Alþýðublaðið - 05.08.1965, Síða 3
HWWIMWMMWWWWWMWMMtWWWtWWWMMWWWWWMHWWMtWMMWMtW
„HEF ALDREI MÁLAÐ
HREIN ABSTRAKTVERK"
ÞORKELL Gíslason, listmál-
ari, opnaði í gær málverkasýn-
ingu í Gellery Eggerts E. Lax-
dal, að Laugavegi 133. Á sýning
unni eru 27 myndir sem allar
eru til sölu. Þorkell byi’jaði á
þv£ fyrir einum þrjátíu áriun
aS bregða sér út í náttúruna
með pensla og liti, og festa á
spjald það sem fyrir augun bar.
Hann hefur einnig á annan hátt
hlúð að myndlistinni hérlend-
is, var m. a. einn af stofnend-
um Myndlistarskólans í Reykja
vík, og er enn einn af stjóm-
endum hans.
— Ég hef aldrei farið út í
að mála hrein abstraktverk,
sagði Þorkell í stuttu rabbi við
fréttamann Alþýðublaðsins, þó
að yfirleitt sé hægt að finna
eitthvað abstrakt form á sum-
um myndanna. Ég hef aðallega
reynt að „segja satt” í málverk
unum, þ. e. sýna hlutina eða
náttúruna eins og mér finnst
hún vera. Þó fer ekki hjá því
að sköpunarþráin breiði á
stundum meira úr sér, og ég
hef oft staðið mig að því að
bæta :nn í — en mest til góðs,
held ég.
— Hér eru nokkrar myndir
af höfninni, hefurðu málað
margan myndir frá henni?
— Nokkrar, já. Flestar eru
nokkuð gamlar. Sérðu til dæm-
Is þessa, hún heitir Reykjavík-
urhöfn, og er máluð fyrir
nokkrum árum síðan. Eins og
þú sérð hefur það verið gert
meðan Hæringur gamli lá þar
við landfestar.
— Hvað eru þessar myndir
frá löngu tímabili?
— Ansi löngu. Vatnslita-
myndin þarna af Viðeyjarsundi
er síðan 1933, það er sú elzta.
Nýjasta myndin er sú af Heklu.
Hana málaðj ég i fyrra.
Gallei-y Eggerts er ekki stórt
að fermetratali, og málverk —
ekki sízt landslagsmyndir —
þurfa yfirleitt gott pláss, en
náttúruunnendur ættu samt
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi hjá Þorkeli. Sýningin
verður opin til 14. ágúst.
MMWWWWMMMMMWMWMMWMMMMMMVMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMW
LBJ bíður um meira
fé fil Vietnamhers
Brenndust í tjaldi
í Ódáðahrauni
Washington og Saigon, 4. ágúst
(NTB - Reuter)
Johnson forseti fór í dag fram á
1.700 milijón dollara aukafjárveit
ingu við Þjóðþingið vegna fjölg-
wnar í herliði Bandaríkjamanna í
Suður-Vietnam.
Samkvæmt ákvörðun forsetans
verður upphæðin falin Robert
McNamara landvarnaráðherra til
ráðstöfunar „þegar það reynist
nauðsynlegt í sambandi við hern-
aðinn í Vietnam”. í boðskap for-
setans er ekkert um það sagt,
hvernig fénu verður varið.
Birtur hefur verið hluti af
Ambassador-
ar skipaðir
Á FUNDI ríkisráðs í dag að Bessa-
stöðum var Pétur Thorsteinsson
skipaður ambassador í Banda-
rikjum Ameríku og jafnframt í
Kanada, Argentínu, Brasilíu og
Mexico, og Henrik Sv. Björnsson
Skípaður ambassador íslands í
Frakklandi og við nokkrar alþjóða-
stofnanir í París og jafnframt
ambassador í Belgíu og Luxem-
hourg. Árni Tryggvason, ambassa-
tíor í Svíþjóð var jafnframt skip-
affur ambassádor í Austurriki. Þá
var ísleifur Halldórsson skipaður
héraðslæknir í Hvolshéraði frá 1.
september n. k. að telja.
Á fundinum voru einnig stað-
festár ýmsar afgreiðslur, er farið
höfðu fram utan fundar.
(Frétt frá ríkisráðsritara)
skýrslu, sem McNamara hefur gef-
ið einni nefnd öldungadeildarinn-
ar um f járveitinguna og sagt er að
landvarnaráðherrann hafi gert
grein fyrir áformum sínum um að
fjölga í herafla landsins um 340,-
000 menn þannig að alls verði
2.980.000 menn undir vopnum í
júnílok 1966. Mcamara sagði, að ;
ekki væri ætlunin að fjölga í liðl
Bandaríkjamanna í Vietnam um
340.000 menn. Hann játaði, að
Vietcong hefði frumkvæðið á
landí, en sagði að með hinum
aukna viðbúnaði Bandaríkja-
manna yrði bundinn endi á það.
