Alþýðublaðið - 29.06.1965, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 29.06.1965, Blaðsíða 13
P ----; Sími 50184. Safati stjérnar bailinu (Et Satan conduit le bal) Djörf frönsk kvikmynd gerð af ' Koger Vadim. Catherine Deneuve Jacques Perrin. Sýnd kl. 7 og 9. Bönnuð börnum. Sími 5 02 49 Ný sænsk úrvalsmynd í Clnema- S.cope, gerð eftir Vilgot Sjöman. • Bibi Andersson Max Von Sidow Sýnd kl. 9. Síðas^a sinn. HVER DRAP LAURENI ? Æsispennandi frönsk mynd. Mel Ferrer, Sýnd kl. 5 og 7. I Hún sagðist ekki geta haft þetta á samvizkupni lengur. Nei, hugsaði rannsóknarlög- reglumaðurinn. Ekki meðan hún hafði dauðaslys í ofanálag — Jæja, sagði liann svo upp- hátt. — Þakka þér fyrir upplýs- ingarnar. Það er víst ekkert fleira, sem ég þarf að vita. Hann hraðaði sér á skrifstofu sína og einbeitti sér þar að þv) að bera saman síðari örkina og bréfin, sem komið höfðu með peningasendingunum til Hall- dórs. Hann þurfti naumast á stækk- unarglerinu að halda svo aug- ljóst var það. Sama ritvél. Um það var ekki að villast. Rannsóknarlögreglumaðurinn hallaði sér aftur á bak í stóln um. Að það skyldi taka mig meira en þrjá mánuði að skilja þetta, hugsaði hann. Og þetta var fyrir augunum á mér allan tímann. Konan, sem sendl peningana, var sú sama og ók yfir eiginkon- una. Það var líka sú sama kona og hiálpaði til með börnin og elskaði eiginmanninn. Biarni var rétt kominn með fiugvélinni frá Vestmannaeyj- um. Það tók því ekki fyrir hann að -fara í bæinn. Flugyélin til Kaupmannahafnar færi eftir hálf tíma. Þá væri hann öruggur á nýj- an leik. Hann hló með sjálfum sér. Öruggur fyrir fullt og allt og enginn myndi nokkru sinni draga hann fyrir lög og dóm fyrir það, sem hann hafði gert. Hann væri erlendis, ekki á Norðurlöndum, heldur einhvers staðar úti í heimi með fullt af peningum og allt til alls. Skolli hafði það verið sniðugt af honum að kaupa farseðilinn í Eyjum og ákveða að fara með síðdegisferðinni til útlanda. Gott að epgan skyldi gruna neitt. Hann hefði verið stoppað- ur fyrir löngu, ef einhvern hefði grunað eitthvað. Heppnin þurfti bara að vara einn dag til viðbótar. Það hafði eiginlega tekið hanm alltof langan tíma að sanka sam- an þessum peningum, sem hann taldi sig þurfa. Eða höfðu dagarnir aðeins ver- ið svona lengi að líða vegna þessa nagandi ótta, sem liafði hann á valdi sínu? Ef einhver barði að dyrum, féjkk hann ákafan hjartslátt. Nú komu þeiri Þarna voru þeir! Stnndum hafði ihann iðrasit yfir að drepa hana, en hún var bezt geymd þar sem hún lá inni í skápnum. Ekki kjaftaði hún frá þar. Og í dag var hann áhyggju- Framhaldssaga eftir Ingibjörgu Jónsdóttur 31. HLUTI laus. Ekkert gat gengið honum á móti hér eftir. Eftir fáeina klukkutíma yrði hann kominn til Kaupmannahafn ar og þaðan var leiðin opin út í víða veröld. Hann kyldi sjá um sig. Hvort hann skyldi ekki sjá um sig. Þegar húseigandanum færi að leiðast eftir leigunni