Alþýðublaðið - 02.06.1965, Side 4
Ritstjórai: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull-
trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900 - 14903 — AugLýsingasími: 1490G.
ASsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötti, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-
blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — X .lausasölu kr. 5:00 eintakið.
Utgefandi: Alþýðuflokkurinn.
TVÆR HUGMYNDIR
VIÐRÆÐUR verkalýðshreyfingarinnar við at-
vinnurekendur um nýja kjarasamninga eru komnar
á lokastig. Fylgist þjóðin með því af athygli, hvaða
horfur eru taldar á samkomulagi, enda getur engum
dulizt að málalok munu ráða miklu um örlög þjóð-
arinnar næstu misseri. Bæði forsætisráðherra og for-
seti Alþýðusambandsins hafa minnt á, að venjulega
náist ekki árangur í slíkum viðræðum fyrr en á síð-
ustu stundu, og ber það vonandi vott um, að enn
ríki bjartsýni um samkomulag.
Ekki er ráðlegt að halda uppi miklum opinberum
I umræðum um einstök atriði, sem f jallað er um á lok-
uðum samningafundum. Þó vill Alþýðublaðið minna
'i á tvær hugmyndir, sem fram hafa komið áður, en
hugsanlega gætu greitt fyrir samkomulagi.
Fyrri hugmyndin er að tryggja kjarabætur í á-
föngum, svipað því kerfi, sem hefur komið verkakon
um svo vel á undanförnnm árum. Yrði þá að semja
; til tveggja ára og gera ráð fyrir reglulegum breyting
: um. Verkalýðurinn þyrfti að vísu að hafa einhverja
varnagla í samningi til svo langs tíma, en atvinnurek
endur mundu fá svigrúm til umþóttunar, er þeir vissu
að hverju þeir ganga.
Verkakonur hafa á undanförnum árum fengið
meiri raunverulegar kjarabætur en verkamenn, og
r, má þakka það lögunum um launajafnrétti, þar sem
* reynd var tröppuhækkun á kaupi þeirra, unz vissu
. marki er náð. Að vísu er erfiðara að beita þessari að
* ferð við allar stéttir í einu, en þó gerlegt, ef allt talið
, um tækni og hagræðingu er rneira en innantóm orð.
. Hin hugmyndin snertir ekki beinlínis kjör verka-
fólks, en gæti þó komið að gagni. Hún er sú, að sett
verði upp áætlunarráð, þar sem fulltrúar verkalýðs,
atvinnuvega, sveitarfélaga og ríkis kæmu saman til
að fjalla um heildarlínur í efnahagskerfinu, sérstak-
lega skipulag framkvæmda, sem hafa mikil áhrif á
eftirspurn eftir vinnu og fleiri atriði vinnumarkaðs-
ins. Verkalýðsfélögin hafa sakað ríkisstjórnina um
að hafa ekki haldið verðbólgu í skefjum eins og um
var samið í júní í fyrra. Slíkt ráð gæti hjálpað mjög
-: til þess að nýtt samkomulag yrði lialdið svo að hvor-
ugur geti um kvartað.
Undanfarin ár hefur verið stigið hvert sporið á
j fætur öðru í átt til áætlunargerðar um framkvæmd-
ir. Eru allir flokkar sammála um þá stefnu í aðalatrið
um, og virðist tímabært að setja á stofn víðtæka sam
istarfsnefnd um þau mál, er gefi bæði verkalýðssam-
>, tökum og atvinnuvegum tækifæri til að koma skoð
II unura sínum á framfæri og fylgjast með framkvæmd
mála. Slíka''‘ stofnanir eru til í flestum nágrannalönd
' um okkar, jafnvel fyrir einstaka landshluta. Mætti
leggja eitthvað af nefndum niður um leið og nota
Efnahagsstofnunina til stuðnings, svo að ekki rísi
nýtt skrifstofubákn með skipan áætlunarráðs.
4 2. júní 1965 - ALÞÝÐUBLADIÐ
Fegurðarsamkeppnin 1965
LOKAÚRSLIT 06 KRÝNINGARHÁTÍÐ
fer fram á HÓTEL SÖGU — SÚLNASA LNUM finimtudag 3. og föstudag 4. júní.
FIMMTUDAG: Kjörnar veröa:
UNGFRÚ ISLAND 1965
Og
UNGFRÚ REYKJAVÍK 1965
MEÐAL SKEM MTIATRIÐA:
Hljómsveit Ásgeirs Guðmundssonar (Dumbo sextett frá Akranesi), söngvari Sigursteinn Há-
konarson. — Tízkusýning, nýjasta kvenfatatízk an frá kjólaverzluninni EIsu og dömubúðinni
Laufið. — Hattar frá Hattaverzlun Soffíu Pál ma. Stúikur úr Tízkuskólanum h.f. sýna. Stjórn-
andi Sigríður Gunnarsdóttir. — Danssýning C amilia Hallgrímsson. — Gamanvísur og eftir-
hermur Jón Gunnlaugsson. — Dans til kl. 1 eftir miðnætti.
