Alþýðublaðið - 28.02.1965, Side 10
I
1 ________________________________________
SKYNDISALA - SKYNDISALA ■ SKYNDISAIA
Opnum í fyrramálið skyndisölu á stökum
jökkum - Verð aðeins frá 750 kr.
GEFJUN-IÐLJNN kirkjustræti
SINFÓNÍA
Framhald af 7. síðu
getur því verið skemmtileg eða
leiðinleg, þægileg eða óþægileg,
eða máske góð eða slæm. Hvað
sem slíkum bollaleggingum. líður
þá „meinar” tónlist alls ekki
f neitt fram yfir það að gleðja
; hjörtu okkar, eða réttara sagt
i: snerta þá strengi tilfinninga sem
j sál okkar hefur að geyma. Sin-
fóníuhljómsveitin er eign allra
r íslendinga og ef þessir „létt
klassísku” tónleikar mega verða
til þess að vekja athygli og áhuga
fólks á liinni venjulegu starf-
semi hljómsveitarinnar þá þjóna
þeir tilgangi sínum. En vonandi
verður betur unnið að undirbún-
ingi aukatónleikanna í framtíð-
inni en að þessu sinni. ,
Á fyrri hluta efnisskrárinnar
var tónlist úr Carmen eftir Bizet,
tónlist úr Svanavatni Tchaikov-
skys og Rhapsody in Blue eftir
Gershwin. Ásgeir Beinteinsson
hafði með höndum einstaklings-
hlutverkið í því síðástnefnda og
virtist hann skila því vel — þeg-
ar til hans heyrðist. Verk þettá
er skrifað fyrir píanó og hljóm-
SENDISVEINN
óskast. — Vinnutími fyrir hádegi.
AlfsýðublaðiS Síml 14 900.
10 28. febrúar 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
sveit, en ekki hljómsveit með
píanói. Skilningur stjórnandans
virtist vera hið síðarnefnda og
opinberaðist hann einna helzt í
ofnotkun á málmblásturshljóð-
færunum. Svo mjög kvað að þess
ari yfirkeyrslu að oft voru handa
hreyfingar einleikarans eini vott
ur þess að hann væri með í spil-
inu.
Síðari hluti tónleikanna hófst
á tveim þáttum úr Karelia svítu
Sibeliusar og þar sýndi hljóm-
sveitin sinn bezta leik þetta
kvöld. Svíta úr söngleiknum
„The King and I” eftir Richard
Rodgers og Divertissement eftir
Jacques Ibert voru seinustu
verkin á éfnisskránni og voru
þau bæði ósköp þægileg og það
síðara var stundum jafnvel bros-
legt. Hljómsveitin hafði greini-
lega búist við góðum viðtökum,
sem hún og sannarlega fékk, og
hafði á takteinum hressileg auka
lög. Buketoff og Sinfónían eiga
þakkir skildar fyrir þessa tón-
leika þó fremur verði þær fyrir
viljann en verkið að þessu
sinni.
Jón S. Jónsson.
Á bókamarkdð
Framhald af 7. síðu
erlendum bókum og innlend-
um. En á sumum útgefendum
má skilja að einu gildi hvernig
þetta verði leiðrétt. Þarna skil-
ur samt í milli. Tollfrelsi er
réttmæt krafa íslenzkrar bóka-
útgáfu, en hún á engan rétt á
^tollvernd" gegn erlendum bók
menntum. Það væri verri villa
hinni fyrri að taka upp nýjan
toll á erlendar bækur; hins
vegar gæti tollfrelsi reynzt inn-
lendri bókagerð ómetanleg
lyftistöng eins og oft er bent á.
Okkur er hvortveggja nauðsyn,
öflug eigin bókmenning og sem
mest og bezt kynni af bók-
menntum annarra þjóða. Hvor-
ugu verkefninu mega bóksalar
né bókaútgefendur bregðast.
Ó. J.
SMUBSTðBII
Sætún! 4 - Sfmí 16-2-27
Bíllina «r mnrSiir ojdtt og nl
■riíunt *Umt fegondir
SIGURJON BJÖRNSSON
Úr hugarheimi
Þættir um afbrigðilega og klíniska sál-
fræði
Yfirlit — Rannsóknaraðferðir —
Kenningar — Sálsýki — Sállækn-
ingar — Geðvernd.
Verð ib. kr. 300,00 (-f- söluskattur).
Verkfræðingur óskast
Staða bæjarverkfræðings á ísafirði er hér með auglýst til
umsóknar.
Krafa um launakjör og upplýsingar um nám og störf
fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl. Staðan veitist þá strax
eða ettir samkomulagi.
ísafirði, 25. febrúar 1965.
Bæjarstjóri.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í sölu á eftirfarandi búnaði til
borgarsjúkrahússins í Fossvogi:
Sjúkrarúmum .Handklæðum
Æðardúnssængum Glasaþurrkum
Koddum Skurðstofulíni
Sængurfataefnum Náttfataefni o. fl.
Útboðsskilmála skal vitja í skrifstofu vora,
Vonarstræti 8.
Innkaupastofnun Éeykjavíkurborgar.