Alþýðublaðið - 29.06.1965, Blaðsíða 8
MINNINGARORÐ:
ASCEIR G. STEFANSSON i framkvæmd
HINN 22. þ. m. andaðist á hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi Ásgeir G.
Stefánsson, byggingameistari og
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, og
verður hann til grafar borinn í
dag. Andlát hans kom ekki á
óvart. Hann hafði um alllangt
skeið þjáðst af s.iúkdómi þeim,
sem dró hann til dauða. og sýnt
var, að við þeim sjúkdómi mundi
ekki lækning fást.
Með Ásgeiri G. Stefánssyni er
genginn einn gagnmerkasti borg
ari þessa bæjar, frábær dugnaðar
maður, jafnvígur á byggingarstarf-
semi og útgerð og raungóður
drengskaparmaður, sem ekkert
aumt mátti sjá og öllum vildi
hjálpa.
Ásgeir G. Stefánsson var bor-
inn og bsrnfæddur Hafnfirðingur
og í Hafnarfirði átti hann heima
alla sína ævi, að undanteknum
stuttum tímabilum, er hann dvaldi
við nám erlendis eða byggingar-
starfsemi úti á landi.
Ásgeir Guðlaugur Stefánsson,
eins og hann hét fullu nafni. var
fæddur 28. marz 1890, sonur
þeirra sæmdarhjóna Stefáns Sig-
urðssonar trésmiðs og Solveigar
Gunnlaugsdóttur konu hans. Ste-
fán andaðist 1907 frá 7 börnum,
flestum ungum, og Sigurður, elzti
sonurinn, nokkru síðar. Það kom
þvf í hlut ÁSgeirs og eldri bræðr-
anna fvrst og fremst að sjá heim-
ilinu farborða, og gerðu þeir það
af slíkum dugnaði og myndarskap,
þó að ungir væru, að til þess var
tekið. Ásgeir nam trésmíðaiðn hjá
föður sínum meðan hann lifði, en
síðan hjá Sigurði bróður sínum
og lauk sveinsprófi 1909. Hann
gat sér fljótt hið mesta frægðar
orð sem frábærlega duglegur og
úts.jónasamur byggingameistari,
og var mjög eftirsóttur til þeirra
starfa. Bræður hans þrir, Frið-
finnur, Tryggvi og Ingólfur, sem
aliir eru lærðir byggingariðnaðar-
menn og harðduglegir, hver á
sínu sviði, unnu lengi með Ás-
geiri. Voru þessir fjórir bræður
um langt árahil afkastamestu og
eftirsóttustu húsbyggjendur í Hafn
arfirði, og eru tve:r þeirra það
enn. Fimmti bróðirinn, Gunnlaug-
ur stundaði einnig iðnaðarstörf
' framan af ævi. þó að á öðru sviði
væri, en gerðist síðar dugmikill
kaupsýslumaður. Systirin Ingi-
b.iörg var með móður sinni, með-
an báðar lifðu, og aðstoðaði hana
í hvívetna. Þessi systkinahópur
var einstakur í sinni röð, frá
bærlega umhvggjusamur við móð-
ur sína strax, á meðan bau voru að
alast upp, eftir lát föður þeirra,
allir svnirnir iðnaðarmenn í
fremstu röð og öll hafa þau hald-
ið hópinn hér í Hafnarfirði og
verið hinir nvtustu borgarar.
Bvggingarstarfsemi Ásgeirs G.
Stefánssonar fellur að mestu á
annan og þriðia tug aldarinnar,
frá því að hann tók sve:nspróf
1909 og fram yfir 1930. í fyrstu
vonu það mest íbúðarhús, sem
8 29. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
hann byggði í Hafnarfirði og ná-
grenni, og er tala þeirra áreiðan-
lega mjög há, þó að ekki kunni ég
nákvæmlega skil á henni, og
fylgdist ég þó allnáið með þessari
byggingarstarfsemi sem bygginga
fulltrúi í rúman áratug. 1922 varð
hér nokkur breyting á. Þá sigldi
Asgeir til framhaldsnáms í Þýzka
landi, og dvaldist þar árin 1922 og
’23. Eftir heimkomuna verða við-
fangsefnin stærri. Hann byggir þá
sjúkrahúsið á ísafirði, sjúkrahús
sct. Josepssystra í Hafnarfirði og
barnaskólann í Hafnarfirði, svo
að nokkur séu nefnd, auk fjöl-
margra íbúðarhúsa, stórra og
smárra. — Það er mikið starf, sem
eftir Ásgeir liggur á þessu sviði,
enda var það annar aðalþátturinn
í lífsstarfi hans. Byggingarstarf-
semin einkenndi t hjá honum af
tvennu: byggingarnar voru vand-
aðar, svo sem bezt mátti verða, og
vegna dugnaðar hans og verk-
hyggni urðu þær ódvrari en hjá
flestum öðrum. Hann var og
smekkmaður. og kom það einnig
fram í teikningum hans, en hann
teiknaði sjálfur mörg þeirra húsa,
er hann bvggði. Hlutur Ásgeirs í
byggingarsögu Hafnarfjarðar er
mikill og mun um ókomin ár setja
sinn svip á bæinn.
