Alþýðublaðið - 05.08.1965, Blaðsíða 9
ALÞÝÐÚBLAÐIÐ - 5. ágúst 1965 $'
„Bættar samgöngur - vatns-
veita - öflugra menningarlif"
Alþýðublaöiö ræðir við Magnús H. Magnússon, bæjar-
fulltrúa um helztu vandamál Vestmannaeyja.
— Hver eru helztu vandamál
Vestmannaeyja í dag?
Þessa spurningu leggur Al-
þýðublaðið fyrir Magnús H.
Magnússon, póst- og símstöðvar
Stjóra í Vestmannaeyjum. Magnús
er í aðstöðu til að hafa allra
manna bezta yfirsýn yfir vanda-
mál og viðfangsefni Vestmanna-
eyja, því hann er fæddur í Eyj-
um, en fluttist til Reykjavíkur
árið 1930 og var þar í þjónustu
Landssíma íslands, þangað til
hann var skipaður póst- og sím-
stöðvarstjóri í Vestmannaeyjum
árið 1956. Frá seinustu bæjar-
stjórnarkosningum hefur hann
verið bæjarfulltrúi fyrir Alþýðu-
flokkinn, og hefur í bæjarstjórn
látið til sín taka hvert framfara-
málið af öðru.
„Okkur vantar fleira fólk til
Vestmannaeyja. Það er stærsta
vandamálið,” segir Magnús, „fyrst
og fremst fólk, allt árið um kring
i allar atvinnugreinar, og þó mest
f hina beinu framleiðslustarf-
semi. Hér eru starfrækt hin full-
komnustu fiskverkunarhús búin
allri hugsanlegri tækni til auk-
innar framleiðni og vinnusparn-
aðar, en þau vantar alltaf fólk.
Framleiðsluafköst þeirra byggjast
þá að mestu leyti á fjölda verka-
fólks, sem til þeirra fæst. Rekst-
ur þessara fyrirtækja hér áður
fyrr byggðist á aðkomufólki á
vetrarvertíð frá stöðum, sem
bjuggu við tímabundið atvinnu-
leysi. Við þetta voru húsin sniðin.
kvæmar tölur um framleiðslu-
verðmæti, en láta mun nærri að
fob.-verð útflutnings frá Vest-
mannaeyjum sé um 400 milljónír
ki-óna á ári. Undir þessari fram-
leiðslu standa tæplega 5000 íbúar
og reiknast þá til jafnaðar um 80
þúsund króna útflutningsverð-
mæti á hvert mannsbarn. Þegar
svo er komið, að framleiðsluaf-
köst fyrirtækjanna eru komin
undir mannfjöldanum, sem í þeim
starfar,- er greinilegt, að hver
fjögurra manna fjölskylda, sem
til Vestmannaeyja flyzt, skapar
um 300 þúsund króna framleiðslu
aukningu fyrir þjóðarbúið og eyk-
ur gjaldeyristekjurnar að sama
skapi. Fiskurinn er að vísu veidd-
ur, en það er fólksfjöldinn, sem
ræður, hve mikið af aflanum kemst
í dýrari verkunaraðferðir. — Á
þremur mánuðum í sumar hafa
verið unnar síldarafurðir fyrir
MAGNUS H. MAGNUSSON
n
Nú er orðin samfelld vertíð allt
árið í Eyjum, en aðkomufólk
fæst ekki einu sinni á vetrar-
vertíð, því að atvinnuleysi er víð-
ast hvar horfið.
Erfitt er að fá upp gefnar ná
160 milljónir í útflutningi til við-
bótar því, sem áður var, en tómt
mál er að tala um söltun, þó að
söltunarhæf síld veiðist, einfald-
Iega vegna fólksleysis. Undanfar-
ið hefur ekki verið unnt að frysta
nema brot af þeirri síld, sem hægt
hefði verið að frysta, hefði mann-
skapur verið til staðar. Láta mun
nærri að frystingin tvöfaldi fram-
leiðsluverðmæti miðað við
bræðslu. Og þar að auki er hún
greidd með beinhörðum gjald-
eyri strax við afhendingu.
Tekjur almennings eru meiri
en víðast hvar annars staðar, m.
a. vegna mikillar vinnu og vegna
þess að húsmæður og börn geta
gripið til vinnu þegar þeim hent-
ar, og ákvæðisvinna kvenna hefur
í framkvæmd stóraukið tekjur
þeirra, sem hana vinna.
Ef fólkið, sem hingað kæmi,
færi frá tekjurýrum atvinnuvegi,
er augljóst, hvert hagsmunamál
þarna er í veði. Hvað heldur þii
svo að það sakaði, þótt nokkrir
bændakariar af afdalajörðum
hættu að hokra og kæmu hingað?
En þetta er nú útúrdúr, en ég vil,
að það komi skýrt fram, að það
sé þjóðhagslega hagkvæmt að hér
verði margir íbúar og fleiri en nú
eru, því að framleiðslutækin gætu
afkastað miklu meiru en þau gera
nú.”
Með þetta sjónarmið í huga er
míkils um vert, ekki aðeins fyrir
Eyjabúa, heldur fyrir þjóðina sem
Framhald á næstu síðu.
Dráttarbraut Vestmannaeyja h.f.
óskar öllum góðrar
skemmtunar á
þjóðhátíðinni
Dráttarbraut Vestmannaeyja h.f.
Sími 2130.
Bátarnir draga björg í bú
Útvegsbanki íslands
Vestmannaeyjum
☆ annast öll venjuleg bankaviðskipti innan-
lands og utan fyrir hina umfangsiníklu
framleiðslustarfsemi í Vestmannaeyjum.
☆ ábyrgð ríkissjóðs er á öllu innstæðufé
í bankanum.
Útvegsbankinn sendir heztu kveðjur
í tilefni þjóðhátíðar.
Útvegsbanki íslands
Vestmannaeyjum