Alþýðublaðið - 04.08.1965, Síða 7
BÁTURINN heitir Þórsnes SR
108, og strákarnir, sem eru á
honum, eiga hann sjálfir. Þeir
keyptu bátinn af kaupfélaginu,
sem treystist ekki til að gera
hann út. Þetta eru ungir og
frískir strákar, kallinn hár og
spengilegur og hann segir:
„Það hefur gengið sæmilega
vel hjá okkur, útgerðin, við
keyptum bátinn á sex milljón
ir og höfum þegar borgað hann
niður um tvær. Við fiskuðum
níu hundruð og fimmtíu tonn
á vetrarvertíðinni síðustu og
gátum þá borgað niður iim átta
hundruð þúsund. Nú þurfum
við bara að koma upp aðstöðu
til að verka sjálfir, og þá skaltu
sjá, að við græðum”, segir
liann og brosir.
Það er enginn barlómur í
þessum piltum enda heldur
ekki margir lúxusbílar, sem
bátnum er ætlað að halda uppi
og ótrúlegt er að strákarnir sóli
sig á Malorka á milli vertíða.
Nú eru aflabátarnir roknir til
Hjaltlandseyja og moka henni
upp þar og smærri bátarnir
liggja inni í helgarfríi eins og
farið er að kalla brælurnar.
Einn og einn smápungur læðist
samt í torfu og landar í salt og
segir það sé engin bræla, bara
smá golukaldi, en sjólaust.
Steypubilarnir þjóta um
plássið því allir eru að steypa.
Steypustöðin er. þjóðþrifafyrir-
tæki og setur nokkurn stór
bæjarsvip á plássið og það er
ungur og ódrepandi harðjaxl,
sem rekur stöðina.
Það er þoka og dumbungur,
en samt «r hópur fólks að
leggja up.j í Færeyjaferð með
flugvélinni „Norðfirðingur“. —
í Færeyjum á að halda Ólafs-
vöku hátíðlega og skemmta sér
með því ágæta fólki sem byggir
þær eyjar.
Lítill Tjallatogari liggur við
hafnarbryggjuna og Tjallarnir
skera sig úr á götunni, ganga í
hvítum klofbússum og skítug-
um peysum og með margra
daga skegg.
Á kvöldin og eftir ljósa-
skiptin sjást grunsamleg ljós
í skrúðgarðinum, og ef vel er
að gáð má finna þar forstjóra
og aðra fyrirmenn í plássinu á
fjórum fótum að tína maðk, því
forstjórar og aðrir fyrirmenn
hér eru ekkert frábrugðnir
kollegum sínum annars staðar,
og nú er meir að segja búið að
stofna hér rótarý til að enginn
þurfi lengur að vera í vafa um
hverjir eru aðalmennirnir á
staðnum.
Síldartankarnir, sem Héðins-
karlarnir eru að reisa 'hækka
dag frá degi og feititankurinn
uppi í brekkunni hefur þegar
fengið á sig almenpilega mynd,
enda glymja hamarshöggin
nótt sem nýtan dag.
Sænskir síldarkaupmenn
spranga hér um á hverjum
degi á harða spani eftir síldan-
saltendunum. Það hefði þótt
saga til næsta bæjar, ef ein-
hverjum hefði dottið sú fjar-
stæða í hug fyrir tíu árum að
bjóða Svíum síld, sem liafði
verið veidd fyrir sunnan Langa
nes. Sú síld var alls engin .ís-
landssíld, heldur eitthvað ann
að miklu verra. Nú er semsagt
slegizt um hverja tunnu og
hvergi betri síld en sú sem
veidd er hér fyrir austan.
Spekingarnir segja, að nú
séu þáttaskil í síldveiðunum og
sú skoðun er á lofti, að síldin
hegði sér eitthvað líkt þorskin-
um eða leggist á meltuna nið
ur við botn, þegar hún hefur
fengið sig fulla af átu, og það
þykir nú timanna tákn, að
síldin, sem veiddist í dag og
gær er algjörlega átulaus, og
Jakob segir, að talsverð áta sé
í sjónum, svo útlitið er alls
ekki hábölvað eins og sumir
vilja halda.