Annar aðalþátturinn í ævi-
starfi Ásgeirs G. Stefánssonar er
tengdur sjávarútvegsmálum. Hann
fékk snemma áhuga á þeim mál-
um, og 1915 er hann í félagi við
aðra farinn að gera út vélbáta, að-
eins 25 ára gamall, og hélt því
áfram í nærri áratug. Síðar gerð-
ist, hann meðstofnandi félaga um
to'Jaraútgerð. sat í stjórn þeirra
og var framkvæmdastjóri þeirra
sumra. Áhugi hans á þessari út-
gerð var mikill og dugnaður hans
og verkstjórn jafn mikil að hverju
sem hann gekk. í útgerðarmálum
ber þó hæst störf hans fyrir Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar í nokkuð
á þriðja áratug.
Til Bæjarútgerðar Hafnarfjarð
ar var stofnað á erfiðleika- og
krepputímum 1931 til þess að
freista að bæta úr því atvinnu-
leysi, sem þá var landlægt. Ás-
geir varð fyrsti framkvæmdastjóri
þess fyrirtækis. Og það tel ég
mig mega fullyrða, að það hefði
á fárra manna færi verið, ef nokk-
urra, að fleyta því fyrirtæki. sem
hóf göngu sína án nokkurs stofn-
fjár, yfir öll kreppuárin. Hann
rak fyrirtækið með slíku harð-
fylgi og dugnaði að fátítt er.
Hann vakti á nóttunni til að fylgj-
ast með aflafréttum. Hann var
kominn á vinnustað á morgnana á
undan öðrum og fylgdist með
hverju eina til þess að draga úr
kostnaði. Og þegar þetta kom
fyrir ekki og skuldir tóku að safn
ast, gaf hann eftir laun sín og
lánaði frá sjálfum sér, þegar fé
var ekki að fá annarsstaðar, og
var þó undir hælinn lagt með
endurgreiðslur, eins og fjárhag
fvrirtækisins var þá komið. En á-
hugi hans, dugnaður, samvizku-
semi og idealismi réðu úrslitum.
Og það var honum mikil ánægja
að geta síðar rétt fyrirtækið við
svo að ekki einasta fengu allir
sitt, heldur var einnig gildum
sjóðum safnað, Á kreppuárunum
gekkst hann einnig fyrir því, að
ýms fleiri útgerðarfélög voru
stofnuð, var með í sumum þeirra,
en studdi önnur með ráðum og
dáð, var þó ekki á þeim tíma um
mikla ábatavon að ræða, heldur
beitti hann sér fyrir þessu til að
firra vandræðum. Starf Ásgeirs
G. Stefánssonar fyrir bæjarút-
gerðina og Hafnfirðinga alla var
ómetanlegt og verður aldrei full-
þakkað.
Þó að segja megi, eins og hér
hefur verið gert, að ævistarf Ás
geirs falli aðallega í tvo farvegi,
byggingarstarfsemi og útgerð,
kom hann þó miklu víðar við, og
sjást þess mörg merki. Allskonar
atvinnumál og atvinnustarfsemi
áttu hug hans, og alla þá starf-
semi vildi hann styðja sem horfði
til fjölbreytni í atvinnulífinu og
til bættrar afkomu þjóðfélagsþegn
anna. Hann var einn af stofnend-
um Raftækjaverksmiðjunnar í
Hafnarfirði og átti sæti í fyrstu
stjórn hennar. Hann átti lengi
sæti í stjórn trésmíðaverksmiðj-
unnar Dvergur og var formaður
þess félags um hrið. Hann var
einn af stofnendum Iðnaðarmanna
félagsina í Haínarfirði og sat
lengi í stjórn þess, frá upphafi.
