Alþýðublaðið - 13.06.1965, Qupperneq 6
'v'
★ Störf í fanglesi
Forstjóri nýja fangelsins var að útmála fyrir nýjum fanga
ágæti stofnunarinnar og hve gott hann gæti haft það á meðan
hann afplánaði refsingu sína.
— Hér sjáum við m. a. um, að fangar geti, eftir því sem
unnt er, haldið áfram þeim störfum, sem þeir höfðu í sínu
borgaralega lífi. Hvert var t. d. yðar starf?
— Móttökustjóri á hóteli, svaraði fanginn.
■fo Svaf af sér veizluna.
AMERÍSKUR KJARNORKUFRÆÐINGUR, Irwin W. Kent
frá Oak Ridge, hefur fengið sér dæmda 5000 dollara og fjöl-
skyldu unnustu sinnar sömu upphæð úr hendi hótels nokkurs
í skaðabætur.
Kvöldið fyrir brúðkaup sitt var hann dauðþreyttur og ekki
viss um að vakna af sjálfsdáðum og bað því um að vera vak-
inn á ákveðnum tíma. Þessu gleymdi starfsfólk hótelsins með
I þeim afleiðingum, að Kent svaf af sér bæði hjónavígstuna og
veizluna á eftir.
★ Leikur hann Lucky Luciano.
Raf Vallone, ítalski kvikmyndaleik-
arinn, er nú bókstaflega umsetinn af
fólki, sem vill fá hann til að leika í
kvikmynd um stórglæpamanninn og
mafíu-foringjann Lucky Luciano.
Annars vegar hefur Vallone tilboð
frá Sid Luft, og svo líka frá félög-
unum John Burrows og Leonard
Ackerman — þeim sem gerðu mynd
ina um A1 Capone.
'fe Aðvörunarskilti sem tala.
MAÐUR var fyrir skömmu á ferð í bíl sínum í New York.
Slökkt var á útvarpstækinu, en skyndilega heyrðist samt úr því
rödd, sem sagði aðvarandi:
— Skóli framundan. Hægðu á þér.
Aðvörunarskilti, sem komið er fyrir við vegi og götur, tala
til ökumanna, hvort sem þeir eru með útvarpstækin opin eða
ekki, fyrir tilverknað sérstakra, segulmagnaðra „patróna", sem
settar eru í tækið.
Þetta kerfi verður reynt út um öll Bandaríkin, og reynist
það vel, hyggst Ford hefja fjöldaframleiðslu á slíkum „patrón
um“, sem hægt er að setja í bíla fyrir á að gizka 1200 krónur.
LUEEIN
Túrbínan gengur
fyrir brennivíni
Austurnska einkaleyfisnefnd
in ííaf fyrir skemmstu ut
einkaleyfi nr. 239.006 til
uppfinnlngamanns að nyrri
gufuturbmu, sem að áliti
sérfræðinga er hreinasta
rantet.
ekki aðeins
í>annig
er
hægt að knyja hana með kol
um og jarðgasi, heldur nka
með snapsi og þrugusaft.
Þá er uppfinningamaðirr
inn ekki minna athyglisverð
ur en uppfinningin sjalf
Hér er um að ræða 52 ára
gamlan, kaþolskan prest
Jo ef
Lebenbauer,
sem
uppfinninga-dellu
vegna
og þrætugirni hefur orðið að
dveija í tíu ár á aækninga
stofnuninm Solbad Hall i
Tyrol. Það var á stofnuninni
iað hann smiðaði turbínuna
og þaðan sendi hann um-
sóknina um einkaleyfið.
Sálarflækjur
FRAKKI, sem vegna sálrænna
erfiðleika er orðinn örvilnaður,
drekkur sig í hel, Dani skýtur sig
og Ameríkumaður beinir byss-
unni að einhverjum öðrum.
Það er bandaríski sálfræðingur
inn dr. Stanley A. Hudin, sem
heldur þessu fram í grein í
brezka vísindatímaritinu „Discov-
ery”. Að þessum niðurstöðum hef
ur hann komizt við að rannsaka
hver áhrif sálrænar þvinganir eða
„pressa” hafa á menn af ýmsum
þjóðernum.