FÖSTU DAGUR:
KRÝNINGARHÁTÍÐ OG TÍZKUSÝNING
Einnig verða hin sömu skemmtiatriði og fyrra kvöldið.
Rósa Einarsdóttir krýnir ungfrú ísland 1965 og ungfrú Reykjavík 1965. Hljómsveit Ásgeirs
Guðmundssonar (Dumbo sextett frá Akranesi) skemmtir til kl. 3 eftir miðnætti.
Aðgöngumiða að báðum kvöldunum má panta í síma 20743 og Súlnasal og borðpantanir
verða í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudag, fimmtudag og föstudag millí kl. 2 og 6 e. h.
á horninu
MER ÞÆTTI GAMAN AÐ vita
hvort mig misminni. Ég man sem
sagt ekki eftir því, að ég hafi séð
eins öran grasvöxt og svo snögg
legan eins og nú svo snemma sum
ars sem raun er á. — Það er kom
ið kafgras í garöana hér í grennd
inni og ég veit mörg dæmi þess,
að menn eru farnrr að slá. Vorið
hefur líka verið mjög miít, hit
ar og regnskúrir á milli,— það er
eins og ég hafi séð grasið vaxa.
GOTT VÆRI ef við fengjum
gott sumar, því að við eigum það
sannarlega skilið- Síðasta sum
ar var ekki skemmtilegt, og varla
-heldur sumarið þar áður, sífelld
ar rigningar og kuldastríð. Við
skulum að minnsta kosti vona það
bezta- Enn eru menn ekki farnir
að taka sumarleyfi sín, en þau
munu byrja um þessi mánaða
mót.
ORÐSENDING til ,,Lesanda úti
á landi.“ bréf þitt get ég því mið
ur ekki birt en ég viL taka það
fram, að ég er þér hjartanlega
sammála, en við þetta verður að
sitja.
Á. H. SKRIFAR „Mig langar
að gera útvarpið að umtalsefni í
þetta sinn, þú hefur rætt svo mik-
ið um hægri og vinstri akstur að
undanförnu og ekkert minnzt á
isumardajgskrána eða vetrardags
skrána, en fyrir eldra fólk eins
og mig skiptir útvarpið miklu og
mér finnsb að vetrardagskráin. hafi
verið ágæt, sérstaklega tveir þætt
ir, Kaupstaðirnir keppa, sem oft
var ágætur en reyndar stundum lé
legur og, Hvað er svo glatt, sem
var oftast ágætur-
SUMIR AF LEIKÞÁTTUNUM
voru afbragð- Ég á t.d- við bítla
þættina á bifreiðaverkstæði, Jón
og lampinn o. fl. Jón og lampinn
var ekki aðeins skemmtilegur og
vel upp færður lieldur var hann
ein harðasta gagnrýni á skattsvik
og mannlegan veikleika, sem ég
liefi heyrt. Annarsvegar var verzl
Ég sá grasið
gróa.
★
Gott og milt vor.
★
Um vetrardag-
skrá útvarpsins
og dálítið um
sumardagskrána
unarmaðurinn, sem aldrei gaf
neitt upp en velti sér svo í pea
ingum og hins vegar skattamaður
inn smjaðurslegur við yfirboðara.
sinn en frekur og beitti óspart
valdi við verzlunarmanninn.
AUK ÞESS SEM SVO voru
hlægilegar náttúrulýsingar. Þena
an þátt ættu forráðamenn útvarps
ins að endurtaka. Mér finnst a#
ég sakni þeirra Halldórs og Lilj*
og ekki rétt að láta lífláta þau
svona fyrir útvarpshlustendum.
Ég skil að útvarpið verður að
spara, en samt hefði átt að hafa,
Hvað er svo glatt áfram í sumar,
ég hefði glaður greitt hundrað
krónum meira í afnotagjald næst.
LÓÐIR HLUTAFÉLAGSINS LAND
við Hagamel, Grenimel og Reynimel verða til sölu á næstunni. Lóðirnar (ca. 650 ferm.) eru
ætlaðar fyrir tveggja hæða hús og ein lóð (ca. 4000 ferm.) fyrir þriggja dyra fjölbýlishús.
Hluthafar h.f. Lands hafa forkaupsrétt. Þeir hl uthafar, sem vilja nota sér bennan forkaups-
rétt, verða að tilkynna það skriflega til stjórn ar félagsins fyrir 1. júlí n.k. Eftir þann tíma
verður lóðunum ráðstafað til annarra.
Tilboð sendist stjórn félagsins í pósthólf 457.