Hann átti sæti á fyrsta iðnþingi
íslendinga, og á mörgum iðnþing
um síðan. Hann var kosinn í
fyrstu stjórn Landssambands iðn-
aðarmanna og átti þar lengi sæti.
Hann átti einnig um skeið sæti í
stjórn félags íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda, og í stjórn Eim-
skipafélags íslands sat hann í all-
mörg ár. Þó að þessi upptalning
sé ófullkomin og hvergi nærri tæm
andi, má þó af henni marka, hvert
traust menn hafa borið til hans og
hversu menn hafa sótzt eftir ráð-
um hans og samstarfi.
Alþýðuflokkurinn. og alveg sér-
staklega Alþýðuflokkurinn í Hafn-
arfirði, á Ásgeiri G. Stefánssyni
mikið að þakka. Hann var ötull og
áhugasamur stuðningsmaður
flokksins um áratuga skeið. Þykkj
ur hans og flokksins fóru saman.
Uppbygging atvinnulífsins í land
inu til hagsbóta fyrir allan al-
menning var honum hjartansmál,
og stuðningur hans við þá, sem
erfitt áttu uppdráttar, var þannig
að hægri hendin vissi aldrei hvað
sú vinstri gerði. í hvað mestri
þakkarskuld stendur flokkurinn
þó við hann fyrir störf hans við
bæjarútgerðina, sem áður hafa
verið rakin að nokkru, en þau
voru flokknum ómetanleg. Ásgeir
sóttist aldrei eftir sæti í bæjar-
stjórn. Hann lét þó til leiðast 1942
að gefa kost á sér til þeirra starfa
og var þá kosinn. Hann átti sæti í
bæjarstjórninni um nokkurra ára
skeið, en dró sig í hlé og eftirlét
öðrum sætið. Hann hafði þó um
langt árabil starfað í nefndum
fyrir bæinn, m. a. í byggingar-
nefnd og einnig í ýmsum öðrum
nefndum, áður en hann var kosinn
bæjarfulltrúi. Fyrir öll hans störf
í þágu flokksins færi ég lionum
hugheilar þakkir.
Ásgeir kvæntist 1932 Solveigu
Björnsdóttur, dóttur Björns Helga
sonar skipstjóra í Hafnarfirði og
konu hans Ragnhildar Egilsdóttur,
og lifir hún mann sinn. Solveig
hefur verið Ásgeiri styrkur föru-
nautur á lífsleiðinni og góður fé-
lagi, hollráð og umhyggjusöm, er
vakti yfir honum til hinztu stund
ar. Heimili þeirra var fagurt og
aðlaðandi. Ásgeir átti þar ánægju
legar hvíldarstundir frá önn dags-
ins og þangað þótti okkur vinum
þeirra gott að koma. Þau Ásgeir og
Solveig eignuðust þrjú börn, sem
öll eru á lífi, Solveigu, sem er
gift Jósep Ólafssyni. lækni í Hafn
arfirði, Hrafnkel lögfræðing, sem
kvæntur er Höllu Magnúsdóttur,
og Ragnhildi, sem gift er Einari
Óskarssyni verzlunarmanni í
Reykjavík. Eina kjördóttur, Ás-
laugu, áttu þau einnig, sem alin
var upp hjá þeim frá því hún
fæddist, og var þeim alla tíma
mjög kær.
Öll eru börn þessi hin mann-
vænlegustu og líkleg til að verða
góðir þjóðfélagsborgarar, svo sem
voru foreldrar þeirra.
Við fráfall Ásgeirs G. Stefáns-
ronar e. mikið skarð fyrir skildi.
Frábær athafnamaður er geng-
inn, atliafnamaður, sem unni bæj
arfélagi sínu, og raunar þjóðinni
allri og vildi þoka henni til betra
mannlífs- Nokkur þakklætisvottur
var honum sýndur fyrir þetta, er
hann var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu. Dreng
skaparmaður, sem hvers manns
vanda vildi leysa, og styðja hvern
þann, er hann taldi búa yfir hæfi-
leikum til góðra verka. Ég tel það
eitt mitt mesta lán að hafa, ungur