Bandarískar flugvélar gerðu í
dag þúsundustu loftárásina á Norð
ur-Vietnam síðan 7. febrúar sl.
Fjórar sprengjuþotur af gerðinni
Thunder chief réðust á hernaðar-
leg skotmörk 165 km sunnan við
Hanoi. í Suður-Vietnam réðust 30
bandarískar B-52 flugvélar frá
eynni Guam á Stöðvar Vietcong
við Do Xa í Quang Tint-héraði.
500 km. norðaustur af Saigon. —
Þetta er f sjöunda sinn sem B-52
vélunum er beitt í S-Vietnam.
Samningafundur
Reykjavík,
LOGI Einarsson sáttasemjari hóf
fund með fulltrúum sjómanna á
farskipum og viðsemjendum
þeirra klukkan 21 í gærkveldi.
Þegar blaðið fór í prentun um
miðnættið í nótt stóð fundurinn
enn, og var búizt við að hann
mundi standa eitthvað frameftir
nóttu.
Oporto, Portúgal (NTB-Reuter)
28 portúgalskra fiskimanna er
saknað eftir árekstur sem varð I
morgun með vestur-þýzka far-
þegaskipinu „Appollon” og portú-
galska togaranum „íiadre Bruz”
í niðaþoku úti fyrirj Esposende
norðiu: af Oporto. (f
Akureyri - GS - ÓR
ÞAÐ slys varð neðarlega í Ó-dáða-
hrauni í fyrrinótt, að tjald brann
ofan af tveim leiðangursmönnum
í kortagerðarleiðangri á vegum
Atvinnudeildar Háskólans. Brennd
ist annar þeirra nokkuð, sérstak-
lega á handlegg, en hinn mun hafa
sloppið lítið brenndur.
Leiðangur þessi er sendur af
Atvinnudeildinni til að gera gróðr-
arkort af hálendi íslands, og eru
í honum 11 menn. Leiðangursstjór
Úrvalið sigrabl
Blau-Weiss
BLAU-WEISS, unglinga-knatt-
spyrnuliðið frá Vestur-Berlín, sem
hér hefur dvalið að undanförnu í
boði KR, lék síðasta leik sinn hér
að þessu sinni í gærkvöldi gegn
úrvali KRR. Fór leikurinn fram á
Laugardalsvellinum Orslit urðu
þau að úrvalið sigraði með 4 mörk
um gegn 1. í hálfleik var stað-
an 1—1.
Leikurinn var mun betur leik-
inn af hálfu Þjóðverjanna, þrátt
fyrir það að þeir töpuðu honum.
Þýzka liðið heldur heimleiðis í
kvöld, en það hefur dvalið hér
hálfsmánaðartima og m. a. leikið í
Vestmannaeyjum auk Reykjavik-
ar eru þeir Steindór Steindórsson
og Ingvi Þorsteinsson, og hefur
allt gengið vel fram að þessu
þrátt fyrir óhagstæð veður.
Svo var það í fyrrinótt, að
Steindór og Ingvi vöknuðu við það
að eitt tjaldið stóð í björtu báli.
Voru þeir fljótir til að bjarga
mönnunum tveim út úr því, og er
einstök heppni, að ekki skyldi
fara ver, því að báðir sváfu menn-
irnir í dúnpokum, sem eru mjög
eldfimir.
Fóru þeir Ingvi og Steindór
strax af stað með mennina tvo í
jeppa til að láta gera að sárum
þeirra. Komu þeir til Akureyrar í
morgunsárið í gærmorgun og var
gert að sárum þeirra á Sjúkrahús-
inu hér.
Sá, sem meira var brenndur-,
heitir Ólafur Gíslason og var hann
mest brenndur á liandlegg. Var
hann fluttur suður i gær, ekki
vegna þess að bninasárin væru al-
varleg, heldur vegna þess, að hana
á heima í Reykjavík og ætlar að
jafna sig þar í nokkra daga.
Stokkhólmi, 4. ágúst - (NTB)
„DAGENS NYHETER” hermir í
dag, að Sten Ilammarskjöld, bróff-
ir Dag Hammarskjölds, rnnni
stefna útgefendum „Ilun-Vecko-
journalen” og „Sydsvenska Dag-
bladet” fyrir birtingu greina, þar
sem þvi er haldlff fram aff Hamm-
arskjöld hafi framiff sjálfsmorff.
P
J
ó
N
U
s
T
EYJAFLUG
er loftbrúin milli Lands og Eyja
Leiguflug -
Hópflug -
Tækifærisflug hvert á land sem er.
Reykjavík
2-21-20
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 5. ágúst 1965 3