Alþýðublaðið - 31.07.1965, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 31.07.1965, Blaðsíða 2
heimsfréttir Æ7/....siáastlidna riótt ★ SAIGON: — Hermenn Vietcong felldu marga stjórnarher- 2 menn er beir gerðu árás á þjálfunarbúðir 12 km suðvestur af Saig- On í gær. Mikið mannfall varð os í liði stjórnarinnar er Vietcong réðist á setulið stjórnarinnar við flugvöll einn í miðhluta Suður- Vietnam bar sem búizt er við að skæruliðar hefii stórsókn inn- an tveggja mánaða. ★ HANOI: — Sendinefndin frá Gliana, sem dvalizt hefur í Ha.noi, hélt heimleiðis í gær. Formaður nefndarinnar, Kwes Armah, utanríkisverzlunarráðherra Ghana og stjórnarfulltrúi í London, afhenti Ho Chi Minh forseta persónulegan boðskap frá Kvvame Nkrumah forseta. ★ WASHINGTON: Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Dean Eusk, játaði í gær að Vietnamdeilan torveldaði nýjar tilraunir til að færa samskipti Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í eðlilegra Iiörf. Rusk sagði þetta er hann gerði utanríkisnefnd öldungadeild arinnar grein fyrir ræðismanns samningi sem löndin undirrituðu í júlí í fyrra. Andrúmsloftið er lævi blandið sagði liann, en við megum ekki missa sjónar af þeim málum þar sem ná má samkomulagi eins og ræðismannssamnignum og afvopnunar ráð stefnunni í Genf, ★ BELGRAD: — Tito forseti sagði í gær að hann og Shastri, forsætisráðherra Indlands, mundu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að stuðla að lausn Vietnammálsins og vonandi væri Nasser forseti á sama máli, en honum og öllum fulltrúum á ráðstefnu hlut lausu ríkjanna í Kairó í október yrði skýrt frá viðræðunum á .Brioni. ★ AÞENU: — Fyrirhuguðum aukafundi gríska þingsins í gær veu1 frestað vegna þess að stjórnarandstöðuflokkarnir neituðu að itaka þátt í honum þar sem Georg Papandreou fv. forsætisráð- harra var ekki mættur. Leiðtogi Þjóðlega róttæka flokksins. Canellopoulos, sagði að Papandreou yrði að mæta og gera grein fyrir orsökum þess að borgarbúar hefðu lifað af náð skrílsins und aufarnar tvær vikur. ★ GENF: — Formenn sendinefnda vesturveldanna á afvopn unarráðstefnunni í Genf héldu fund með sér í dag til að sam- ræma tillögur Breta og Kanadamanna um samning um bann við dreifingu kjarnorkuvopna. ★ PARÍS: — Frakkar munu ekki taka þátt í NATO-hexæf-k ingunum „Fallex 1965“ að því er áreiðanlegar heimildir herma. Eagir franskir liðsforingjar sem starfa á vegum NATO munu taka þáit í æfingunum. í maí sögðu Frakkar að engir liðsforingjar, sem stjórnuðu frönskum hersveitum, mundu taka þátt í heræf- ingunum. NATO verður leyft að nota franska fjarskiptakerfið i æfingunum. ★ LONDON: —• Brezka stjórnin vísaði í gærkvöldi öðrum sendráðsritara við sovézka sendiráðið í London, Vitali K. Bojarov, lír landi. í fyrradag var Antony Bishop, öðrum ritara við brezka sendiráðið í Moskvu vísað úr landi, gefið að sök að hafa verið við- riðinn Brooke-málið. ★ LONDON: — Blað í Liverpool fékk í gær nafnlaust bréf þar sem Harold Wilson forsætisráðherra var hótað lífláti næst er 'hann heimsækir kjördæmi sitt Huyton í Lancashire. ★ STOKKHÓLMI: — Stjómmálaleiðtogar og verkalýðsleið- togar frá sex Evrópulöndum og Bandaríkjunum sitja óformlega ráð stefnu jafnaðarmanna að sveitasetri sænska forsætisráðherrans Harpsund um lielgina. ★ BAMBERG: —• Tvítugur maður, Reinhard Woitzik, hefur verið handtekinn í Bamberg, Vestur-Þýzkalandi, grunaður um að hafa málað hakakrossa á legsteina í kirkjugarði Gyðinga í borg- inni. tlervirki i Bam■ berg upplýst? BAMBERG, 30. júlí (NTB-DPA). f!