Alþýðublaðið - 16.07.1965, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 16.07.1965, Blaðsíða 10
••• • ■ ; Hvers vegna borgar sig að kaupa CHAMPION - KRAFTKVEIKJUKERTIN? Það er vegna þess að CHAMPION. KRAFTKVEIKJUKERTIN eru með „NICKEL-ALLOY“ neistaoddum, sem þola miklu meiri hita, og bruna og endast því mun lengur. Endurnýið kertin reglulega. Það er smávægilegur kostnaður að end- urnýja kertin borið saman við þá auknu benzineyðslu, sem léleg kerti orsaka. Með ísetningu nýrra CHAMPION- KRAFTKVEIKJUKERTA eykst aflið, ræsing verður auðveldari og benzíneyðsl- an eðlileg. NOTIÐ ÞAÐ Ný Champion-kcrti geta minnkað eyðsluna BEZA CHAMPION KRAFT KVEIKJU KEJRTIN. Sími 2-22-40 CHAMPION í H Krag Framhald úr opnu. því hvort eitthvert lagafrumvarp yrði samþykkt með stuðningi SF, óháðra, ihaldsmanna eða jafnaðar- manna. Róttækir tækju ekki tillit til flokka eða persóna heldur dæmdu út frá málefnalegum grundvelli er þeir greiddu atkvæði á þingi. Karl Skytte sagði aðspurður í viðtalinu, að stuðningur róttækra við hugsanlegt samkomulag jafn aðarmanna og SF en án Vinstri- og íhaldsmanna gæti komið til greina- Slíkt yrði að dæma mál efnalega. Ef skattafrumvarpið í vor hefði ekki náð fram að ganga án stuðnings SF hefðu róttækir ekki hikað við að greiða atkvæði með SF. Síðan þetta viðtal birtist hefur Skytte sagt í blaðagrein, að hann „muni ekki fallast á sam komulag við SF, en hann telri að sjáifsögðu atkvæði þeirra með ef þeir greiddu atkvæði með frum varpi sem róttækir hefðu borið fram.“ „Information túlkar afstöðu jafnaðarmanna þannig: „Þeir vilja ekki samvinnu við SF lieldur nota atkvæði flokksins á þjóðþinginu án þess að veita honum pólitísk áhrif“. Blaðið telur þetta klóka stefnu, og K. B. Andersen kennslu 10 16. júlí' 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ i? málaráðherra segir í aðalmál- gagni jafnaðarmanna, „Aktuelt", að það séu ekki jafnaðarmenn heldur stjórnarandstöðuflokkarn- ir sem hafi átt samleið með SF .í stjórnmálunum. Varðandi möguleika á samvinnu danskra stjórnmálaflokka í fram- tíðinni hafa ummæli hins nýja leiðtoga þingflokks Vinstri flokks ins, Poul Hartling, vakið athygli. Hann sagði m. a.: „Vinstri flokk- urinn vill koma baráttumálum sín um fram og i mörgum málum gæt um við gert það ásamt jafnaðar- mönnum’*. Þetta er túlkað þannig, að Vinstri flokkurinn leggist ekki gegn samvinnu við Krag. í ræðu sinni á flokksþingi jafn- aðarmanna sagði Krag um afstöð una til SF: Ég hef hafnað þessum klofningsflokki. Ég hef hafnað því, að þessi flokkur skuli ráða stefnu okkar með samningum. Látum Ak- sel Larsen vera þar sem hann er. En um það hef ég ekkert sagt hvort við mundum hafa nokkuð á móti því við kringumstæður þær, sem nú ríkja, að atkvæði þeirra verði talin með. Þingræði okkar veitir Larsen og hans flokki rétt til að greiða frumvörpum stjórn- arinnar atkvæði, en við skulum ekki fara í neinar grafgötur um, að ekki er hægt að grundvalla stefnu á SF. Ég legg á það áherzlu, að jafnaðarmenn framfylgja sinni eigin stefnu sem stjórnarflokkur án þess að vera háður SF. Á þingínu var engin tillaga bor- in fram, sem gengur í berhögg við hina yfirlýstu stefnu í þessu máli. Öllum hugmyndum um stjórnarsamvinnu eða aðra samvinnu með SF var hafnað, og í lokaræðu sinni gat Krag stað- hæft, að enginn hefði krafizt þess að jafnaðarmenn ættu að taka upp samvinnu við SF eða komast að samkomulagi við SF. Einn þeirra sem hvatti til þess, að SF yrði tekinn „liprari tökum”, var Holger Eriksen ritstjóri frá Árósum, kunnur þingmaður. í um- sögn hans um þingið í blaðinu „Demokraten" sagði m. a.: Margt varð