Alþýðublaðið - 04.08.1965, Page 1

Alþýðublaðið - 04.08.1965, Page 1
Miðvikudagur 4. ágúst 1965 - 45. árg. - 171. tbl. — VERÐ 5 KR. BILL VALT OG BRANN BIFREIÐ valt við Stapa sl. sunnu- dag og gjöreyðilagðist. Eigandi bifreiðarinnar, sem er Bandaríkja- maður, starfaði á Keflavíkurflug- velli, var einn í henni, þegar hún. valt og slapp hann ómeiddur. ViS veltuna sprakk benzínrör með þeim afleiðingum, að kviknaði í bifreið- inni og brann hún til kaldra kola. | Það var margt um mann- | inn í Þórsmörk um verzl- \unarmannahelgina. — Á laugardagskvöld var þar tendraður geysimikill varð- eldur eins og sjá má af með- fylgjandi mynd. Helgin leið án þess að nokkurs staðar kæmi til óláta eða veruleg slys yrðu, og hef- ur sjálfsagt átt sinn þátt í því linnulaus áróður yfir valda og góð löggæzla, þar sem margmenni var saman- komið. - Mynd ÓR Ekki fundarfært á FæreyJaþÉsiii Einkaskeyti til Alþý'ðu- blaðsins: Færeyjum, HJ. Færeyska þingið var sett á Ólafsvökunni og í dag átti aff leggja fram fjáriaga- frumvarp á þinginu fyrir 1966 — 1967, en þá brá svo við, að aðeins 15 þingnenn stjómarflokkanna (Jafinðar- flokksins og SambandsFokks HELGINA Reykjavík. i ÞRÁTT fyrir giíurlega umferð um helgiaa urðu hvergi nein j alvarleg umferðarslys og þaa< sem mannfjöldi var samankominn eins og í Þórsmörk, Húsafellsskógi og Þjórsárdal bar hvergi á ólát- um eða ölvun úr hófi. Nokkrir bifreiðaárekstrar urðu, en slys urðu ekki á fólki. Yfirleitt fóru hátíðaliöldin um helgina eins vel fram og frekast er hægt að gera kröfur um og hvergi skeði neitt í lík ingu við það, sem áður gerði þessa helgi fræga að endemum. í Þjórsárdal er talið að um eitt þúsund manns hafi verið í tjöld- um um helgina, og Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri Landleiða, sem dvaldi þar um helgina tjáði blað- inu, að þar fyrir utan hefðu senni- lega um 2000 manns komið inn í Þjórsárdal til að skoða sig um. Hann sagði ennfremur að um- gengni þar og hegðun fólks öll liefði verið mjög til fyrirmyndar. Veður í Þjórsárdal var með allra bezta móti um helgina, sól og blíða. í Þórsmörk voru þúsundir manna um helgina og þar var veð ur einnig óvenju gott mest alla helgina. Greipur Kristjánsson lög- regluvarðstjóri var í Þórsmörk með tólf manna flokk, og tjáði , hann blaðinu í gær, að þar hefði allt verið með friði og spekt. í Þórsmörk er talið að um 3000 manns hafi verið í tjöldum. Þar 1 var furðu lítið um óspektir og ölv- un ekki mikil, en umgengni hins vegar mátt vera betri. Bindindismót var í Húsafells- skógi og er talið að um það bil þrjú þúsund manns hafi verið þar. Sú skemmtun fór í alla staði liið bezta fram, og þar var alls engin ölvun. í Vaglaskógi var sömuleiðis ann- að bindindismót, sem einnig fór mjög vel fram í hvívetna. í Vagla- skógi er talið að hafi verið um það bil tvö þúsund manns. Mikill fjöldi fólks kom í Bjarkar lund og sömuleiðis Var mikill mannfjöldi í Hallormistaðaskógi, þar sem Ungmenna- |og íþrótta- samband Austurlands stóð fyrir samkomu, sem talið er að tvö þús- und manns hafi sótt. Fáir voru þar Framh. á 15. siðu ins) voru mættir á þingi, en enginn af þingmönmun stjórnarandstöðunnar. Framh. á 15. síðu. FREYSTEINN VARÐ NORÐURLANDAMEISTARI Freysteinn Þorbergsson varð Norðurlandameistari í skák 1965 — 66. Vann hánn síðari einvígisskák sína við Svein Jo- hannessen,-sem er eini alþjóð- legi skákmeistari Norðmanna. Gafst hann upp eftir 26 leiki, þegar hann sá fram á óverjandi mát í öðrum leik. Þeir Frey- steinn og Johannessen urðu efstir og jafnir á Norðurlanda meistaramótinu, sem lauk á laugardaginn, léku þeir því 2 skákir til úrslita. Freysteini nægði að vinna aðra skákina, þar sem hann hafði hærri stiga tölu á mótinu en andstæðingur hans. Hins vegar hefði Johann- essen nægt jafntefli í seinni skákinni, þar sem hann vann þá fyrri. Freysteinn hlaut verðlauna- bikar sem gefinn var af Ólafi, Noregskonungi, en Johannes- sen hlaut bikar frá Oslóborg. Framhald á 15. síðu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.