Alþýðublaðið - 22.08.1965, Side 7
Efnahagslegt sjálfstæði
MEÐAL þeirra hug-
mynda, sem margir Norð
urlandamenn virðast hafa
um ísland, er sú, að efna
hagsleg afkoma okkar
byggist algerlega á banda-
rísku fé, sem við eigum
að fá í sambandi við varn
arliðið á Keflavíkurflug-
velli. Það hefur löngum
þótt ótrúlegt, að innan við
200 þús. sálir gætu hald-
ið uppi nútíma lýðveldi
með öllu tilheyrandi hér
úti á hjara veraldar. Þess
vegna eru margir móttæki
legir fyrir þessa skoðun
um amerískt 'fé.
Ekki er laust við, að
ýmsir íslendingar hafi
sjálfir rangar hugmyndir
um þessi mál, enda láta
önugir stjórnarandstæðing
ar ýmislegt fjúka, sem
dregur úr trú þjóðarinnar
á sjálfa sig í þessum efn-
um.
Sannleikurinn er sá, að
varnarliðið skiptir okkur
fjárhagslega litlu máli. —
Gjaldeyristekjur af liðinu
og verktökum þess námu
1963 samtals 276,4 millj.
króna, eða um 5% af öll-
um gjaldeyriskaupum
bankanna það ár. Um eitt
þúsund manns hafði at-
vinnu af liðinu beint eða
óbeint, og hefði það fólk
án efa getað fengið störf
við íslenzka atvinnuvegi
og þar aukið gjaldeyris-
öflun þjóðarinnar.
. Fyrr á árum var hlutur
Keflavíkurflugvallar í
gjaldeyrisöflun okkar
miklu meiri. Árið 1953
fengum við 18,5% gjald-
BENEDIKT GRÖNDAL
UM HELGINA
eyris frá varnarliðinu,
1954 var það 15,5% og
1955 17,9%. En síðan hef-
ur prósentan farið lækk-
andi, og mun hafa verið
um 5% mörg undanfarin
ár.
Segja má, að varnarliðið
hafi verið að búa um sig
og endurnýja flugvöllinn
1953-55, og því hafi fram-
kvæmdir þess þá verið svo
miklar. Hitt er einnig rétt,
að íslendingar áttuðu sig
þá þegar á, að ekki væri
æskilegt að verða háður
svo mikilli vinnu á flug-
vellinum eða svo miklum
gjaldeyristekjum af hon-
um. Hafa mál þessi runn-
ið í skaplegri farveg síð-
an, og þurfa fjárhagsmál
ekki að hafa nein áhrif á
afstöðu íslendinga til NA-
TO eða varnarliðsins.
Fjárhagslegt sjálfstæði
er ávallt viðkvæmt og erf
itt mál fyrir smáþjóð, og
er fyllsta ástæða til að sýna
árvekni á því sviði. Til eru
dæmi þess, að smáþjóð
ekki langt frá íslandi varð
gjaldþrota og gafst upp á
sjálfstæði, en gerðist hluti
af stærri þjóðarheild.
Enn sem komið er hafa
íslendingar getað forðast
allar hættur á þessu sviði,
enda þótt gjaldeyrisskort-
ur hafi verið mikill alla
tíð fram að Viðreisn og
því freistandi að leita eftir
góðum boðum. í þessum
efnum hefur Viðreisnin
náð hvað mestum árangri
og tryggt efnahagslegt
sjálfstæði þjóðarinnar.
SIÐAN júgóslavneskum verka-
mönnum var fengin í hendur
stjórn fyrirtækja 1950, tveimur ár-
um eftir að deila Júgóslava og Ko-
minform hófst, hafa þeir, sem
fylgzt hafa með þróun mála í
Júgóslavíu, vanizt því að verða
vitni að meiri eða minni tilraun-
um í efnahagsmálum og stjórn-
málum því sem næst annað hvert
ár. Til ársins 1963 miðuðu allar
þessar tilraunir í sömu átt. Til-
gangurinn var sá, að draga úr
miðskipan og valdi embættisstjórn
arinnar og veita þáttum markaðs-
efnahagsins meira og meira' svig-
rúm.
Þegar gengi dínarsins hafði
verið lækkað nokkrum sinnum, í
Júgóslavar læra
af kapitalistum
300, 400 og 600 dínara fyrir hvern |
dollara, hófst frjálslyndasta um-
bótaáætlunin 1961, og minnir hún
að ýmsu leyti á þær ráðstafanir,
sem nú hafa nýlega verið gerðar.
Þá bar einnig mest á enn einni
gengisfellingu, og var gengið lækk
að í 750 dínara pr. dollar. Gengis-
lækkunin átti að leiða til arðbær-
ari og þróttmeiri stjórnar á efna-
haginum með því að júgóslavnesk
fyrirtæki fengu aukna samkeppni
af hálfu erlendra fyrirtækja. En
á skömmum tíma var grafið und-
an hinni samræmdu gengisskrán-
ingu með flóknu kerfi innflutn-
ings og útflutningsgengis, sem
skiptist í mörg stig, og fól þetta
ýmsum vörum hækkaði um 20—
50% frá degi til dags. Þetta hafði
aftur það í för með sér, að fram-
færslukostnaður stórs hluta borg
arbúa hækkaði og lífsstaðall
þejxra lækkaði. En bændur gátn
verið ánægðir, því að tekjuF
þeirra hafa aukizt verulega vegna
þess að landbúnaðarafurðir hafa
hækkað í verði.
