Alþýðublaðið - 29.06.1965, Síða 5
Torsten
TORSTEN NILSSON utanríkis
ráðherra Svíþjóðar, sem kom
hingað til lands í opinbera heim
sókn í gær, hefur um árabil
verið í hópi áhrifamestu leiðtoga
sænskra jafnaðarmanna og nán
ustu sams^arfsmanna Tage Erland
ers forsætiráðherra. Áður en
hann tók við embætti utanríkis
ráðherra af Östen Undén 1962
hafði hann verið samgöngu-
málaráðherra, landvarnaráðherra
og félagsmálaráðherra.
Um Nilsson er sagt, að áður en
hann taki ákvörðun í einhverju
máli hlusti hann af athygli á hug
myndir þær og rök, sem aðrir
hafi fram að færa, og vegi vand
lega og meti það, seim mælir
með eða móti. En þegar hann hef
ur ákveðið hvaða stefnu skuli
fylgja kemur hann málunum í
höfn af þrautseigju og þolinmæði-
Jafnframt því sem hann á auð
velt með að umgangast aðra og fá
fólk til samvinnu, hefur hann orð
fyrir ákveðni og festu.
Einnig hefur Nilsson orð fyrir
TORSTEN NILSSON
að vera góður samningamaður,
og jafnvel andstæðingar hans í
stjórnmálum viðurkenna það. Oft
hefur honum tekizt að brúa ágrein
ing ekki sízt í flokki sínum- í ráð
herraembætti einbeitir hann sér
að aðalatriðum og forðast smáatr
iði- Hann er vandlátur í vali nán
ustu aðstoðarmaTina, en þegar
hann hefur fundið rétth mennina
veitir hann þeim töluvert sjálf
ræði.
Nilsson er óumdeilanlega mjög
góður ræðumaður, og tekst jafn
an vel upp í kappræðum á stjórn
málafundum og nær góðum tökum
á áheyrendum.
Æskulýðsmál.
Torsten Nilsson er sextugur
að aldri og fæddur 1. apríl U905
á Skáni, og var faðir hans múrari
að iðn. Að loknu námi í gagnfræða
skólum iog lýðháskólum m.a. í
Þýzkalandi, vann hann fyrir sér
sem múrari á árunum 1922—29-
Jafnframt starfaði hann í æsku
lýðssamtckum jafnaðarmanna og
var ritari Skánardeildar æskulýðs
hreyfingar jafnaðarmanna (1927-
30) og síðar formaður hennar
(1930—34).
veljið YÐAR gerð
íYÐAR númeri
VÍR-TWILL
Smékkleg vinnúföt í hrein-
lega vinnu, þægileg sport-
og ferðaföt. Fást í fjórum
litum.
VÍR-LON vinnufötin.
Þægileg, íslenzkt snið;
sterk, IÍV2 oz. nælonstyrkt
nankin.
VÍR-vinnuföt'
í þröngu amerísku sniði.
Efni frá U.S.A. Þykkasta
efni sem fáanlegt er á
heimsmarkaðinum. Hag-
kvæmast verð á fötum
sinnar tegundar
noSið vinnyföt
sem klæða yður-
notið ViR vinnuffðt
Nilsson
Árið 1934 var Nilsson skipaður
formaður æskulýðshreyfingaír
sænskra jafnaðarmanna- Sex árum
síðar var hann skipaður í hið
mikilvæga embætti ritara flokks
ins og gegndi hann því í átta ár
Ári síðar var hann kosinn á þing-
Á þeim tíma var hann mjög hand
genginn Per Albin Hansson, þáver
andi forsætisráðherra, sem
snemma hafði veitt honum athygil
og spáði honum gkjótum frama.
