Alþýðublaðið - 04.08.1965, Síða 4

Alþýðublaðið - 04.08.1965, Síða 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfnll- trúi: Eiður GuSnason. — Símar: 14900- 14903 — - Aiiglýsingasími: 1490B. ASsetur: Alþýðuhúsið við HverfisgötUj Reykjavík. — I’rentsmiðja Alþýðu- blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. Stækkun hreppanna SÍÐASTA MANNTAL leiddi í ljós, að íslendingar eru yfir 190.000, og má ætla, að eftir 2—3 ár komist þjóðin yfir 200.000. Fjölgun er meiri fiér á landi en í flestum löndum Evrópu eða Norður-Ameríku, og ís- lendingar-eru ein þeirra sárafáu þjóða, sem geta glaðzt yfir mikilli mannfjölgun, þar sem landrými og lífs- möguleikar eru fyrir hendi. Manntalið beindi einnig athygli manna að skipt- ingu landsins í sveitarfélög. Enn hefur f jölgað x þétt býli, en sumir hreppar hafa innan við 50 íbúa. Virðist augljós þörf á að endurskipuleggja stjórn sveitarfé- laga og skipan þeirra. Kann að vera, að á því sviði mætti veita öflugra viðnám gegn fólksflótta en hingað til. Unnar Stefánsson hefur tekið mál þetta upp á Al- þingi, er hann hefur tekið sæti þar. Flutti hann fyrst tillögu um fækkun og stækkun sveitarfélága 1963. í greinargerð sagði hann meðal annars: „Margt bendir til þess, að hrepparnir í dreifbýli landsins séu ekki lengur heppilegar einingar til sveit- :arstjórnar. Til þess eru þeir almennt of litlir og of fámennir. Flest þau verkefni, sem annast þarf í dreifbýli landsins, kref jast •víðtækara samstarfs heldur en rúmazt get- ■ur innan hinna gömlu hreppsmarka. Sveitar- félög í landinu eru nú, auk kaupstaðanna, talin vera 215. Læknishéruð eru hins vegar innan við sextíu. Skólahéruð eru mun færri en hrepparnir, og er þó unn ið að sameiningu þeirra víða um land. Hún er talin nauðsynleg vegna þess, að víðast hvar er hagkvæmt, að fleiri en eitt sveitarfélag standi að byggingu heima vistarbarnaskóla, sem oft er þá hægt að staðsetja á jarðhitasvæði Þetta verkefni kallar á stærri heildir ■en eitt hreppsfélag. Með hinni stórfelldu eflingu al- mannatrygginganna á seinustu árum gegnir samfélag ið í heild nú orðið verulegum hluta af framfærslu- : skyldunni, sem var frumverkefni hreppsfélaganna. í í nýjum vegalögum eru hreppavegir lagðir niður. ; Nefna mætti fleiri dæmi, svo sem samræmdar út- ; svarsreglur um allt land, sem öll hníga í sömu átt.“ ' Unnar flutti tillögu sína aftur næsta ár, en í j hvorugt skiptið hlaut hún afgreiðslu á Alþingi. Þó er i augljóst, að margir hafa vaknað til umhugsunar um j þéssi mál og brátt hlýtur að koma að því, að Alþingi j tekur í taumana. Ýmsar aðrar tillögur hafa einnig | verið bornair fram, sem snerta sýslur ekki síður en i Jhreppa, en miða einnig að nýju og hentugu skipulagi j sveitarstjórnamála í samræmi við nútíma aðstæðör. Öflugri sveitarfélög þýða öflúgri hyggð um allt land. 4 4. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ SUPA - MATIC HANDKLÆÐASKAPAR VERZLANIR — SKRIFSTOFUR VERKSMIÐJUR — VERKSTÆÐI VINNUSTAÐIR — VEITINGAHÚS SKÓLAR AUKIÐ HREINLÆTI Á SNYRTIHERBERGJUM ER BEZT TRYGGT MEÐ SUPA-MATIC handklæðaskáp ENGIN ÓHREIN HANDKLÆÐI LENGUR. HVER MAÐUR FÆR HREIN, MJÚK HAN0KLÆÐI. Tvær stærðir fyrirliggjandi. BORGARÞVOTTAHÚSIÐ h.f. BORGARTÚNI 3 — SÍMI10135. ll. ★ FriSur og kyrrð í borginni. ★ Eins og fyrir stríS. ★ Mótorbátar koma í bugtina. ★ HeiSmörk - slysagildra við Rauðhóla. 3= VARLA BÝST ÉG VIÐ, að þaff hafi veriff verri hluti Reykvíkinga, sem fór burt um síffustu helgi, en þaff verff ég aff segja, aff mikið munaði um þann hluta. Síffan fyr- ir stríff hefur ekki veriff eins friff samt í borginni. Ég fór víffa um hana aff morgni, um miffjan dag og á kvöldum, og nú var komiff fyrir-. striffsástand hvað umferff snerti og fámennt var um allar götur. ÁÐFARÁNÖTT sunnudags vakti ég við lestur til kl. fjögúr — og á tímabilinu frá kl. tvö til hálf fjögur heyrði ég ekki að neinn bíll færi um Hringbraut, en venju lega er þungur niður farartækja um br-autina allt til klukkan fimm að morgni, en þá sljákkar. — Það var svo mikil kyrrð í borginni þessa helgi, að ég var næstum far: inn að óska þess að hávaðinn kæmi ekki aftur. EN HANN KOM — og það var ekki neinn smáræðis hávaði. Bíl arnir fóru að streyma til borgar- innan upp úr kl. sex á mánudags kvöld og það var auðheyrt að margir þeirra höfðu lent í erfið leikum, því að það lét í þeim eins og mótorbátum. Hljóðkútar og púströr höfðu áreiðanlega gengið úr skorðum, rifnað sundur og ver- ið skilin eftin einhvers staðar utan borgarinnar. Ég gæti trúað því, að bifvélaverkstæðin hefðu nóg að gera á næstunni. „ÞAÐ VAR ÉRFITT að komast heim“, sagði maður við mig á mánudagskvöld. Hann var að koma austan úr sýslum. „Við vor- um í látlausu kafi allt frá Hvols- velli og til borgarinnar. Það stytti aðeins svolítið upp þar sem bleytt hafði vérið í véginum eða ryk- bundið. En langverst var í Ölfus- inu, því að þar hefur mold verið notuð sem ofaníburður”. ÉG VISSI, að það er ekkert gaman að vera á vegunum í svona umferð. Þess vegna lét ég mér nægja Heiðmörk. Þar hef ég legið í sól og sumri á hverjum degi und- anfarið. Ég bjóst ekki við að sjá marga þar á laugardag eða sunnti dag. En þar var ótrúlega margt af bílum og fólki. Ég held að flest sæmileg bifreiðastæði hafi verið skipuð á sunnudaginn. Ég hef oft sagt það áður, að það er alveg ó- þarfi að fara langt. Það er alveg nóg að fara í Heiðmörk. Þar er ilman af lyngi og mosa að finna í þúsund lautum og þar er kyrrð og friður. EN FYRST ég minnist á Heið mörk, er rétt að vekja athygli á hættulegri gildru við innkeyrsl- una í Rauðhóla. Þar er brú, all- breið að vísu. en helmingur henn- ar er fær, hinn ófær, en það sést ekki fyrr en bíllinn er álveg kom- inn að henni. Það er nauðsynlegt að laga þessa brú nú þegar. Þarna verður slys ef ekkert verður gert. Annars finnst mér líka, að of ná- lægt veginum gegnum hólana hafi verið gengið við malarnámið. Hannes á horninu. EYJAFLUG MEÐ HELGAFELLl NJÓTI3 ÞÉR ÚTSÝNIS, FLJÓTRA OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA. AFGREIÐSLURNAR OPNAR ALLA DAGA. REYKJAVÍKURFLUGVELll 22120 Auglýsingasíminn 14906

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.