Alþýðublaðið - 16.07.1965, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 16.07.1965, Blaðsíða 6
Tvö ný leikrit eftir Osborne í London LEIKRIT John Osbornes ,,Inad missible Evidence“, sem gengur um þessar mundir á Myndhamleik húsinu í London, liefur fengið góð ar móttökur. En það nær þó ekki frumraim hans „Look Back in Anger", segja gagnrýnendur. Aðalpersónan er fertugur lög- fræðingur^ sem leggur aðallega fyrir sig hjónaskilnaðarmál. Hann er miðlungi vel gefinn. stað festulans, flæktur í fjölda ásta- mála, viljalaus með öllu — og lif ir nánast á brennivíni og pillum. Þetta er árás á miðaldra manninn, sern búinn er að koma sér vel fyr ir. Hann stendur nú frammi fyrir ‘þerrri .staðreynd, að hann er al- gjörlega misheppnaður — sem eig inmaður faðir, elskhugi, vinnu- veitandi. Hann reynir, leikritið út í ge?n, að gefa skýringu á sjálf um sér og ver.ia sig, með þeim af Ieiðin?rm, að hann leggur aðeins áherzhi á félagslegan aumingja skap ginn. Auk þessa verks hefur Royal Court leikhúsið nýlega frumsýnt annað verk Osbornes „A Patriot for Me“. — Það er sterkt leikhússverk, skrifar The Times, leikhússverk, þar sem hver einasta sena upp- tendrast af tækni Osbornes. Þar sem aðrir liöfundar hafa bundið sig við fastákveðinn stíl, hefur Os borne tekizt að losa sig við hið strang-persónulega, án þess að missa eldmóð sinn. Leikritið lýsir samskiptum þjóðfélagsins og utan veltumannsins. Einkum er það kynvillan, sem Osborne tekur til meðferðar. Hetjan er glæsilegur ungur liðsforingi, sem berst til að rísa unn yfir sitt stand. þ. e. 1 verkalýðss+éttina. Það er ekki fyrr en hann hefur náð hárri stöðu í njósnakerfinu að hann uppgötvar, að hann er kynvilltur. Sovézka niósnaþiónnstan kemst að íeyndar málinu — og loks er flett ofan af honum, og hann fremur sjálfs- morð. Gasnrvnandinn í The Times skrifar, að Osborne hafi „balan sérað“ verkið vel á þann hátt, að hánunktarnir komi. þeaar maður eigi þejrra sízt von- Hann telur að verkið muni verða bekktast vegna kvnvjllunnar, en það er líka fleira í því. skrifar hann. Stjórnmálamenn þurfa að vera við góða heilsu og sterkir, auk þess að vera kaldir og rólegir. þegar kosningaslagur stendur yfir. Her mann Möcherl, innanríkisráðherra Vestur-Þýzkalands, sést hér slá tvær flugur í einu höggi, kæla sig og styrkja undir kosningabarátt- una fyrir kosningarnar 19. september. Kannski þarf hann líka að kæla sig vegna umræðnanna um breytingar á stjórnarskránni, sem ekki hafa náð fram að ganga. BAÐSTRÖND EYÐILÖGÐ Cannes 13. júlí, (NTB—Reuter ) Mjstök sjóliða um borð í banda rísku herskipi ollu því að sex kílómetra strandlengja af einni eftirsóttustu baðströnd í heimi er ónothæf um ófyrirsjáanlegan tíma. Herskipið var statt skammt undan Rjveria ströndinni, skammt frá Cannes þegar sjóliðinn fékk skipun um að losa nokkra of vatns tönkum skipsins. Hann skrúfaði L~á röngum krana með þeim af leiðingum að 12 þúsund lítrar af kolsvartri olíu runnu í sjóinn í ttað vatns, og skömmu síðar varð strandlengjan svört af olíunni. Bandaríkjamenn hófu þegar að gerðir til að minnka tjónið eins og mögulegt var og dældu burt hluta of olíublautum sandinum og settu í staðinn fínasta sand frá Napólíflóa. Þrátt fyrir þes ar aðgerðip telja borgaryfirvöldin í Cannes að hér sé um óbætanlegt slys að ræða. 0 16. júlí 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ „Táningaást"? ÞAÐ URÐU allir undrun lostnir, þegar Sibyl, fyrrum eiginkona leikarans Richards Burtons gekk að eiga 24 ára gamlan popsöngvara Jordan Christopher fyrir skömmu. Jafnvel föður popsöngvarans, Eli Zankoff, varð að orði: „Ég skil ekki, hvað hún sér við Jordan“. Sjálf er Sibyl 36 ára en þrátt fyrir það viröast þau hamingju- söm í hæsta máta. Meðfylgjandi mynd er tckin af „ungu hjónunum“, þar sem þau eru að eyða hveitibrauösdögunum í Flórída. SIMEON, fyrrverandi konungur i í Búlgaríu, hélt nýlega upp á það, að tíu ár voru liðin frá því, að hann varð myndugur og var það talsverð veizla. Hann lagði þar á- herzlu á, að hann hefði aldrei lát- ið af þeirri von sinni að snúa heim á ný og krefjast búlgörsku krún- unnar. Það væru góðir möguleik- ar á, að slíkt mætti takast, sagði hann. Sem bctur færi ætti ríki hans sameiginleg landamæri með tveim and-kommúnistískum lönd um, og það gæti enn skeð, að nú- verandi stjórn Búlgaríu yrði i steypt af stóli. En hann lagði á- herzlu á, að „aðeins vilji þjóðar- j innar“ mælti ráða hugsanlegun? skiptum í stjórnarháttum.......

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.