Eins og nokkrir aðrir leiðtogar
sænskra jafnaðarmanna hefur
Torsten Nilsson fengist við blaða
mennsku. Á árunum eftir 1930
s+arfaði hann við „Arbetet", mál
gagn jafnaðarmanna í Malmö
og varð hann að lokum ritstjóri
erlendra frétta. Til undirbúnings
þessu starfi ferðaðist hann víða
og kynn+ist mönnum og málefntlm
í Englandi, Þýzkalandi og fleiri
löndum. Sem ritstjóri vikurits
æskulýðshreyfingar jafnaðar
manna, „Frihet“, fékk hann mik
inn áhuga á alþjóðamálum og rit
aði um þau. Áhugi sá, sem Nils
son fékk snemma á utanríkismál
um, jókst við það, að hann gekk í
skóla þýzkra jafnaðarmanna í
Thúringen ungur að árum,
Varnarmál.
Á árum heimsstyrjaldarinnar
síðari jukust kynni hans af jafn
aðarmönnum álfunnar þegar hann
hafði umsjón með störfum alþjóða
sambands ungra jafnaðarmanna.
Öll styrjaldarárin hafði hann ná
ið samband við andspyrnuhreyfing
arnar í Danmörku og Noregi, og á
bak við tjöidin tók hann virkan
þátt í að hjálpa fólki að flýja frá
þýzkhernumdum löndum Evróþu-
Sem ritari jafnaðarmannaflokk^
ins hafði hann nána isamvinnu
vjð sænsku stjórina, og hann var
skipaður samgöngumálaráðherra í
fyrstu stjórninni, sem mynduð var
eftir heimsstyrjöldina-
Þegar Per Albin Hansson lézt
1946 var Torsten Nilsson einn
af sex mönnum, sem til greina
þóttu koma sem eftirmaður hans.
en Tage Erlander var reyndastur
þeirra sexmenninganna og varð
forsæ'isráðherra. Ýmsir eru þeirr
ar skoðunar, að Nilsson verði leið
togi jafnaðarmanna og forsæ f s
ráðherra með tímanum, og var
skipun hans í embættj utanríkis
ráðherra túlkuð sem skref í þá
átt.
Þegar Nilsson hafði verið sam
göngumálaráðherra um sex ára
skeið var hann skipaður landvarna
ráðherra, og ávann hann sér mik
ið traust í því starfi, sem hann
gegndi einnig í sex ár. Hann kom
á ýmsum umbótum og skipulags
bréytingum, sem margar hverjar
eru enn við lýði. Hann lagði grund
völlinn að hinum traustu og ný
tizkulegu vörnum Svíþjóðar.
Félagsmál.
Mörg vandasöm og erfið verk
efni biðu Nilsson þegar hann var
skjpaður félagsmálaráðherra 1957.
í þessu embætti var hann potfur
inn og pannan í umdeildri félags
málalöggjöf, sem olli einhverjum
hörðustu stjórnmáladeilum sem
um getur í Svíþjóð á síðari árum-
En árangurinn varð sá, að öllum
land.mönnum voru tryggð elli
laun, og síðan lögin tóku gildi
hefur euginn stjórnmálaflokkur
þorað að berjast gegn þeim-
Torsten Nilsson hefur einnig
beitt sér fyrir öðrum velferðar
málum. Þótt ýmsir legðust gegn
frekarj aðgerðúm á sviði félags
mála krafðist Nilsson bess, að
ríkið gengi léngra og léti alla
hópa þjófélagsins njóta gæða vel
ferðarríkisins. Meðan hann gegndi
embætti félagsmálaráðherra voru
nokkrar breytingar gerðar í at
vinnumálum, þótt Svíum hafi ekki
tekizt að vinna bug á húsnæðis
skorlinum.
Torsten Nilsson hefur verið ut
anríkisráðherra síðan haustið 1962.
í því starfi hefur löng stjóm
málareynsla hans komið að góðum
notum.
Margir telja Torsten Nilsson
einn af færustu stjórnmálamönn
um Svía. Hann er hárbeittur ; til
svörum og hefur miklar gáfur
til að bera. Hann gefur sér ef til
vill meiri tíma til íhygli en fyrr
á árum, enda hefur hann breytzt
úr málsnjöllum ungum manni í
reyndan og þjálfaðan embættia
mann.
SMURT BRAUÐ
Snittur. |
Opið frá M. 9—23,30
Brauðstofan
Vesturgötu 25. j
SSmi 16012
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 29. júní 1965 $