Alþýðublaðið - 14.08.1965, Qupperneq 5
BINDINDISÆSKAN efnir til fjölbreytts
móts að Jaðri um helgina. Ef að vanda lætur mun
þar verða margt um manninn og unga fólkið
skemmta sér á heilbrigðan og ánægjulegan hátt,
í tilefni af þessu móti, áttunda Jaðarsmótinu,
sem samtök íslenzkra ungtemplalra efna til, og
ársþingi þeirra, sem hófst að Jaðri í gærkvöldi,
þykir Alþýðublaðinu rétt að kynna þessa merku
og athyglisverðu starfsemi nokkuð.
„ÞEGAR VORSÓLIN HEIÍ..."
ÞEGAR VORSÓLIN HEIT
Þannig hefst SUMARMÁL,
Böngur ungtemplara eftir hinn
kunna og vinsæla Tólfta Sept-
ember. Og síðan segir í ljóðinu:
innan bæjar ©g
Úr borginni
í borgina.
Borgarbllstöðin
Simi 22440.
Opið allan sólarhringinn
WREVFILL
Sími 22-4-22.
Talstöðvabílar um allan
bæ allan sólarhringinn.
Talstöðvabílar
um allan bæ
Bifreiðastöð
Steindórs
Sími 11580.
yljar íslenzkri sveit,
fer annríki’ í hönd.
Menn nema ný lönd. —
Þá er vetur úr bæ:
sumari fagnar hvert fræ
í frjórri jörð,
— af Guði gjörð. —
En, á fagnaðarstund,
æskan létt er í lund,
með lífsins gleðibrag.
— Hún dáir heilla-dag, —
og syngur við raust,
alveg áhyggjulaust,
sitt ljúfa lag”.
FÆREYJAFÖR
í sumar hefur verið tíðindasamt
á vettvangi reykvískra ungtempl-
ara. Efnt hefur verið til ferðalaga
til ýmissa staða. Um 30 ungtempl
arar úr ÍUT-félaginu Hrönn heim
sóttu færeyska ungtemplara og
áttu framúrskarandi ánægjulega
dvöl um Ólafsvökuna í Færeyj-
Þátttakendur í Færeyjaför ungtemplara.
um. Þá áttu íslenzkir ungtemplar-
ar fulltrúa á þingi og mótum bind
indisæskunnar í Noregi, Svíþjóð
og Þýzkalandi í sumar. Þá má geta
þátttöku ungtemplara í hinu vel-
heppnaða og fjölmenna móti bind
indismanna í Húsafellsskógi um
verzlunarmannaheligina, sem góð-
templarar efndu til. Á umdæmis-
stúkan sérstakar þakkir skild-
ar fyrir þetta mótshald sem og
fyrri mót að Húsafelli. Sýnir
reynslan af þessum mótum glöggt
að hægt er að efna til mjög fjöl-
menns og ánægjulegs fagnaðar á
fögrum stöðum og án nokkurrar
Iöggæzlu, ef skipulega er að unn-
ið og áfengi er ekki með í spiIiniK
UNG SAMTÖK
Samtökin íslenzkir ungtempiar-
ar eru ung að árum, því að sam-
bandið var stofnað árið 1958. Það
Framhald á 15. síðu.
NÝJA RANNSÓKNARÁÐIÐ
í FYRRADAG og í gær
hélt hið nýja Rannsókna-
ráð ríkisins fyrsta fund
sinn. Því var komið á fót
með lögum frá síðasta Al-
þingi. Er því ætlað að vera
Alþingi og ríkisstjórn til
ráðuneytis um rannsókna-
mál. í því eiga sæti bæði
vísindamenn, fulltrúar at-
vinnugreina og stjórnmála
menn. Segja má, að rann-
sóknaráðið sé skipað fjór
um hópum manna. Þar
eiga sæti sjö alþingis-
menn, kjörnir af Alþingi.
Þá eiga þar sæti fimm
fulltrúar atvinnugreina
eða stofnana, sem fjalla
um atvinnumál, þ. e. a. s.
Búnaðarfélagsins, Fiski-
félagsins', Iðnaðarmála-
stofnunarinnar, Efnahags-
stofnunarinnar og sameig-
inlegur fulltrúi Raforku-
ráðs og Raforkumála-
stjóra. Háskólinn á þrjá
fulltrúa í . rannsóknaráð-
inu og að síðustu eiga þar
sæti forstjórar fimm rann-
sóknastofnana, þ. e. rann-
sóknastofnana byggingar-
iðnaðarins, iðnaðarins,
landbúnaðarins, fiskiðnað-
arins og hafrannsókna-
stofnunarinnar, en mennta
málaráðherra er formaður
rannsóknaráðs. Ekki hef-
ur áður hér á landi verið
efnt til slíks samstarís vís-
indamanna, fulltrúa at-
vinnugreina og stjórn-
málamanna, en slíkt er
mjög farið að tíðkast ann-
ars staðar og þykir hafa
gefið góða raun. Annars
vegar hefur það leitt til
aukins skilnings stjórn-
málamanna á gildi rann-
sóknastarfanna og þörfum
atvinnuveganna fyrir rann
sóknir, og hins vegar til
aukinnar þekkingar vís-
indamannanna á viðhorf-
um stjórnmálamannanna
og þeim vandamálum, sem
þeir eiga við að etja.
