Alþýðublaðið - 27.05.1965, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 27.05.1965, Blaðsíða 8
ÓP OG HRINUR, — grátur og gnístran tanna, — sæla og sorg Slík hafa jafnan verið einkenni l flestra barosfæðinga frá upphafi j vega. Heldur mun þó hafa dregið j úr sárustu hljóðunum í seinni tíð ; einkum fyrir tilstilli nýtízkulegra i fæðingar. tofnana víða um heim | — en hvernig skyldi ástandið í ’ þessum efnum hafa verið áður en ; núiiminn gekk 1 garð? Áður en læknar höíðu ráð á kvalastflandi meðölum, sótthreinsunarlyfjum , — og jafnvel lækniskunnáttu svo i að nokkru næmi? Það er næsta | auðvelt að geta sér til um það- : Og því má einnig geta nærri, að ; æði margar konur hafa mátt leggja líf sitt í sölurnar fyrir börn i sín áður en hin fullkomna fæðing ! arhjálp núiímans kom til sögunn i ar. | Allir kannast við keisaraskurð. j Og þeim fer sífjölgandi blessuðum ! frúnum og „lausakonunum", sem ; orðið hafa að gangast undir hann | og þeim mun fleiri eru börnin, ; sem komin eru í heiminn fyrir ; kans tilverknað. Já, — keisara | skurðurjnn er blátt áfram ómiss ; andi skurður og þó nafnið sé væg ast sagt hrollvekjandi, kvað hann ! ekki vera svo „afskaplegur11 nú orðið. En því gerum við keUaraskurð inn að umtalsefni, að nú í ár _ anno 1965 — er einmiit liðin , heil öld frá því að fyrsta skurðað igerð þeirrar tegundar var fram kvæmd á landi hér- Og í tilefni þess hefur Alþýlðublaðið komið að imáli við nokkra læknisfróða menn og fræðzt heilmikið um þennan áfanga ársins 1865, — sem lík jlega má með réttu teljast „bylt ;ingarár“ á sviði íslenzkra lækna vísinda. APbvðublaðsmenn. skyggndust eínnig í gömul blöð til að for vitna.st um fyrs* a keisaraskurðinn og skemmtu sér ekkj meira en svo. En frá honum aetlum við nú að '•egia ykkur lítilleffa. Ps'- hafandi konum er bó ráðlagt að íe'-a ekki miklu lengra. ★ Sectio Cæsarea. Hjnn 4- júlí 1865 birtist eftir farandi frásögn í Þjóðólfi, — því gamla og góða blaði: „Sectio cæsarea eður keisara skurður er hið síðasta og ítrasta úrræði er læknisfræði allra landa ráðgerir og hefur ráðgert um hinar seinni aldir í barnsburðar jneyf^ þegar fæðingin er álitin ó Imöguleg en fóstrið þó allifandi jí móðurlífi, *il þess að bjarga jfóstrinu Hfandi og ósködduðu, og i einnig lífi móð'urinnar, ef svo vel eæti tekizt.. En það er hvort tveeeía að næsta sialdan hefur að borið að grípa þyrfti til þess Jneyðarúrræðis lækni'fræðinnar jenda hefur og jafnan bótt hið jmest.a vandhæfi á að viðhafa keis ■ araskurðinn, en hann er í því fölginn, að skera upp líf hinnar lifandi móður til þess að ná fóstr inu lifandi. Svo segir í nýjustu og beztu ritum læknisfræðinnar um þetta mál, að eftir dæmum þeim, er menn hafi, þá muni að eins sjötta hver móðir hafa lifað af eftir keisaraskurð, en oftar lifi barnið ef fóstrið er vel skipað og með fullu lífi, þegar skurðurinn er gerður. Það mun áreiðanlegt, að enginn viti eða þekkf dæmi til þess fyrr né síðar, að keisaraskurðinum hafi verið beitt nokkru sinni hér á landi fyrr en nú hér í Reykja vík, 24. f m„ er ógiptur kvenmað ur, Margrét Arnljótsdóttir að nafni á 3]L. ári, dvergur að ölium skapnaði um 18 (?) þumlungar á hæð, varð barnshafandi og kenndi sín eða lagðist á sæng 23. f.m.- Yfirsetukonan kvaddi þegar landlækninn, dr. Hjaltalín, til að skþða sængurkonuna, en hann sendi þegar eftir Gísla kansellíi Hjáimarssyni og kvaddi einnig með sér til ráðuneytis báða lækn ana af herskipinu Pandora, Chast ang yfirlækni yfir allri fiskimanna útgerð Frakka og Dexier herskips lækni, og voru þar að auki við staddir fjórir þeirra fimm stúd enta, er nú lesa læknisfræði hjá landlækninum. Engirin þeirra 4 læknanna hafði sjálfur verið við staddur keisaraskurðar-barnsburð fyrr en nú, en öllum kom þeim um það ásamt, er þeir höfðu kann að skapnað sængurkonunnar, að hún gæti ekki fætt, og var hér því eigi nema um það tvennt að skipta, að