(l ára gamall maður, Reinhard (Vait-zi hefur verið handtekinn í (Bámberg í VesturÞýzkalandi, prun iður um að hafa málað haka -ðoMtss á steina í kirkjugarði Cyðinga í borginni. Hakakrossmálið í Bamberg hófst 13. júlí sl. er hakakrossar og andgyðingleg slagorð voru mál uð á minnismerki um Gyðinga. Tveimur dögum síðar voru haka krossar málaðir á 23 steina í Gyðingakirkjugarðinum í bænum. 20.000 marka launum var heitið þeim, er gefið gætu upplýsingar, sem leitt gætu til handtöku hins seka. Framh. á 14. síðu. Vietcong hyggur á sókn í miðhálendi Saigon, 30. júlí (NTB - Reuter) Vietcong-hermenn felldu marga stjórnarhermenn, er þeir gerðu árás á þjálfunarbúðir 12 km suð- vestur af Saigon í dag. Árásar- mönnum tókst ekki að sprengja vopnabúr búðanna í loft upp. Mikið mannfall varð einnig í liði stjórnarinnar, er Vietcong gerði árás nálægt Tuy Hoa, um 400 km norðan við Saigon. Skæru- liðar réðust á suður-vietnamiskt setulið við flugvöll, sem lagður hefur verið niður. Flugvöllurinn er í miðhluta Suður-Vietnam, þar sem talið er að Vietcong búi sig undir stórsókn. Suðvestan við Saigon halda bandarískir fallhlífaliðar áfram víðtækum aðgerðum gegn Viet- cong og hafa til þessa fellt tvo skæruliða án þess að nokkur hafi fallið í liði þeirra sjálfra. Rúm- lega 400 km lengra í norðaustri hafa suður-vietnamískir hermenn fellt 22 Vietcong-hermenn í svip- uðum „hreinsunaraðgerðum" sunn an við Da Nang. í miðhluta Suður-Vietnam hef- ur flokkur Vietcongmanna ráðizt á þrjú þorp skammt frá bænum Kontum, sem er í umsátri. Óbreytt ir borgarar streyma frá þessu svæði og fleiri svæðum, til stærri bæja af ótta við meiriháttar sókn af hálfu Vietcong. Margir segja, að kommúnistar hafi sjálfir gefið í skyn að stórsókn sé í vændum. t fjöllunum umhverfis Pleiku er talið að staðsettar séu fjölmenn ar hersveitir Vietcong auk sveita úr fastaher Norður-Vietnam. í Suður-Vietnam er talið að hin væntanlega sókn verði gerð innan tveggja mánaða. Einnig er búizt við því, að hinn nýi liðsauki Bandaríkjamanna fari fyrst og fremst til Pleiku. Blaðafréttir herma, að hið nýja hreyfanlega herfylki, sem koma á á fót, verði sent til Pleiku svæðisins. í her- fylkinu verða 16.000 fótgöngu- og fallhlífaliðar. í Tokyo er reynt af bandarískri hálfu að róa Japani, sem fellur það miður að loftárásir á skotmörk í Vietnam séu gerðar frá banda- rískum herstöðvum á Okinawa. Sagt er, að margar B-52 sprengju- Framhald á 10. síðu Eftirvinnubann í Vestmannaeyjum Eftirvinnubann verkalýðsfélag anna í Vestmannaeyjum kom til framkvæmda í gær og munu fisk vinnslustöðvar ekki taka við meiri fiski til vinnslu fyrr en eftir þjóð hátíð. Gildir þetta bæði um síld arvinnsluverksmiðjur og frystihús Mikil óunnin síld liggur nú í Eyj um og með þessarf vinnutakmörk un er óvíst hvort unnt reynist að bræða hana fyrir þjóðhátíð, en þá leggst öll vinna niður í Vesti mannaeyjum. Víðast kalt um helgina Reykjavík, — GO. í gærkvöldi losnuðu þakplötur á húsi Pípuverksmiðjunnar við Rauðarárstíg. Þá var vindur