Alþýðublaðið - 02.03.1965, Blaðsíða 5
Hðfð ekki undðn ðð bræðð
Akranesi, 1. marz Hdan.
Stöðugt berst loðna til Akra
ness og er ástandið þannig nú
að Síldarverksmiðjan hefur
ekki undan að bræða. Búið er
að aka talsverðu magni á tún
og fæst ekki að láta meira þar-
Bátrnir fá nú einungis að landa
eftir því sem þróarrými losnar
í morgun losnaði ein þró og
landaði Haraldur þá um 2000
tunnum og Heimaskagi land-
aði í kvöld 900 tunnum. Verk
smiðjan er nú að að vinna úr
beinum og hefst bræðsla á
loðnu í fyrsta lagi á miðviku
dagskvöld eða fimmtudagsmorg
un. Frá 13. feb. hefur Síldar-
verksmiðjan alls tekið á móti
51.500 tunnum >af loðnu og hef
ur Höfrungur II lagt mestan
afla á land 22.600 tunnur- Auk
þess hefur hann landað tals-
verðu magni í Vestmannaeyj
um.
Allir Akranesbátar eru nú
á sjó í dag og þeir bátar, sem
undanfarið hafa róið með línu
hafa nú tekið net.
>MMWMtW»WWWWMMMWWMMWtMtMWMtWWMMMIMMIMMWMIWWMMMWMWIWWI
rðar deilur um
snæðismálin
Dagsbrún segir upp
samningum 5. júní
Keykjavík, 1. marz - EG
MIKLAR umræður urðu um hús-
næðismál í efri deild Alþingis í
dag. Hóf þær Iíarl Kristjánsson
(F), sem mælti fyrir tillögu um að
ekki skyldi greiddur launaskattur
af kaupi starfsfólks í mjólkurbú-
lun og sláturhúsum.
Karl og aðrir Framsóknarmenn
f deildinni sungu síðan sitt gamla
lag um, hve allt hefði ágætt verið
1 húsnæðismálum í tíð vinstri
stjórnarinnar, en hve illa .væri
feomið nú.
Eggert G. Þorsteinsson (A)
fevaðst telja óeðlilegt, að stofnað
Skyldi til umræðna um húsnæðis-
málin við þriðju umræðu frum-
varps til laga um launaskatt. Hann
hrakti ýmsar fullyrðingar Karls
Kristjánssonar, og benti jafnframt
á að ekki gæti það eðlilegt talizt
að tala um að húsnæðismála-
etjórnarlánin væru nú of lág, og
mæla um leið fyrir tillögu, eins og
Karl gerði, sem hefði það beint í
för með sér, ef hún yrði samþykkt,
að minna fé rynni til húsnæðis-
mála, en ráð var fyrir gert í júní-
samkomulaginu.
Samanburður á ástandinu í hús-
næðismálum nú og á tímum vinstri
stjórnarinnar yrði núverandi ríkis-
stjórn aldrei óhagstæður. Þá hefðu
hámarkslánsupphæðir verið 100
an aldrei hefði þó verið hægt að
lána meira en 70 þúsund, og hefði
upphæðinni þá verið fjór- eða
fimm skipt, en nú þekktist slíkt
ekki.
Eggert sagði, að veigamiklar
breytingar hefðu átt sér stað á
tekjuöflun húsnæðismálastjórnar í
þá átt að gera tekjur hennar trygg
Framh. á 13. síðu.
Aðalfundur Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar var haldinn í
Iðnó sunnudginn 28. feb. sl.
Formaður félagsins, Eðvarð Sig
urðsson, flutti skýrslu stjórnar-
innar. í upphafi skýrslunnar
minntist hann 42 félagsmanna er
látist höfðu á árinu. Sérstaklega
mintist hann Ólafs heitins Friðrikg
sonar er lézt í nóvember sl. Ólaf
ur var í Dagsbrún frá árinu 1915
og til dauðadags og um árabil
einn af aðalforystumönnum félags
ins- Fundarmenn heiðruðu minn
ingu hinna látnu félaga með því
að rísa úr sætum.
Heildarsjóðsaukning félagsins
á árinu nam kr. 2.635.639.32. Þar
af var tekjuafgangur á reikning
um Styrktarsjóðs Dagsbrúnar-
manna kr- 1.733.255,27.
