Alþýðublaðið - 27.05.1965, Page 10

Alþýðublaðið - 27.05.1965, Page 10
Sv ALLT TIL GARÐYRKJU Garðsláttuvélar 10 — 15 - 16“ Kantsláttuvélar Sáðvélar Grasklippur 1 12 - 14 Garðkönnur 2 — 3 — 5 — 8 - 10 - 13 1. Vökvnnartæki 1 margar gerðir. Plastbrúsar 10 - 20 - 30 1. Garðslöngur Vi - aÁ - 1 — 11/4 - 1 Vi” Garðnet, plasthúðað og ffalv. • Fjárnet 5-6-8 strengja Lyfjadælur, margrar gerðir. Illgresiseyðingarlyf Lyf gegn kálmaðki og lús Blómaáburður Hjólbörúr og garðyrkju- áhöld í miklu úrvall. Skrúögarðafræ íþróttavallafræ Sendiun gegn póstkröfu. Sölufélag Garðyrkjum. Keykjanesbraut '6, Rvlk. Verkalýðsmál Framhald af 7. síðu. ið, með hækkun vöruverðs og þjónustu og í mörgum tilfell- um hafa atvinnurekendur hagn ast á kauphækkunum, þ. e. þeilr lrafa 'hækkað vöruverð og þjónustu meira en kaupið hækkaði. Raunverulegum kauphækk- unum verður ekki komið á nema jafnframt verði gerðar ráðstafanir til þess að hindra það, að atvinnurekendum tak- ist að velta hækknunum af sér- Eina leiðin til þess að tryggja kaupmátt þeirra launa, sem um verður samið, er, að koma á ströngu verðlagseftirliti, í stað þess geta engar yfirlýsingar komið. í nágrannalöndum okkar hafa launþegar fengið raun- verulegar kauphækkanir, svo að segja á hverju ári og þess- ar raunverulegar kauphækkan ir grundvallast fyrst og fremst á því að þar er beitt ströngu verðlagseftirliti. TAPAÐI TÍU ÞÚS. KR. Nýlega er fallinn dómur í bæjarþingi Reykjavíkur í máli sem starfsstúlka í veitingahúsi höfðaði vegna meintrar van- greiðslu á kaupi. Stúlka þessi hafði samanlagt unnið rúma 8 mánuði í viðkomandi veit- ingahúsi. Ágreiningurinn var um hvort greiða ætti henni mánaðarkaup eða tímakaup. Hefði viðkomandi fengið sér tildæmt tímakaup, myndi kaup hennar hafa orðið um 10 þús. krónum hærra fyrir umrætt vinnutímabil. Því var ekki neit að af réttinum að starfsstúlkan hefði átt að fá tímakaup fyrir vinnu sína, samkvæmt gild- andi samningum, en hins vegar þótti það sannað, að starfs- stúlkan hefði aldrei hreyft and mælum gegn því að taka við mánaðarlaunum og þess vegna var krafa hennar um tímakaup ekki tekin til greina. Vegna hirðuleysis um að kynna sér hvaða kaup ætti að greiða samkvæmt samningum og að hafa ekki þegar samband við viðkomandi stéttarfélag tapaði verkakona 10 þúsund krónum. Þetta er ekkert einsdæmi. Það kemur iðulega fyrir, að launþegar bera fram kröfur á hendur atvinnurekendum þeg- ar þeir eru hættir störfum, en hafa ekkert hirt að gera at hugasemdir um kaup eða kjör meðan þeir voru við vinnu. — Það verður aldrei nógsamlega brýnt fyrir verkafólki að kynna sér þá samninga sem gilda um kaup og kjör á vinnu stað þess og að hafa samband við verkalýðsfélagið, sem þar á hlut að máli. VERKFALL ÞJÓNA. Félag framreiðslumanna hef ur boðað vinnustöðvun hjá veitinga og gistihúsum frá og með föstudeginum 4. júní. — Framreiðslumenn hafa sent veitingamönnum tillögur um nýja samninga. Samningaum- leitanir eru ekki hafnar, en gera má ráð fyrir að deilu þess ari verði vísað til ríkissátta- semjara. VERKFALL Á KAUPSKIPUM 10 27. maí 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ kjL ■ í lok aprílmánaðar sl. tókust bráðabirgðasamningar milli Félags framreiðslumanna, Kv.