Um víða veröld er nú
mjög vaxandi skilningur á
gildi rannsókna og mennt-
unar. Menn líta nú ekki
lengur á vísindi og mennt-
un sem menningaratriði
einungis. Hvarvetna hafa
menn gert sér ljóst, að
vísindi, tækni og menntun
hafa stórkostlega þýðingu
fyrir efnahagsþróun og
velmegun. Verulegan
hluta þeirra framfara, sem
átt hafa sér stað á undan-
förnum áratugum og þeirr
ar lífskjarabótar, sem í
kjölfar þeirra hefur siglt,-
má ýmist beint eða óbeint
rekja til árangurs af rann
sóknarstörfum, bættrar
tækni og aukinnar mennt-
unar. Allt hefur þetta
valdið því, að allar þjóðir
auka nú mjög hvers kon-
ar rannsóknarstörf og
bæta skólakerfi. Þótt það
kosti að sjálfsögðu aukið
fé, hefur reynslan þótt
sýna, að það fé beri marg-
faldan ávöxt.
Hér á landi kemur lang-
mestur hluti þess fjár,
GYlfl Þ. GfSlASON
sem varið er til rannsókn-
armála frá ríkisvaldinu.
Víðast hvar annars staðar
er þessu ekki þannig var-
ið. Af því fé, sem varið er
til tækni- og raunvisinda-
rannsókna í Noregi er t. d.
aðeins rúmlega 40% frá
ríkinu. Atvinnuvegirnir
sjálfir efna til rannsókna,
sem kosta rúmlega 40%
heildarrannsóknarfjárins,
en afgangur kostnaðarins,
15—20% er greiddur með
erlendum framlögum, tekj
um af íþróttagetraunum
o. fl. Hér á landi hafa
framlög til rannsókna-
mála verið aukin mjög
vei’ulega á undanförnum
árum. Árið 1962 námu
fjárveitingar á fjárlögum
til Atvinnudeildar Háskól
ans og Rannsóknaráðs rík-
isins 10.1 millj. kr., en á
fjárlögum þessa árs nema
þessar fjárveitingan 18.3
millj. kr. og hafa þær þvi
aukizt um 80%. Þessu fé
liefur tvímælalaust verið
vel varið og mikill hag-
nýtur árangur orðið af
rannsóknarstörfunum. Og
enn ér full ástæða til þess
og eflaust skynsamlegt að
auka þessar fjárveitingar.
í hinum nýju lögum um
rannsóknir í þágu atvinnu
veganna er og gert ráð
fyrir sérstakri tekjuöflun
til þess að axxka rannsókn-
ir í þágu iðnaðar og bygg-
ingariðnaðar. En sérstök
ástæða er til þess aff
vekja athygli á nauðsyn
þess, að atvinnuvegirnir
sjálfir, þ. e. a. s. stór fyrijv
tæki og fyrirtækjasamtök
í atvinnulífinu stórauki
rannsóknastarfsemi sín’a
frá því sem verið hefur
eða láti rannsóknastofnan
ir vinna að ákveðnum
rannsóknarverkefnum fyr-
ir sig. Til þess að slíkt ger
ist með skynsamlegum
hætti og beri góðan árang-
ur er rækilegt undix’bú*-
ingsstarf eflaust nauðsyn-
legt og ýmiskonar sam-
x-æming og samvinna óhjá
kvæmileg forsenda hag-
kvæmra vinnubragða og
árangursríkrar niðurstöðu.
En á þessu sviði hefuf
hið nýja Rannsóknaráff
ríkisins einmitt mikiff
vei'k að vinna. Það ætti a£>
skoða það sem eitt af verfc
efnum sínum að vekja at*
hygli atvinnuveganna og
helztu fyrirtækja og sam-
taka þeirra á gildi ranti
sóknastarfanna og laffa
þessa aðila til samstarfu
sín á milli og við sannsókn
arstofnanirnar um marg-
háttuð rannsóknarverk-
efni. Með því væri atvinm*
vegunum og þjóðarheild-
inni vel þjónað.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. ágúst 1965 5