Bókfærðar skuldlausar eignir
sjóða félagsins námu í árslok kr.
9.526.000.00.
Á árinu 1964 fékk 231 félags
maður greiddar bætur úr styrkt
arsjóði Dagsbrúnarmanna er námu
samtals kr. 1-252.595.00 og höfðu
bótagreiðslur þá meira en tvöfald
ast frá árinu áður, er var fyrsta
heila starfsár sjóðsins. Bókfærð
ar eignir Styrktrsjóðsins nema nú
kr. 4.979.000.00
Að lokinni skýrjslu formanns
voru reikningar félagsins lesnir
og samþykktir-
Fundurinn samþykkti að árgjöld
félagsmanna skuli á árinu 1965
vera hin sömu og þau voru sl.
ár, þ.e. kr. 700.00 fullt félag,'gjald.
Annar dagsskrárliður fundarins
var tillaga frá stjóm og trúnaðar
ráði um uppsögn samninga. Að
loknum umæðum var tillagan sam
þykkt einróma af fundarmönnunt
Tillagan fer ’hér á eftir:
,,Aðalfundur Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar, haldinn í Iðnú
28. feb. 1965, samþykkir að segja
upp öllum samningum félagsins
við atvinnurekendur, sem bundn
ir eru við 5. júní n.k.
Jafnframt leggur fundurinn á-
herzlu á, að þeir þrír mánuðir
sem enn eru til stefnu verði vel
notaðir af öllum aðilum til nýrraí
,samningagerðar.“
Þá var á fundinum lýst stjórni
ai’kjöri, er fram fór í janúar sl.
Framboðsgrestur var útunninn 15.
jan. sl. og hafði þá aðeins bor-
ist ein tillaga um stjórn og aðra
trúnaðarmenn félagsins, frá upp-
Framhald á 13. síðu.
Helgileikir og ]
herranœtur
Stúdentaráð hefur gengizt fyr
ir nokkrum fyrirlestrum fyrir al-
menning í vetur. Næstkomandi
miðvikudagskvöld, 8. marz, mun
Sveinn Einarsson leikhússtjóri
flytja fyririlestur, sem hann kallar
„Helgileikir og Hcrranætur".
Fjallar hann um upphaf íslenzkrar
leiklistar og fyrstu kynni hennaí
af erlendri leikli't. FyrirlesturinH
verður í 1- kennslustofu Háskól-
ans n.k. miðvikudagskvöld og hefsí
kl. 21, og er öllum heimill af>-
gangur meðan húsrúm leyfir. 1
ráði er, að þessum fyrirlestrurn
verði haldi áfram, og mun Björií
Th. Björnsson listfræðingur flytja
fyrirlestra síðar í marzmánuði.
(Féttatilkynning fá S-H.í.)
Með hinu nýja efni BONDAGLASS getið
þér nú sjálfir tekið að yður hvers konar
smáviðgerðir á heimili, verkstæði og bfl.
Svo sem að gera við og steypa í göt og
sprungur í handlaugum, baðkerum, vatns-
leiðslum og rörum, ryðblettum, þakrenn-
xun og alls konar ílátum.
Við bílinn er hægt að nota BONDA-
GLASS til hvers konar viðgerða á ryð-
blettum — jafnvel steypa með því heilu
stykkin I ryðbrunnar hurðir og aurhlífar.
BONDAGLASS fæst í 3 mismunanðl
stærðum: 1. MINI-PAKK til smærri við.
gerða. 2. BEPAIR KIT, hentugt til stærrfe
viðgerða. 3. BONDAPASTE fyllir, í þein*
tilfellum þar sem ekki þarf að nota glass*
_ fiber mottu, s.s. spartl til að fylla í ójöfn-
ur, minniháttar sprungur, ryðgöt o. fl.
Heildsöiubirgðir. — Sendum í póstkröfife
— LEITIÐ UPPLÝSINGA_______ |
BONDAGLASS er ekki dýrt- G[su JÓNSSON og CO. H.F.
BONDAGLASS er auðvelt og handhægt í meðförum skúlagötu 26 siMiimo
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 2. marz 1965 $