Alþýðublaðið - 05.08.1965, Page 2
eimsfréttir
siáastlidna nótt
★ WASHINGTON: — Johnson forseti fór í gær fram á 1.700
tnilljón dollara aukafjárveitingu við þjóðþingið vegna fjölgunar í
iierliði Bandaríkjamanna í Suður-Vietnam. Ætlunin er að fjölga í
■Kierafla Bandaríkjanna um 340.000 menn þannig að alls verði 2.980.
000 menn undir vopnum í júnílok á næsta ári.
★ NEW YORK: — Fulltrúar hinna sex kjörnu fulltrúa í Ör-
yggisráðinu skiptust í gær á skoðunum um Vietnamdeiluna. Við-
ræðurnar fara fram vegna áskorunar Johnsons forseta um, að SÞ
istuðli að samningum um lausn á Vietnamdeilunni. Hugsanlegt er
talið, að viðræðumar leiði til þess að ráðið verði hvatt saman til
&S ræða ástandið, en Bandaríkin leggjast ekki gegn því. Um af-
£töðu Rússa er ekki vitað en Kínverjar og Norður-Vietnammenn
■£-ru ahdvígir afskiptum SÞ af málinu.
★ SAIGON: — Bandarískar flugvélar gerðu í gær þúsundustu
árás sína á Norður-Vietnam síðan 7. febrúar. í Suður-Vietnam
gerðu B-52 flugvélar frá Guam 7. árás sína á stöðvar Vietcong.
★ PARÍS: — Franski ráðherrann Andre Malraux afhenti kín-
'verska kommúnistaleiðtoganum Mao Tse Tung og Lia Chao Chi
‘forseta bréf frá de Gaulle forseta, samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum í París. Ekkert hefur verið skýrt frá viðræðum Malraux við
't-nnverska ráðamenn.
★ NEW YORK: — 32 Afríkuríki hafa farið þess á leit við
Öryggisráðið, að það fjalli hið fyrsta um kynþáttasefnu Suður-Af
ríkjustjórnar og stefnu Portúgala í nýlendum sínum í Afriku. Góð
ar heimildir herma, að ósennilegt sé að Öryggisráðið ‘komi saman
fyrr en í byrjun næsta mánaðar.
★ BUENOS AIRES: — Sendimaður páfa í Santo Domingo,
Smmanuele Clarizio, sem hefur komið mikið við sögu sáttaumleit-
ana í Domingo-Iýðveldinu, sagði í Buenos Aires í gær að bráða-
fcirgðastjórn deiluaðila yrði mynduð í lýðveldinu innan tíu daga.
★ KHARTOUM: — Frestur sá, sem stjórnin í Súdan veitti
tippreisnarmönnum í Suður-Súdan til að leggja niður vopn rarni
út á miðnætti í nótt og fáir uppreisnarmenn hafa fallizt á tilboð
Stjórnarinnar um sakaruppgjöf og peninga. Þvert á móti berast
fréttir um bardaga í þremur syðstu héruðunum og 70 stjórnarher-
tnenn hafa verið umkringdir.
★ LE LAVANDOU: — Slökkviliðsmenn eru nú á góðri leið
tneð að ráða niðurlögum eldanna sem geysað hafa í skógunum á
frönsku Riviera, en vörður er áhættulegustu svæðunum upp af
(Ströndínni milli Le Lavandou og Saint Tropez.
★ SEOUL: — Stjórnarandstöðuflokkurinn Minjooug í Suður-
Kóreu hefur ákveðið að 63 þingmenn flokksins skuli ekki sækja
þingfundi til að komið verði í veg fyrir að hinn umdeildi samningur
um að færa samSkipti Suður-Kóreu og Japans í eðlilegt liorf hljóti
Staðfestingu. 20 þingmenn flokksins neita að beygja sig fyrir
ákvöi-ðuninni og munu berjast gegn samningnum á þingi.
★ KAIRÓ: — Ákærandi í réttarhöldunum í Kairó hefur kraf
izt dauðadóms yfir Vestur-Þjóðverjanum Wolfgang Lotz og konu
fcans. Þau eru ákærð fyrir njósnir í þágu ísraels.
Gífurlegar annir
við flug til Eyja
Reykjavík OO.
MIKILL viðbúnaður er hjá
Véstmannaeyingum undir þjóð-
liátíðina. sem hefst kl. 14.00 á
morgun og stendur yfir fram á
sunnudagskvöld. Flestir Eyjabúar
flytja þá í Herjólfsdal eins og
þeirra er vandi þessa daga og
liggja þær við í tjöldum. í gær
var þegar margt aðkomumanna
komið til Eyja til að taka þátt í
hátíðahöldunum og búis er við
að fleiri komi til þeirra nú en
nokkru sinni fyrr.
Mikill undirbúningur stendur yf
ir hjá flugfélögunum til að anna
öllum þeim fólksstraumi, sem
fer til Vestmannaeyja vegna þjóð
hátíðarinnar þar. Sérstök þjóðhá-
tíðarfargjöld gengu í gildi hjá Flug
félagi íslands í gær, sem gilda
fram yfir helgi. Hjá Flugfélaginu
enu einnig seldir aðgöngumiðar að
sjálfu hátíðarsvæðinu. t dag
verða farnar margar aukaferðir á
vegum FÍ. Hin nýja Friendshipvél
Blikfaxi, fer fimm ferðir til Eyja
I í dag og fjórar á morgun. Auk
þess munu Dakotavélarnar fljúga
eins og þurfa þykir, eða allt eftir
hver eftirspurnin verður.
