Alþýðublaðið - 29.06.1965, Blaðsíða 10
I
Ritsfióri Qrn
SVEINAMEISTARAMÓT íslands
í frjálsum íþróttum fór fram á
Laugardalsvellinum um helgina.
Þátttaka var allgóð í mótinu, alfs
sendu níu félög( héraðssambönd
og íþrót'íabandalög nærri 30 kepp
endur til mótsins. Framkvæmd
tókst vel og árangur var allgóö
ur, þó að ekkert met væri sett.
ÍR—ingar voru mjög sigursælir
á mótinu híutu alls sjö sveina
meistara af tíu og át-u einnig lang
fleala Jþát takendur. Einer Þor
grímsson var mjög sigursæll, hann
sigraði í fjórum einstaklingsgrein
um og var í boðhiaupasveit ÍR,
isem sigraði í 4x100 m. boðhfaupi.
I hinni ágætu sveit IR, sem þátt
tók í mótinu vom synir tveggja
fraeg'Ul frjálsíþróttakappa 'félags
iri's fyrir 15 árum, Finnbjörn 14
ára sonur spreithlauparans Finn
björns Þorvaldssonar og Haukur
Skúfi 12 ára gamall sonur Arn
ar ClaiEsen. Þeir Finnb;örn og
Haukur eru algerjr nýliðar og lofa
góðu, ásamt mörgum öðrum pilt
um, sem þátt tóku í mó*inu. Þór
Konráðsson er einnig piltur, sem
gótur náð langt-
f riJ-
Jón' Sigurmundsson, Héraðseám
bandi Vesíur—ísfirðinga sigraði
örugglega í 80 og 200 m. hlaupum
og varð annar í hástökki og hann
ei; mjög efnilegur. Kjartan Kol
béinsson ÍR sigraði í báðum kast
greinum, kúi'uvarpi og kringlu
kásti og Bergur Höskuldsson, Úng
ménriasambandi Eyjaf jarðar í 800
m, hlaupi- Ýmsir fleiri piltar lofa
góðu, svo sem Jóhann Friðgeirs
son, Eyjafirði, Valgarð Valgarðs
son, Skagafirði t Hjálmur Sjgurðs
ison, ÍR, og fleiri.
ÚRSLIT:
Fyrri dagur:
80 m. hlaup: Jón Sigurmundsson,
HVÍ, 9.7 sek., Jóhann Friðgeirs-
son, UMSE, 9.8, Þór Konráðsson,
ÍR, 10.0, Haraldur Guðmundsson,
ÍBA, 10.5, Snorri Ásgeirsson, KR,
ÆO.'S Finnb. Finnbjörnsson ÍR, 10-6
JÓN SIGIJRMUNDSSON, HVÍ,
efnilegur spretthlaupari.
Haukur S. Clausen (sonur Arnar
Clausen) er aðeins 12 ára, en varð
6. í langstökki á Sveinamótinu.
Kúluvarp: Kjartan Kolbeinsson,
ÍR, 13.42 m., Valgarð Valgarðs-
son, UMSS, 13.26 m. Hjálmar Sig-
urðsson, ÍR, 12.51 m., Jóhann Frið
géirsson, UMSE, 11.85 m. Óli Jón
Gunnarsson, USVH, 11.76 m.,
Bjarni Guðm., USVH, 10.61 m.
Stangarstökk: Einar Þorgrímsson,
ÍR, 2;73 m., Hjálmur Sigurðsson
ÍR, 2.73 m., Kjartan Kolbeinsson,
ÍR, 2.65 m., Halldór Matthíasson,
ÍBA, 2,65 m. Finnbjörn Finnbjörns
son, ÍR, 2.55 m.
200 m. hlaup: Jón Sigurmundsson,
HVÍ, 24.9 sek., Jóhann Friðgeirs-
son, Umse, 25,3 Einar Sigmunds
son, UBK, 26.2, Friðrik Sigurðs-
son, ÍBA, 26.6, Óli Jón Gunnars-
son, USVH, 26.9, Snorri Ásgeirs-
son, KR, 28.5.
Hástökk: Einar Þorgrímsson, ÍR,
1.65 m., Jón Sigurmundsson, HVÍ,
1.55 m„ Hrólfur Egilsson, USVH,
1.45 m. Ágúst Þórhallsson, Á, 1.40
m., Hróðmar Helgason, Á, 1-40 m.
SÍÐARI DAGUR:
80 m. grindahlaup: Einar Þor-
grímsson, ÍR, 12.5 sek., Haraldur
Guðmundsson, ÍBA 13.2 Snorri
Ásgeirsson, KR, 14.1, Hróðmar
Helgason, Á, 14.4.
Langstökk: Einar Þorgrímsson, ÍR,
5.90 m. Þór Konráðsson, ÍR, 5.53
m„ Valgarð Valgarðsson, UMSS,
5.45 m„ Bjarni Guðmundsson, US
VH, 5.11 m„ Haraldur Guðmunds
Framhald á 11. sfðu.
Boðhlaupssveit IR, sem sigraöi í 4x100 m. boðhlaupi á Sveina.
meistaramótinu, talið frá vinstri: Einar Þorgrímsson, Þór Kon.
ráðsson, Finnbjörn Finnbjörnsson og Guðmundur Ólafsson.
Haukar og Reynir
gerðu jafntefli 1-1
Ólafur Guðm., KR 22,2 og 49,8 sek.
