki í
trú hindáa, að það er ekki aðeins,
að ekki megi drepa þær, heldur
má tæpast ieggja nokkrar hömlur
á ferðafrelsi þeirra. Þær mega
vera hvar, sem þær vilja, og það
er t. d. ekki óalgeng sjón í stór-
borg, eins og Bombay, að sjá helj-
armikla kó,- sem lagzt h?fur mak-
indalega niður á sporvagnstein-
ana og veldur gífurlegum glund-
roða í umferðinni.
Indverjum hefur ekki tekizt að
finna ráð — og því hefur landbún-
aðarráðuaeytið sent eftir Ame-
ríkumönnum, sem eiga að koma á
takmörkun kálfeigna — en þó vel
að merkja með þeim hætti, að trú-
artilfinningar Indverja særist ekki
þar af.
Fyrir skemmstu var haldin mikil sýning á ferðatöskum og hand
töskum á hóteli einu í London og mun það vera árlegur við-
burður. Taisverða athygli vakti taskan þríþyrnda hér á mynd-
inni, sem hægt er að nota til að aðvara aðra ökumenn um, að
bilað sé hjá manni, ef slíkt kemnr fyrir. Hún myndar sem
sagt slíkt aövörunarmerki.
Rafeindahjúkrun-
arkonur í Japan
í JAPAN, eins og víða annars
staðar, er skortur á hjúkrunarkon
um, en nú hefur próf. Kazuo Kita
mura við Juntendo háskólasjúkra-
húsi-3 fundið leið til að spara
vinnu. Hann hefur fundið upp
sjálfvirka hjúkrunarkonu. Þetta
er rafmagnstæki, sem getur mælt
hita og talið slagæðaslög í 288
sjúklingum samtímis. Tæki þetta
hefur þegar verið tekið í notkun
á einu sjúkrahúsi í Tókíó.
En auðvitað gerist þetta ekki al
veg sjálfkrafa — sjúklingarnir
verða sjálfir að hjálpa til. Fjór-
ffliMiai
Þetta skal ég muna þér.
' MilUt
um sinnum á dag fá þeir tilkynn-
ingu um það um talkerfi hússins,
að tími sé kominn til að taka púls
inn og mæla hitann, og verður
sjúklingurinn að stinga mælinum
upp í sig og setja slagæðarmælinn
á brodd litla fingurs. Bæði hita-
mælirinn og slagæðarmælirinn
senda niðurstöðurnar gegnum
leiðslur til rafeindatöflu, sem
höfð er í sérstöku herbergi.
Ásamt númerinu á rúmi sjúk
lingsins fara svo tölurnar í
skýrsluvél, sem skilar vélritaðri
skrá um niðurstöðurnar á örfáum
mínútum.
Hitamælirinn líkist lítilli flautu.
Hann er 10 sentímetrar að lengd
og hálfur sentimetri í þvermál.
Oddinum einum er stungið upp í
munninn og hitinn mældur mjög
nákvæmlega á skömmu tíma. Þeg
ar sjúklingurinn stingur litla fingri
inn í sjálfvirka slagæðarmælinn,
kviknar á rafmagnsperu. Ljós-
styrkurinn, sem fer gegnum fingur
broddinn, breytist ..eftir blóðmagn
inu, sem um fingurinn fer. Það ér
breytilegt . yið. hvert .. æðarslag.
Þessi síbreyting, er sýnir æðaslög
Framhald á 10. síðu.
Skaðahætur
BRÍDPORT, lávarður, — bróður-
sonar-sonur Nelsons aðmíráls,
hefur fengið greiddar 6 milljónir
króna frá ítalska ríkinu í skaða-
bætur fyrir jarðarpart einn á
Sikiley, sem tekinn var eignar-
námi fyrir þrem árum.
Þetta gerðist í sambandi við
endurbæturnar í jarðnæðismál-
um bænda á Sikiley, að teknir
voru hinir 12.000 hektarar „her-
Framhald á 10 síðu.
Héri skýtur-
veiðimann
ÞAÐ rar blaðakóngurinn '5
Northeliíf lávarður, sem eitt H
sinn sagði að það væri eng ji
in stórfrétt, að hundur biti K
rnann, en hins vegar væri j§
það forsíðufrétt, ef maður m
biti hund.
En hvað þá um héra, sem J
skýtur veiðimann?
Það gerðist nýlega skammt ;J
frá Amiens í Fs-akklajidi. B
Veiðimaður hafði miðað á 1
héra í skóginum og sært i
hann iitillega. Hérinn lá 1
kyrr — og veiðimaðurinn B
gekk til hans og haílaði 'M
byssunni upp að tré- Hér ®
inn stökk snögglega upp í B
ofsahræð lu — datt á byss-
una, skotið reið af og hæfði
| veiðimanninn í fótlnn.
j Hérinn komst lífg a.f, en M
! þvi miður hefur hann ekki' p
; getað sagt öðrum hétum B
l.frá afreki sínu, svó að hægt fi
|* væri að hylla hann sem' jj
j hetju.
ÉmmwmmmmmmámmmmmM