í fyrradag voru 600 manns bún-
ir að panta fár til Eyja hjá Flug
félaginu, en margir fara út á flug
völl og bíða þar eftir að sæti séu
laus í flugvélunum, en öruggara
er að panta far með nokkrum fyr
Eldur í Krossanesi
Akureyri — GS — ÓR
í GÆRKVÖLDI um kl. 7 kom upp
eldur í síldarverksmiðjunni í
Krossanesi. Var allt slökkvilið Alt-
ureyrar kvatt á staðinn og kom í
ljós að eldurinn var í síldarþurrk-
ara. Geysimikill reykur steig til
himins frá verksmiðjunni og héldu
margir að eldurinn væri meiri en
hann reyndist vera.
Starfsmenn verksmiðjunnar
voru hættir vinnu og farnir af
staðnum, þegar eldurinn kom upp.
Slökkvistarfið gekk vel, en erf-
itt er að segja um hve miklar
skemmdir hafa orðið af völdum
eldsins. Sennilegt er talið, að
kviknað hafi í síldarmjöli, sem
var í þurrkaranum.
irvara og losna þannig við óþarfa
bið á flugvellinum. Á sunnudag
verður byrjað að flytja þióðhátíð
argestina til baka og mun Blik.
faxi annast þá flutninga að mestu
á vegum FÍ. Tekur hann 48 far-
þega í hverri ferð en Dakotavél-
arnar taka 28 farþega.
Aukaferðirnar hjá EyjaflugJ
Framh. á 14. siðu.
Lögþingið er
enn óstarfhæft
Tórshavn í Færeyjum,
4. ágúst (NTB)
LÖGÞINGIÐ í Færeyjum var enn
óstarfhæft í dag þar eð þingmenn
jafnaðarmanna og Sambands-
flokksins mættu ekki til þing-
funda.
Þingmennirnir mættu heldur
ekki til þings í gær og bendir allt
til þess að orsökin sé atvik, er gerð
ist á þinginu í síðustu viku. Jafn-
aðarmenn vildu þá bera fram frum
varp um, að efnt yrði til Lögþings
kosninga í haust, en málið var
ekki á dagskrá þingsins. Þegar um
það voru greidd atkvæði hvort
flokkurinn skyldi samt sem áður
fá að bera fram frumvarpið fékkst
ekki meirihluti. Samkvæmt regl-
um Lögþingsins er ekki leyft að
fjallað sé um mál utan dagskrár
án samþykkis þingheims.
Sjálfstæðisflokkarnir fjórir eru
um þessar mundin í minnihluta á
Lögþinginu. Þrír af þingmönnum
Lýðveldisflokksins eru forfallaðif
og Lögþingið hefur enn ekki sam-
þykkt kjörbréf varamanna þeirra,
Félagsmála-
ráöherrafundur
Reykjavík — ÓR
EMIL JÓNSSON félagsmálaráff-
herra mun síffar í þessum mánuffl
sitja fund félagsmálaráffherra
Norffurlanda, sem haldinn verffui
í Grená í Danmörku aff þessu
sinni,
Fundir félagsmálaráðherranna
eru haldnir annað hvert ár á Norð
urlöndunum til skiptis, og eru þar
rædd ýmis félagsmál landanna og
tryggingamál.
j Síðasti fundur félagsmálaráð.
j herra Norðurlanda var haldinn á
I íslandi árið 1963, í Bifröst í Borg
' arfirði.
GLÆSILE6UR VEITINGA-
SKÁLI VIÐ ÞRASTASKÓG
Rvík, - ÓTJ
NÝTÍZKULEGUR og glæsi-
legur skáli hefur risiff þar sem
gamli Þrastalundur var, og var
hann opnaður sl,. laugardag.
Skálinn er eign Ungmennafé-
lags íslands. Alþýðublaffiff
hafði símsamband við Hafstein
Þorvaldsson Iögregluþjón á
Selfossi, og ræddi viff hann um
skálann, en Hafsteinn hefur séff
um og stjórnaff öllum fram-
kvæmdum fyrir UMFÍ, auk
þess sem hann hefur sjálfur
lagt mikið verk í bygginguna.
— — hófumst handa 7. júní í
fyrra, og höfum því verið rúmt ár
að ganga frá því sem tilbúið er.
Ekki er þó skálinn alveg fullgerð-
ur, við eigum eftir að leggja síð-
ustu hönd á verkið. En okkur
fannst rétt að opna fyrir verzlunar
mannahelgina, til þess að léttá
eitthvað undir með þeim mikla
mannfjölda, er þá lagði land und-
ir fót. Við höfum trú á því að
þetta geti orðið mjög vinsæll úti-
legustaður. Hér eru tjaldstæði á
fallegum stöðum, fólk getur feng-
ið að nota rúmgóð og snyrtileg
snyrtiherbergi skálans, og við mun
um selja ýmislegt, svo sem
pylsur, ís og þessháttar, og sva
auðvitað benzín. Auk þess höfum
við laxveiðiréttindi, og erum að
byggja hérna íþróttavöll, svo að
það ætti að vera eitthvað við
flestra hæfi sem hingað sækja.
Myndina tók JV. um verzlunar-
mannahelgina. Eins og sjá má er
suðurveggur skálans að mestu
leyti úr gleri, og því mjög gott út-
sýni fyrir þá fjör>utíu gesti, sem
hann rúmar í sæti.
2 5. ágúst 1965 - ALÞÝDUBLAÐIÐ