Hudin segir ennfremur, að óá-
nægður Þjóðverji sé líklegur til
að koma sér upp skriðdrekasveit
og hefja árás. íri muni deyja úr
yfirspenntu ergelsi og Englend-
ingur deyja úr magasári. Hann
hefur kannað tíðni dauðsfalla af
völdum morða, sjálfsmorða, maga
sára, hás blóðþrýstingg og
ofdrykkju í 17 mismunandi lönd-
um og hefur komizt að þeirri
niðurstöðu, að Janan og Banda-
ríkin séu hátt á blaði í öllum 5
tilfellunum, en Eire, Ástralía,
Nýja Síáiand og Stóra-Bretland
hafi mörg dauðatilfelli af völdum
magasára og blóðþrýstings. Svo
virðist sem Norðmenn láti ekki
mótgang og vonbrigði mikið á sig
fá, a.m.k. er Noregur mjög lágt
á blaði í þessum 5 tilvikum.
Dr. Rudin, sem er starfandi
læknir við sjúkrahús fyrir særða
hermenn í Kentucky, heldur því
fram að lokum, að rikidæmi og
völd hafi tilhneigingu til að flýta
hrörnun þjóða-
KONA SKIPSTJÓRI
KONA ein rússnesk heitir Anna
Shchetinina og er fyrsta kona þar
í landi til að verða skipstjóri og
er hún nú í fyrstu ferð sinni með
skip sitt Orsha, 20.000 tonn, til
Ástralíu, sgeir Tass. Hún er að-
stoðarprófessor við verkfræðiskól-
ann í Vladivostok og hefur kennt
sjómennsku þar. Hún hefur skrif-
að nokkrar bækur um sjómennsku
og siglingatæki.
Ný kvikmynd um biblíuna
NÚ ER lokið við að taka hina I tiis, og leikstjórinn, John Hus-
tröllauknu kvikmynd „Biblíuna” j ton, áttu við að stríða.
og væri því ekki úr vegi að rifja } De Laurentiis byrjaði á því að
upp ýmis þau vandamál, sem j ráða stúdínu frá Flórens — Nico-
framleiðandinn, Dino de Lauren- I letta Rangoni — til að leika Evu
’ £ 13. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
í Paradísargarði, en þegar fyrstu
myndir af henni voru birtar, bár-
ust mótmæli hvaðanæva að úr
heiminum! — Nicoletta var
dökkhærð, en allir höfðu hugsað
sér Evu ljóshærða! Þá brá Lau-
rentiis við og réði í sta?!nn
sænska stúdfnu — Ulla Bergryd,
19 ára — ,;sem aldrei hafði fyrr
leikið, en! hlaut margra ára
samning dftir prufu-myndun í
Róm. I
Næsta \Sandamálið var klæðn-
aður Evu. Patnaðarstjórinn Maria
de Matteii svaf ■ ekki í margar
nætur — |á meðan hún var
gera það upp við sig, hvernig þau
voru klædd Adam og Eva, þegar
þeim var visað á brótt úr
dís. Voru það bara fíkjublöð
eða hvað, Maria dé Matteis sanri-
færðist loks um, að Adam og Eva
hafi verið .klædd skinnum —. og
staðfestingu á þeirri skoðun er-
ef til vill. að finna í klæðnaði
kvenna á seinni tímum.
Þessi tröllaukna kvikmynd hef-
ur kostað 14 milljónir dollara í
töku — myndatakan hefur staðið
í 14 mánuði — í myndinni koma
fram um 200 leikarar, auk ótölu-
legs grúa statista, 300 stór dýr
og þúsundir minni dýra, sem
menn . áttu í mestu erfiðleikum
með að koma um borð í Örkina.
Þess má geta að lokum, að John
Huston lék sjálfur Nóa — svona
til að vera öruggur um, að hann
væri í góðum höndum!