- deildar Félags framreiðslu- manna annars vegar, og kaup skipafélaganna hins vegar, um kaup og kjör framreiðslu- manna, þerna og matreiðslu- manna á kaupskipaflotanum. Samningar þessir renna út 5. júní. Samningaumleitanir eru hafnar, en líklegt þykir að fé- lög þessi, sem hér eiga hlut að máli boði til vinnustöðvun- ar fyrri hluta júnímánaðar, ef samningar takast ekki. LÍFEYRISSJÓÐUR MÚRARA. Múrarafélag Reykjavíkur og Múrarameistaraféla’g Reykja- víkur hafa stofnað lífeyrissjóð og tók hann til starfa 1. maí sl. í sjóðnum eru bæði meist arar og sveinar. Stjórn sjóðs ins skipa tveir fulltrúar frá Múrarafélaginu og aðrir tveir frá Múrarameistarafélaginu, fimmta manninn tilnefnir hæstiréttur. Minningarorð Framhald af 7. síðu. Þórir kvæntist árið 1950 Ástu Þorkelsdóttur og eiga þau eina dóttur barna. Steinunni að nafni, tvær stjúpdætur og einn kjörson. Sá, sem þessar línur ritar, hef- ur notið þeirrar ánægju að hafa nokkuð náin k.vnni af Þóri Bene- dikt Sigurjónssyni um ma'-gra ára skeið, og er það fljótsagt, að þar hefur aldrei borið neinn skugga á Þórir er að mínum dómi sjald- gæfur ágætismaður, enda hvgg ég að hann geti með réttu kallast „hvers manns hugljúfi“. Það, sem einkennir hann, eins og aðra slika menn, er meðal annars það, hve laginn hann er á að sætta og sam- eina ólík sjónarmið, koma auga á kjarna eða aðalatriði hvers máls og kalla á hið bezta í öðrum mönn um. Fáa menn hef ég þekkt til- lögubetri en hann eða starfsfúsari, á hverjum þeim vettvangi, þar sem hann hefur talið að nauðsyn bæri til að hafast eitthvað að. öðrum til heilla, enda er næsta furðulegt, hve mörgu hann getur komið í verk, utan brauðstarfs síns. — Hann er hugsjónamaður, en enginn angurgapi, og kýs því að koma áhugamálum sínum fram með lempni og lipurð, enda er honum ljóst, að hvert mál hefur margar hliðar, og að oft getur ork- að tvímælis, eins og gamH Njáll sagði, hvað vjturlegast sé að gera í andlegum málum aðhyllist hann kenningar guðspekinnar, og á hið heiða víðsýni þeirrar stefnu vel við skapgerð hans. Hefur hann um margra ára skeið verið í stjórn Guðsoekifélags íslands, gegnt þar gjaldkerastörfum og farizt það vel úr hendi eins og annað, sem hann tekur að sér. Mér er það ljóst, að ókunnugir mættu ætla, að hér sé oflofi hlað- ið á þann mann, sem verið er að minnast fimmtugs. Verður það að fara sem verkast vill, en sá, sem þessar línur ritar, væri ekki sann- ur gagnvart sjálfum sér, ef hann drægi upp einhverja aðra mynd af afmælisbarninu. Hann er og enginn ,,gullhamra“-smiður. Að síðustu vil ég þakka Þóri margra ára vináttu og árna hon Unglingavinna á vegum Kópavogskau pstaða r Unglingavinna verður starfrækt á vegum bæjarins með sama hætti og síðastliðið ár. Teknir verða unglingar 12— 14 ára. Innritun fer fram á skrifstofu æskulýðsfulltrúa í Félags- heimilinu á II. hæð, laugardaginn 29. maí kl. 4—7 e. h., simi 41571. Bæjarverkfræðingur. um allra heilla á þessum tímamót- um í lífi hans, er hann gengur yfir þröskuld hálfrar aldar. Er það ekki sízt ósk mín, að honum megi endast starfskraftar sem lengst í þarfir góðra og göfugra málefna og að honum megi einnig takast að varðveita hina léttu lund sína og þýða þel til hinztu stundar. _ Grétar Fells. É G LEYSI VANDANN Gluggalireinsun. Hand- og vélahreingerningar. PANTIÐ í TÍMA í síma. 15787 og 20421. vorur- valdar vörur- Alþýðublaðið kost- ar aðeins kr. 80,00 á mánuði. —

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.