og hann sendi til löggunnar og bæði hana um að dírka allt upp yrði Bjarni Sigurðsson horfinn. Bjarni sá að fólkið gekk upp að afgreiðsluborðinu og reis á fætur. — Setjið töskuna þarna, sagði afgreiðslumaðurinn við hann og benti á vigt við borðið. Bjarni henti töskunni upp á. Tæp tíu kíló. Það var sko engin ástæða til að burðast með alltof mikið með sér. Ekki skildi hann þetta fólk, sem var að dragnast með tutt- ugu kíló í eftirdragi, þó það skryppi út fyrir landsteinana. — Farseðill? spurði afgreiðslu maðurinn. Bjarni dró fram farseðilinn góða, keyptan í afgreiðslunni í Vestmannaeyjum. Afgreiðslumaðurinn færði inn vigt töskunnar, hefti miða á far- seðilinn, sem sýndi númerið, sem fest var á töskuna og rétti svo Bjarna farseðilinn aftur. — Hvað geri ég svo? spurði Bjarni. — Þér skulið bíða þangað til kallað verður í hátalarann að þér eigið að gefa yður fram við útlendingaeftirlitið. — Ég er ekki útlendingur, sagði Bjarni undrandi. — Hann merkir við nafnið yðar á farþegalistanum, svaraði afgreiðslumaðurinn. — Það er inn um þessar dyr þarna í horn- inu. Bjarni tyllti sér á stólbrún- ina og sat sem fastast þegar rödd í hátalara tilkynnti: „Passengers to Glasgow and Copenhagen please report to the passport control immediately. — Farþegar til Glasgow og Kaupmannahafnar vinsamlegast hafið samband við útlcndinga- eftirlitið.” Farþegarnir þyrptust að litlu dyrunum í horninu. Bjarni stóð kyrr. Nú lá honum ekkert á. Nú vissi hann að hann var slopp- inn. Loksins var hann öruggur. Hann gekk síðastur allra inn. Hann gekk upp að afgreiðslu borðinu. Fyrir innan það stóð stór og stæðilegur maður. — Á borðinu fyrjr frmaan hann lá vélritaður listi og það var merkt við flest nöfnin, sem á listanum stóðu. „Nafn?“ spurði maðurinn. „Gjarni Guðmundsson,” svar aði Bjarni. „Guðmundsson, Bjarni,” taut aði maðurinn og leit svo snögg- lega upp.” Hvar eigið þér heima Bjarni?” „í Vestmannaeyjum.” '^Aldrei búið í Raykjavík?” „Ja, jú,” svaraði Bjarni. „Eg á víst lögheimili að Höfðaveg 9.” Útlendingaeftirlitsmaðurinn Fata viðgerðir SETJUM SKINN A JAKKA AUK ANNARRA FATA VIÐGERÐA 1 SANNGJARNT VER8. Skipholtl 1. - Síml 18441. SÆNGUR Endurnýjum gömlu sængurnar. Seljum dún- og flðurheld ver. NÝJA FIÐURHREINSUNIN Hverfisgötu 57A. Sími 167S8 iiwnwwwwwwmwwwiw SÆNGUR • REST-BEZT-koddar Endurnýjum gömlu J! | sængumar, elgum < > ! dún- og fiðurheld ver. j! Seljum æðardúns- eg J! ! gæsadúnssængur — < j og kodda af ýmsnm J! ! stærðum. <; DÚN- OG ; | FIÐURHREINSUN Vatnsstig 3. Sími 18740. |; WW»WWWWWWW«*WWWWM veifaði í einhvern mann fyrir framan glerið. „Eg verð að biðja yður um að fara fram fyrir,” sagði hann. „Það hefur verið sett far- bann á yður.” „Ha? Hvað? Farbann? Hvað er það?” „Það eru hérna menn, sem vilja tala við yður og þeir munu án efa útskýra fyrir yður ástæð- r ALÞYÐUBLAÐIÐ - 29. júní 1965 |,3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.