hér norðlægur, 6 og upp í 7 vindstig og sjór sagður ganga yfir Skúla götu. Páll Bergþórsson sagði að Framhald á 14. síðu. Varizt slysin! VERZLUNARMANNAHELGIN, mesta umferðarhelgi sum. arsins, fer nú I hönd. Bifreiðum hefur fjölgað mikið hér á landi undanfarin ár og umferðin á vegum landsins fer ört vaxandi. Nú um helgina þegar þúsundir ökumanna halda út á þjóð- vegina eykst slysahættan. Vegfarendur: Sameinist inn að tryggja öryggi í umferð- inni. Sýnið tillitssemi og kurteisi og metið rétt umferðaraðstæð ur. Stefnum að slysalausri verzlunarmannahelgi. Lögreglan. 4HHUMHHMMMMVMUUHUMUUMHUUMUmmWHU1 „Fengizt hefur verðmæt reynsla" Ljósmæðramót Norðurlandamót ljósmæðra verð UT' haldið í Reykjavík dagana 13. til 18. ágúst. Útlendu ljósmæðurn ar koma flestar hingað til lands 12. ágúst, flestar frá Svíþjóð eða um 30. Samband norrænna ljós mæðra var stofnað árið 1950 og er formaður þess Ellen Erup frá Sví þjóð. Þetta er fimmta mótið sem sambandið heldur og í fyrsta sinn hér á landi, en það verður haldið í Landsspítalanum. Tékkneskur styrkur Tékknesk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskóla náms í Tékkóslóvakíu næsta há skólaár, þ.e. tímabilið 1. septem ber 1965 — 30. júní 1966. Umsóknum um styrkinn skal komið til menntamálaráðuneytisins Stjórnarráðshúsinu við Lækjar torg, fyrir 15. ágúst n.k., og skulu fylgja staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum. Umsóknareyðu blöð fást í menntamálaráðuneyt inu. (Frá menntamálaráðuneytinu.) Reykjavík, — GO. Ráðinn hefur verið maður til að veita forstöðu verzlun þeirri með íslenzkar iðnaðarvörur, sem sett var á stofn í Bandaríkjunum á sl. ári. Til þessa hefur Kristján Friðriksson forstjóri Últíma haft umsjón með verzluninni. Verzlun sú sem opnuð var í fyrra á 3. breiðgötu í New York varð fyrir því óhappi í byrjun, að opnun hennar seinkaði um tvo og hálfan mánuð, en af rekstrf henn ar hefur þó fengizt verðmæt KALSI VESTRA ísafirði — BS - GO. í nótt skipti snögglega til hins verra varðandi veðurfarið. Það sem af er sumrinu hefur verið hér vestra yfirleitt mjög hagstætt og gott bæði til lands og sjávar, þurrviðri, stillur og sólskin oft dögum saman. í nótt kólnaði mjög og nú er hér kalsa veður, norð an strekkingur með súld og lítils háttar rigningu. reynsla. Framkvæmd hefur verið all ýtarleg markaðskönnun og hafa mjög athyglisverð atriði komið i ljós í því sambandi. Sumar vörur virðast hafa mikla möguleika, en aðrar litla sem enga, a.m.k. við núverandi aðstæður. Á það er bent í fréttatilkynn ingu Iceoraft að mikið sé núl selt af svipuðum iðnaðarvörum og við höfum í Bandaríkjunum, eink um frá Noregi og Danmörku. Flest ar þessar verzlanir hafa átt við byrjunarörðugleika að etja en kom izt yfir þá og standa nú í miklum blóma og afla þjóðum sínum gjald eyris svo um munar. Leita nú sam tökin eftir samvinnu og aðstoð héðan að heiman til þess að þessi viðleitni til eflingar íslenzku at vinnulífið geti borið árangur. Leit að hefur verið eftir nokkurri fjár hagsaðstoð frá ríkisstjórninni til stuðnings þessari markaðsleit og eru undirtektir góðar, enda í samræmi við fyrirmyndir frá hin um Norðurlöndunum um samstarí ríkis og einstaklinga um slfka starf semi. 2 31. júlí 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.