skýrara, sérstaklega þar eð þeirri kenningu var hafnað að jafnaðarmenn gætu ekki .borið fram frumvarp ef staðfesting þess væri komin undir atkvæðum SF. En formaður Róttæka flokksins hafði greitt þessari kenningu banahöggið áður en þingið hófst, sagði Holger Eriksen. En á þinginu skiptu þessi mál minna máli en umræðurnar, sem lauk með því að samþykkt var þróttmikil og jákvæð stefnuskrá. Frá Olafsvík Framhald úr opnu. unni, sem áður var forláta sleðabrekka, er verið að byggja hús. Og er það stýrimaðurinn á Jóni Jónssyni, Olgeir Gísla son, sem á það. En á Oddablett inum gamla, þajr sem Rósa munda bjó fyrrum, er nú leik völlur- Þar er skjólsamt og ^ott að vera. Þær Jóhanna Kristjánsdóttir og Elínborg Á gústsdóttir sjá um völlinn- E1 ínborg var einmitt form. Kven félags Ólafsvíkur þegar völlur inn var í býgerð og vann ötul lega að framgangi málsins og getur nú glatt sig við árangur starfs síns og félagsins. Völlurinn er starfræktur frá þvi 15. maí til 15. september alla daga rá kl. 1. til 6 nema laugardaga og sunnudaga. Þangað koma 50-70 börn dag lega og mikið er að starfa- Og dagurinn er heitur af sól og götumar þurrar. Bílarnir þjóta hjá og þyrla upp ryki, svo að ég sný mér undan- Þess er að vænta að byggðin vaxi og verði þess umkomin að stein leggja stræti sín og torg. Þetta eru hugleiðingar á heit um júlídegi, þegar sjórinn er sléttur og sólin skín. Sumar í Moskvu Framhald af síðu 7. Vishinskys, sem hefði að sögn blaðsins ,,veitt lögfræðilega rétt lætingu á ógnum og ofbeldi gegn saklausu fólki." Jafnvel sama dag hefði verið bent á það í ritstjórn argrein í blaðinu, að enn hefðu engu ljósi verið varpað á réttar höldin gegn Zinoviev, Kammanev og fleirum. „Án tillits til þeirra atvika, sem leiddu til þess, að þetta mál var hafið, ber dómstólnum að sýna það sjálfstæði að sýkna ákærðan", voru lokaorð verjandans. „ÞETTA ERU undarleg réttar höld,“ sagði Mikajlof í lokaræðu sinni og rifjaði síðan upp hand töku sína og yfirheyrslur fyrir réttarhöldin og þær ásakanir, sem hefðu verið bo-nar fram gegn honum og fjölluðu um allt frá ,,dulhyggju“ til „óvirðingar við minningu Leníns“. Þó kvaðst hann ekki hafa skrifað annað en sann leikann, „og ég mun halda áfram að skrifa á sama hátt.“ Mikajlof kvað ekkert í skoð unura sínum vera andsósíalískt, því að tala um sovézku fangabúð irnar væru raunverulega >að segja: „Sú staðreynd, að ég er andstalín isti gerir mig óhjákvmilega að fasista!“ ,,Ef þessi réttur dæmir mig, dæmir hann um leið alla sagn fræði,“ hélt Mikajlof áfram, „því að þá hafa sagnfræðingum verið gefin fyrirmæli um hvað er leyfi legt að birta sem sagnfræðileg gögn.“ Máli sínu lauk Mikajlof síðan með þv: að vitna í ummæli eftir Bertrand Russel- Morguninn eftir úrskurðaði dóm urinn, að Mikajlof væri sekur um bæði ákæruatriðin. ,,Allt sem fram hefur komið, bendir til þess ,sagði dómarinn „að tilgangur hans hafi verið sá að gera lítið úr þeim árangri, rem núverandi ríkisstjórn Sovétríkjanna hefur náð í baráttu sinni gegn stalin isma. Dómurinn liljóðaði upp á 5 mánaða fangelsi fyrir hvora ákæru en refsingunum var slegið saman i níu mánaða fangeTi, að frá dregnum þeim 37 dögum, sem hann hafðj þegar verið í haldi- Mikajlof áfrýjaði dóminum og fékk að ganga laus þar til yfir rétturinn í Zagreb felldi dóminn. „Þetta var snjall dómur,“ sagði vestrænn fréttamaður sem var við staddur. „Hann er nógu strang ur tif að ])óknaBt Rússum ig hafa hemil á frjálslyndum mönn um -;• Júgóslavíu, en ekki nógu strangur til að vekja nein veru leg mótmæli meðal frjálslyndra manna á Vesturlöndum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.