bæði móðir og fóstur hlyti að deyja eftir löng og mikil harmkvaeli hennar, eða að ráðast í keisaraskurðinn, til þess að stytta þjáningar móðurinnar og bjarga lífi beggja, ef svo vel gæti tekist. Skiptu þá læknarnir niður ýerkum með sér, hvað hver skyldi Ivinna. Chastang og Dexier ,,kloroformiseruðu“ móðurina (gerðu' hana tilfinningarvana og aflvaná með „kloroform“,) dn Hjaltalín gerði náraskurðinn en Gisli fljálmarsson gekk síðan til og skar /uppí móðurlífið. Varð móðirin þá léttari að meybarni með fullu lífi, er óx 14 merkur. Voru umbúðir gerðar um skurð ar sárin. Leið þá smám Saman kloroforms vanmegnið af móður inni, og varð hún hress og heilsað ist eftir öllum hætti allt fram á hina næstu nótt, en þá fór hún að fá viðvarandi hóstakjöltur með ógleði, svo nóttin varð hennj ó kyrr og næðislítil- Þegar leið á næsta dag varð hún rænuskert og þar með allri líf:von lokið( enda skildi hún við hið sama kvöld um nát'mál, Barnið var skírt að móð urinni lifandi: Júlíana Margrét. Það lifir enn og dafnar eðlilega.“ ★ Fyrstu svæfingar. Eins og marka má af fyrr greindri frásögn hafa svæfingar verið farnar að tíðkast við skurð aðgerðir hérlendis, er fyrsti keis araskurður á í landi var fram kvæmdur. Þá höfðu erlendir lækn ar notað kloroform um langt skeið og á þanr. hátt firrt mikinn fjölda af sjúklingum óþægindum og van líðan. En sá læknir, sem átti heið urinn af því að innleiða þessa markverðu nýjung læknjsfræðinn ar hér á landi, var Jón Finsen, sem hóf læknisstörf í au'durhér aði Norðuramtsins svokallaðat Ey jafjarðar og Þingeyjarsýslum) árið 1856- Hóf hann notkun kloroforms skömmu eftir komu sína í héraðið og þó*ti það gefa góða raun. Jón Constantín Fin'-en var sonur Ól. H- Finsens sýslumanns og síðar stiftamtmanns, fæddur í Reykja vík 1826 og lauk embættisprófi í læknisfræði frá Khöfn 1855. Hatm starfaði hér heima eftir embætt i próf en fluttist til Jótlands 1867 og lézt í Nýköbing á Falstri 1885. Jón var vel liðinn og hlaut þessa umsögn látinn: „Hann var manna gervilegastur og mikils metinn af öllum, sem kynntust honum". ★ Brautryðjendur í læknastétt. Úr því að víð höfum rætt svo „Þegar leið á næsta dag, varð hún rænuskert og þar með allri Iífsvon lok- ið, enda skildi hún við hið sama kvöld um náttmál. Barnið var skírt að móður- inni lifandi: Júlíana Margrét. Það lifir enn og dafnar eðlilega“. Svo segir í frásögn af fyrsta keisaraskurði á íslandi. Texti: Guðjón Albertsson g 27. maí 1965 - ALÞÝÐUBLADIÐ vítt og breitt um hjð upphaflega efni( fyrsta keisaraskurðinn á ís landi, væri ekki úr vegi að gera nokkra grein fyrir þeim tveim læknum, sem þar komu helzt við sögu, Jóni landlækni Hjaltalín og Gísla Hjálmarssyni. Jón var talinn einn merkasti læknir landsins um sína daga, fæddur 1807, sonur sr. Jóns Odds sonar Hjaltalíns prests í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, útskrifaðist úr Kaupmannahafnarháskóla 1837 og varð dr. med- við Kílarháskól ann 1839. Hann var um hríð her læknir við danska herinn, síðan varð hann landlæknir 1855, — eftir andlát Jóns læknis Thorsten sens. Jón Hjaltalín andaðist ár ið 1882, 75 ára að aldri- Gísli Hjálmarsson, — sá sem framkvæmdi fyrsta keisaraskurð inn ásamt dr. Jóni, — var einn ig nafnkunnur læknir, fædur 1807 —jafnaldri dr. Jóns, sonur hins velþekkta klerks og héraðshöfð ingja sr. Hjálmars Guðmundsson ar, síðar á Hallormstað. Gísli var lengst af starfsævi sinnar héraðs læfcnir í Múln— og Ausltur— Skaftafellssýslum en lézt árið 1867 að Bessastöðum á Álftanesi, — og hafði þá fyrir alllöngu sagt af sér embætti. Gísli hlaut þessa um sögn látinn: ,,H)anni var1 skarp gáfaður maður og duglegur em bættismaður“- Fluíningnr sængu-konu nú á dög um. — Á myndinni að ofan er verið að framkvæma keisaraskurð á nútíma sjúkrahúsi. í þessum efnum sem fleirum má muna tím ana tvenna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.