Alþýðublaðið - 28.02.1965, Page 16
v**v*.t-
•■ufCÁtmtatM
iwM
.V&íi.liixktýl
" ■**».wíjéft* ;
r*X*f*4ÍÍ<
M--:-
■: .
VARÐBERGS
RÁÐSTEFNA
RÁÐSTEFNA Varffbergs heldur
áfram í dag og hefst með hádegis-
fundi kl. 12 í Sigtúni. Þá flytja
þeir erindi Gskar Hallgrímssou
um styttingu vinnutíma og Magn-
ús Óskarsson um nokkur atriði uni
samstarf launþega og vinnuveit-
enda í nágrannarikjunum.
Teknar eignar-
námi
DJAKARTA, 27. feb.
Stjómin í Indónesíu hefur tekið'
bandarískar gúmþlantekrur í
landinu eignamámi, að því er
tilkynnt var í dag.
Reykjavík, 27. febr. - OÓ.
ÍSINN fyrir Norðurlandi hefur
nú þokast lieldur nær land
inu, þótt ekki sé mikil hreyfing
á honum. Hæg norðanátt var
fyrir öllu landinu í morgun og
er búist við sama veðri í dag.
ísinn virðist hvergi alveg
landfastur. Kl. 11 í morgun
barst Veðurstofunni skeyti frá
Grímsey. Þar liggur ísbreiðan
frá norð-vestri til austurs 3-5
sjómílur frá Iandi og hefur
færst töluvert nær síðan í morg
un. Landfastir jakar eru allt
kring um eyna.
KI. 8.30 í morgun barst
skeyti frá varðskipi, þar sem
tilkynnt var að ísinn næði frá
Rit að Straumnesi. Skipum er
illfært þarna um í björtu. Við
Straumnes er að sjá í radar
þéttan ís út til hafs. Talið er
varhugavert fyrir skip að sigla
norður fyrir Horn. Frá Látra-
vík var tilkynnt að ís væri land-
Þetta kort var gert af ísnum
sl. föstudagskvöld eftir ískönn
unarflug landhelgisgæslunnar.
fastur frá Hornbjargi, svo langt
sem séð verður austur, en
skyggni er slæmt.
ÍJtlit er fyrir að norðan kaldi
verði fyrir Norðurlandi á morg-
un, en hægviðri á mánudag.
Ekki er hægt að segja um að
svo stöddu hver hreyfing verð-
ur þá á ísnum.
WWWMVWWWWWtMVmWWWtWMWWVWWWMWWWVMMMMWVWWWlWW
USA kveöst vilja
takmarka aðgerðir
Washington, 27. febrúar,
(NTB - Reuter)
BANDARÍSKA stjórnin gaf í dag
út hvíta bók um Víetnam-dciluna
og sakar þar Noröur-Víetnam um
HVWWWMMMVWVWWMMMW
WWWVMWMWMWVMMMMM
að standa fyrir árásum í Suður-
Víetnam. Stjórnin kveðst fús til
að takmarka hernaðaraðgerðir
sínar í Suður-Víetnam ef friður
verði tryggður.
í hinni hvítu bók segir, að það
sé á valdi stjórnarinnar í Hanoi
hvort íriður verði tryggður eða
styrjöldin verði æ ofsalegri. Sagt
er, að styrjöldin sé komin á nýtt
stig. Æ fleiri hermenn, tæknisér-
fræðingar og pólitískir flugumenn
streymi frá Norður-Víetnam til
Suður-Vietnam. Vopnaflutningar
aukist sífellt.
Sagt er, að í Suður-Víetnam séu
32 þúsund Vietcong-hermenn, en
þeir hafi verið 20 þúsund 1961.
Auk þess séu í landinu 60-80 þús-
und skæruliðar, sem beitt sé öðru
hverju.
Frh. á 13. síðu.
KENNEDYMYND-
IN Á AKUREYRI
Akureyri, 27. febr. - GS
Kvikmyndin um Kennedy, —
Years of lighting Day of Drums,
— var frumsýnd í gær í Borgar-
bíói. Áður en myndin var sýnd
flutti mr. Whiting, sérlegur full-
trúi bandaríska ambassadorsins,
stutt ávarp. Húsfyllir var við frum
sýninguna og vakti myndin mikla
athygli.
Tvær sýningar verða á henni í
dag.
Bridgekvöld
Árshátíð ASþýðuílokksfélagsins nk. laugardag:
Óvenju fjölbreytt
skemmtiatriði
ÁRSHÁTÍÐ Alþýðuflokksíélags
Reykjavíkur verður í Iðnó næst
komnadi laugardag 6. marz og
hefst með borghaldi kl. 7.30 e.h.
Verður íslenzkur matur á borð-
um að venju- Hátíöin verður sett
af formanni félagsins Erlendi Vil
hjálmssyni, Emil Jónsson formað-
ur Alþýðuflokssins flytur ávarp
og Ilelgi Sæmundsson mælir
f.vrir minni kvenna. Þá munu
þeir Róbert og Rúrik annast for
isöng í almennum gamanvísnasöng
en gamanvísurnar eru gerðar í
þessu tilefni af liinum þekkta og
vinsæla Kankvís í Alþýðublaðinu
Fer síðan fram danssýning á veg
um Dansskóla Hermanns Ragnars
því næst flytur Loftur Guðmunds
son rithöfundur frumsaminn þátt
er nefnist Á flokkshorninu og loks
munu þeir Róbert og Rúrik flytja
nýjan gamanþátt. Að lokum verð
ur stíginn dans fram eftir nóttu.
Árshátíðir Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur hafa alltaf verið vel
vinsælar og fjölsóttar, enda vel
Framh. á 13. síðu.
WMMWMWMMMMMMMW)
Íí GÆR hófst ráðstefna varð j’
bergs um kjaramál Atlants !!
ríkjanna í Glaumbæ. Þar <;
flutti Olav Brunvand, aðal |!
ritstjóri frá Osló og fyrrver !;
andi aðstoðarráðherra, er j!
indi um efnahags- og kjara !;
þróun í austri og vestri og <;
Sveinn Bi4örnsson fr'atm- J!
kvæmdastjóri talaði um hlut !;
hagræðingar I efnahagsþróun j!
og kjarabótum. Á myndinni !;
eru Birgir Finnson, Gylfi Þ. j!
Gíslason og Olav Brunvald- !<
(MyndíJ.V.)! >
-jjf Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur heldur Bridge-kvöld í Lindarbæ
annað kvöld, mánudag, kl. 8 stundvíslega. Þátttaka er öllum
* Iielmil og eru alíir Bridge-áhugamenn eindregið hvattir til að sækja
kvöld þetta. ’
fWWWWWWWWTWWWWWWWWWWWWyrwWWWWWWWWr
AÐALFUNDUR
FULLTRÚARÁÐS
Aðalfundur Fulltrúaráðs Al-
þýðuflokksins í Reykjavík
verður haldinn næstkomandi
miðvikudag, 3. marz, klukk-
an 20.30 í Alþýöuliúsinu við
Iíverfisgötu. ;
Fulltrúar eru hvattir til að
fjölmenna.
A.'fcA.AA.t.ftÆ
|