Alþýðublaðið - 16.07.1965, Síða 4

Alþýðublaðið - 16.07.1965, Síða 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull- trúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900- 14903 — Auglýsingasími: 14906. Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu- blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið. XJtgefandi: Alþýðuflokkurinn. GREiÐSLUHALLI í TILKYNNINGU fjármálaráðuneytisins um hag ríkissjóðs, sem birt var fyrir nokkrum dögum, kom það meðal annars í Ijós, að hagur ríkissjóðs er langt frá því að vera eins og bezt verður á kosið, því á árinu var greiðsluhalli er nam 220 milljónum króna. Arið áður, 1963 varð hinsvegar allverulegur greiðslu afgangur. Þessi breyting til hins verra á sér margar orsak ir, sem ítarlega voru raktar í tilkynningu ráðuneytis- ins. Tekjur og gjöld ársins 1964 fóru verulega fram úr áætlun, gjöldin þó meira en tekjurnar. Á sumum sviðum var það af ófyrirsjáanlegum orsökum að svo fór. Langt er nú síðan hagur ríkissjóðs hefur verið svo slæmur sem nú er, og er frumorsök þess að sjálf sögðu sú, að á hann hafa verið lögð útgjöld án þess að nægilega miklar tekjur kæmu á móti. Sú þróun fær ekki staðizt til lengdar. Á móti öllum útgjöldum verða að koma tekjur þannig að jafnvægi haldist. Vafalaust er það svo, að spara má verulega á ýmsum liðum ríkisrekstursins, en oftast hefur það þó verið þannig, að hafi ríkisstjórnin flutt sparnað- artillögur, eða lagt til minnkuð útgjöld á einhverj- um umdeildum sviðum, þá hafa stjórnarandstæðing- ■ar snúizt öndverðir gegn því og heimtað meiri út- gjöld og hærri f járveitingar, en jafnan látið undir höf uð leggjast að gera grein fyrir fjáröflunarleiðum og gert sitt bezta til að telja fólki trú um að hægt væri að eyða og spenna hömlulaust á öllum sviðum án þess að það hefði nokkrar óæskilegar afleiðingar. Alþýðublaðið hefur margsinnis á það bent og sama hafa ráðherrar Alþýðuflokksins og þingmenn gert, að útgjöld ríkisins vegna landbúnaðarmálaa væru orðirt óhóflega mikil og hefur verið lögð rík áherzla á að stefnubreyting yrði framkvæmd í þeim efnum og kappkostað að reyna að minnka útgjöld rík issjóðs til þessara mála. Niðurgreiðslur og útflutningsuppbætur námu á árinu 1964 188 milljónum króna. Þetta er há upp- hæð, um það eru flestir sammála. Með skynsamlegri vinnubrögðum, aukinni sérhæfingu og hagræðingu hlýtur að vera hægt að lækka framleiðslukostnað í íslenzkum landbúnaði, og um leið er því marki náð að lækka útgjöld ríkissjóðs á þessu sviði. Þá kröfu Alþýðuflokksins, að gerð verði stefnu- breyting í landbúnaðarmálum hafa Framsóknar- menn kallað árás á bændur. En hér er ekki verið að ráðast á einn eða neinn, aðeins benda á það sem af- laga hefur farið og breyta verður, ef ekki á að kom ast í óefni. Greiðsluhalli ríkissjóðs fyrir árið 1964 er stað- reynd, sem ekki er hægt að loka augunum fýrir og oneð öllum tiltækum ráðum verður að freista þess að ríkissjóður geti verið hallalaus í framtíðinni eins og tekizt hefur undanfarin ár. FLUGÞJÓNUSTAN H. F. var stofnuð 1. júlí 1965, af Birni Pálssyni og Flugfélagi ís lands h.f. Það er von þeirra, sem að þessu félagi standa, að með stofnun Flugþjónustunnar h.f. sé stigið spor í áttina til bættrar og aukinnar flugþjónustu í landinu. Sumaráætlun Flugþjón ustunnar h.f. sumariö 1965 -V Reykjavík — PATREKSFJÖ RÐUR — Reykjavík: Mánudaga — Fimmtudaga — Laugardaga Frá Reykjavík kl. 10:00 Frá Patreksfirði kl. 11:30 Reykjavík — - ÞINGEYRI — Reykjavík: Miðvikudaga — Laugardaga Frá Reykjavík kl. 14:00 Frá Þingeyri kl. 15:30 Flogið er til FLATEYRAR í sambandi við Þingeyrarflugið, þegar ekki er akfært milli Flateyrar og ísafjarðarflugvallar. -W' Reykjavík — HELLISSAND UR — Reykjavík: Mánudaga — Fimmtudaga — Laugardaga Frá Reykjavík kl. 10:00 Frá Hellissandi kl. 11:00 ^ Reykjavík — VOPNAFJÖRÐUR — Reykjavík: Þriðjudaga — Föstudaga Frá Reykjavík kl. 10:00 Frá Vopnafiröi kl. 12:30 'W' VOPNAFJÖRÐUR — Akureyri — VOPNAFJÖRÐUR: Föstudaga Frá Vopnafirði kl. 12:30 Frá Akureyri kl. 13:45 Frá Vopnafirði kl. 15:00 Reykjavík — - GJÖGUR — Reykjavík: Miðvikudaga Frá Reykjavík kl. 14:00 Frá Gjögri kl. 15:30 4^” Reykjavík — REYKJANES v/ísafjarðardjúp — Reykjavík: Miffvikudaga Frá Reykjavík kl. 14:00 Frá Reykjanesi kl. 15:30 Mr FLUGÞJÓNUS TAN H.F. Símar 21611 og 21612. 4 16. júlí 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.