Á snúrunum fyrir utan bragg
ana hanga hvítar skyrtur, svo
allt virðist teikna upp á ball-
undirbúning, en nú er hvorki
Atlavíkur- né sveitaskemmtun
svo menn verða að gera sig
ánægða með félagsheimilið hér
í plássinu eða það á næsta
firði.
Reykjarmökkurinn úr bræðsl
unni er óvenjuþykkur í dag og
sá grunur læðist að manni, að
karlarnir þar séu að flýta sér
að bræða upp til að ná helgar-
fríi eins og sjómennirnir. Fíni
forstjórabíllinn stendur fyrir
utan verksmiðjudyrnar og í
gegn um mökkinn má grilla
einhverja flibbakarla, sem eru
að spígspora um, og hænurnar,
sem eiga heima í húsinu á móti
bræðslunni eru á skemmti-
göngu með hananum sínum úti
á miðri götunni, þar sem bíl-
arnir þjóta um flautandi og
skröltandi, eins og maður væri
kominn í mitt Austurstræti.
B. Bjarman.
EVSinningarorð:
FriSmey Guðmundsdóttir
„Guð er eilíf ást,
engu hjarta er hætt.
Ríkir eilíf ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er> húmsins haf,
allt er ljós og líf.
(Stefán frá Hvítadal).
JAFN skjótt og ég í fyrsta sinn
hitti Fríðu hreifst ég af glaðværð
hennar og glæsibrag í hvivetna.
Sú hrifning liefur varað frá fyrstu
kynnum og þróast einlæg vinátta
okkar millum. Á þessum árum
kynntist ég mannkostum Fríðu,
tryggð hennar og höfðingslund,
hugrekki og viljastyrk. Hún var
boðin og búin að gera allt fyrir
alla, enda flestir Akurnesingar
notið gestrisni hennar og manns
hennar, Magnúsar Gunnlaugsson
ar.
Fyrr en varði syrti að, hún var
tekin burt frá öllum ástvinum, en
þó er gott að vita að hún þarf
ekki að líða meira vegna sjúk-
dóms þess, er hún þjáðist af síð-
ustu árin.
Á þeim árum, er Fríða átti við
sinn sjúkdóm að stríða, sýndi hún
fádæma stillingu og liugrekki.
J Hún var eftir sem áður hrókur
alls fagnaðar. Engan hefði grunað,
að hún ætti við dauðans kvöl að
stríða. Við getum ekki gert okkur
grein fyrir því. En meðan guð gaf
henni þrótt, vildi hún allt fyrir
alla gera.
Við vitum ekki né sjáum tilgang
þessa lífs. Kannski er eitthvað
handan landamæranna, sem við
verðum svo vör við.
Ég bið til guðs, að Fríða fái að
hljóta þá hvíld, er hún ó skilið hjá
drottni.
Guð veri með öllum ættingjum,
vinum og vandamönnum hennar
og styrki þá og styðji í þessari
þungu sorg.
Ármann Ileiðar.
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina!
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 34. Sími 13-100
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásvcgi 18. Sími 30945
Áskriftasíminn er 14900
Hafnarfjörður
Heilsuverndarstöðin Sólvangi
verður lokuð ágústmánuð vegna sumarleyfa.
Konuskoðun má þó panta í síma 50536 og
50281. Röntgenmyndataka fellur niður 12.
og 16. ágúst.
Stjórnin.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Eftir kröfu Bílaþjónustunnar í Kópavogi, Gjaldhe'mtunn.
ar í Reykjavík, dr. Hafþórs Guðmundssonar hdl., Lands-
bank aíslands og innheimtumanns ríkissjóðs í Kópa-
vogi að undangengnum lögtaks- og fjárnámsgerðum og
samkvæmt haldsrétti verða bifreiðarnar R-2776, R-10389,
R-2213, R-14284, R-15088, R-17401, Y-840, Y-937,
Y-1226 og Y-1758 seldar á opinberu uppboði sem hald-
ið verður við Félagsheimili Kópavogs við Neðstu-tröð
miðvikudaginn 11. ágúst 1965 kl. 15.00.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
ÚTBOD
Tilboð óskast í smíði innréttinga í rannsókn
arstofur borgarsjúkrahússins í Fossvogi.
Útboðslýsinga má vitja í skrifstofu vora
Vonarstræti 8 gegn kr. 1000,— skilatrygg-
ingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Augiýsingasíminn er 14906
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. ágúst 1965 J