í SAMBANDI við Sveinameistara
mótið var keppt í sex greinum
karla og kvenna og náðist góður
árangur: Mesta athygli vakti 200
0|g 400 hl. Ólafs Gúðmunds-
sonar, KR, sem náði sinum bezta
árangri í báðum greinunum. í 400
m. hlaupinu hljóp Ólafur í fyrsta
sinn á betri (íma en 50 sek., eða
49,8 Þórður Guðmundsson, UBK
varð annar £ 1500 m- hlaupi á eft
ir Kristleifi og náði sínum lang
bezta tímat 4.09,6 mín.
200 m. hlaup: ölafur Guðmunds-
son, KR, 22.2 sek, Ómar Ragnars-
son, ÍR, 23.6 sek. Ingólfur Ingólfs
UBK, 24.2 sek.
800 m. hlaup: Halldór Guðbjörns-
KR, 1:57.0 mín. Agnar Leví,
KR, 1:57.4 mín. Kristl. Guðbjörns
son, KR, 2:00.6 mín. Þórður Guð-
rimndsson, ÚBK, 2:04.4 mín.
200 m. hlaup kvenna: Halldóra
Helgadóttir, KR, 28.3 sek. Linda
Ríkharðsdóttir, ÍR, 29.8 sek.
SÍÐARI DÁGUR:
400 m. hlaup: Ólafur Guðmunds-
son, KR, 49.8 sek. Sigurður Geir-
dal, UBK, 52.9 sek. Agnar Leví,
KR, 53.1 sek.
1500 m. hlaup: Kristleifur Guð-
björnsson, KR, 4.02.2 mín„ Þórð-
ur Guðmundsson, UBK, 4.09.6
mín. Marinó EggertjSson, UNÞ,
4.14.8 mín.
80 m. grindahlaup kvenna: Hall-
dóta Helgadóttir, KR, 13.9 sek.
Linda Ríkharðsdóttir, ÍR, 14.0,
Kristín Kjartansdóttir, KR, 15.9.
Sl. fimmtudag fór fram í Sand-
gerði leikur í II. deild íslandsmóts
ins í knattspyrnu og éttust þar við
Reynir og Haukar. Veður var hið
ákjósanlegasta til knattspyrnu,
logn og sólarlaust, en ekki var
leikurinn að sama skapi vel leik-
inn.
Hins vegar fengu þeir áhorfend
ur sem lögðu leið sina á Sandgerð
isvöllinn að sjá fjöruga keppni frá
upphafi til enda, og mjög spenn-
andi og jafnvel spaugileg atvik,
sem fyrir komu í leiknum, enda
börðust Iiðin um þau tvö stig, sem
gefin eru fyrir leikinn, af miklu
kappi, — en forsjálnin fékk að
sigla lönd og leið. Liðin urðu
samt að lokum að sætta sig við
helmingastaðaskiptin, því leikn-
um lauk með jafntefli, 1:1.
Þegar Reynismenn komu inn á
völlinn 20 mín„ eftir auglýstan
tíma vakti það athygli manna að
þeir voru klæddir gulum peysum,
í stað hvítra. Orsökin fyrir þvi var
sú, að Haukar mættu í hvítum
peysum, en samkvæmt knatt-
Þessir piltar hrepptu öll verðlaunin í kastgreinum Sveinámeistara.
mótsins, frá vinstri: Valgarð Valgarðsson, UMSS, Kjartan Kol-
beinsson, ÍR og Hjálmur Sigurðsson, ÍR.
spyrnulögunum á heimaliðið að
hafa ,fatáskjpti“ undir slíkum
kringumstæðum. Reynismenn
þurftu því á síðustu stundu að
leita á náðir UMFK og fá pevsur.
sendar hraðbyri úr Keflavík.
Fyrri hálfleikur hófst með sókn
Reynismanna og tókst þeim að
skapa sér nokkur tækifæri, sem
ekki nýttust að einu undanskildu,
er John Hill miðframherji,. fékk
knöttinn fyrir miðju og skoraði
af stuttu færi, með föstu jarðar-
skoti. Reynisliðið sýndi framan af
mun betri og ákveðnari leik, en
fyrr á þessu sumri. Þegar um 10
mín. voru eftir til hálfsleiksloka,
virtust Reynismenn vera búnir að
sóa öllu púðrinu og gerðu Haukar
þá mjög harða hríð að marki
þeirra og munaði oft mjóu að met
in jöfnuðust, — þó sérstaklega
einu sinni, er knötturinn rúllaði
eftir markalínunni og miðvörður
Reynis féll við og settist á hann,
við mikinn fögnuð áhorfenda.
Seinni hálfleikur hafði ekki
staðið nema i þrjár mínútur, þeg
ar miðframherji Reynis varð að
yfirgefa völlinn vegna tognunar
og einnm færri það sem eftir var
leiksins, hefði mátt ætla að Reynir
yrði Haukum auðveld bráð að
vinna á. Svo var þó ekki, þrátt
fyrir stöðuga sókn og góðan sam-
á stundum tókst þeim ekki
að finna knettinum leið í mark
þegar Jóhann Larsen skor-
með glæsilegu skoti af löngu
Skömmu seinna munaði litlu
að Haukar næðu forystunni, þeg-
ar knötturinn stefndi i opið mark
ið, eftir að Gottskálk hafði misst
af knettinum, en á örlagastundu
tókst bakverði Reynis að bjarga í
horn. Ekki er- óliklegt að Haukar
hefðu genjgið af hólmi með sigur
úr þéssari viðureign, ef þeir hefðu
skiþúlágt sókn sina svolítið betur
Framhald á 11. sfðu.
AGÆTT SVEINAMOT
HÁÐ UM HELGINA
10 29. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