★ Kreddur kvaddar
En þessar umbætur sanna fyrir
hinni kommúnistísku Júgóslaviu,
að hagkerfi kommúnista ræður
ekki yfir neinni eigin verð-mæli-
stiku fyrir arðsemi atvinnurekst-
ursins og að það verður meir og
meir að laga sig að verðlagi á
hinum kapitalíska heimsmarkaði,
sem skoðanakerfi kommúnista
segir að sé afleiðing arðráns. Enix
kann svo að fara, að hinar þjóð
félagslegu og stjórnmálalegu af-
leiðingar leiði til þess, að júgó-
slavneskir kommúnistar, sem
flökta á milli skoðanakerfisins og
veruleikans, setji hömlur á þessa
þróun í átt til markaðsefnahags.
Þessi möguleiki er einkum senni-
legur vegna þess, að vesturveldin
virðast ófús á að veita þá aðstoð',
sem Júgóslavar reyna að fá í Was-
hington, London, París og Róm.
En þótt þessar síðustu stór-
umbætur renni út í sandinn þá
tákna þær samt, að svo stórt
ÚDÝRIR KARLMANNASKOR
Seljum næstu daga nokkurt
magni af karlmannaskóm
fyifir kr. 240. 310. 315. 398.
ennfremur karlmannas andala
fyrir kr. 220. 246. 275.
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100
SKÓKAUP
Kjörgatði Laugavegi 59
í sér óbeinar uppbætur og niður-
greiðslur í sumum iðngreinum.
Auk þess gerðust leiðtogar
landsins uggandi vegna þeirra á-
hrifa, sem umbætur þær, er þeir
höfðu boðað, virtust mundu hafa
í efnahagsmálum og þjóðfélags-
málum. Minnkandi hagvöxtur og
aukið atvinnuleysi kom illa heim
við hið títóistíska skoðanakerfi,
sem sætti árásum úr ýmsum átt-
um fyrir meint afglöp. Fyrir
tveimur árum var pendúllinn aft-
ur látinn sveiflast talsvert í átt
til miðskipunar.
1963 og 1964 var hagvöxturinn
aftur á móti mjög mikill, en á
sama tíma voru reistar nýjar verk-
smiðjui', svokallaðar „pólitískar
verksmiðjur”, sem gengu undir
því nafni, því að þær voru reistar
til að verða við kröfum íbúa
i ýmsra héraða en voru reknar með
stöðugum halla og aldrei taldar
þess megnugar að standa á eigin
fótum.
★ „Skurðaðgerð“
Því er ekki að furða, að nauð-
synlegt reyndist í ár að grípa til
„skurðaðgerða”, en þetta heiti
hefur Tito forseti gefið síðustu
umbótunum í efnahagsmálunum.
Þeir Júgóslavar hafa bersýnilega
á réttu að standa, sem því halda
fram, að ráðstafanir þær, sem nú
hafa verið gerðar, séu hinar rót-
tækustu, sem gripið hefur verið
til í efnahagspólitík Júgóslava á
síðastliðnum fimmtán árum.
Gengi dínarsins liefur enn ver-
ið lækkað, úr 750 pr. dollar í 1250
pr. dollar, eða hvorki meira né né
minna en um 66%. Þetta nýja
gengi verður ekki einungis lagt
til grundvallar allri verzlun við
útlönd, heldur verður og bindandi
verð-mælistika innanlands. Þetta
hafði strax þau áhrif, að verð á
Josil Broz Tito
skref hefur verið stígið frá kreddu
skoðunum hins kommúnistíska á-
ætlunarbúskapar, að ókleift ver£-
ur að snúa alveg við. Ef nýju um-
bæturnar reynast í raun og veru
árangursríkar eftir aðlögunartíma,
sem óhjákvæmilega verður erf-
iður — verða þær enn ein sönn-
un þess, að skoðanakerfi komip-
únista og veruleikinn fara eklíi
saman. Þetta liafa Júgóslavar áð-
ur sýnt fram á.
Harry Schleicher.
SLIPPFÉLAG-
IÐ FÆR LÓÐ
Slippfélagið í Reykjavík hef-
ur að undanförnu haft áhuga á
að byggja nýjan slipp inn í Vog
um, í hinu fyrirhugaða Iiafnar
svæði Reykjavíkur. Hvenær fram
kvæmdir við nýja slippinn geta
haíizt er enn ekki vitað, en á
fundi sínum sl. þriðjudag sam-
þykkti borgarráð Reykjavíkur að
gefa Slippfélaginu hf. kost á lóð
við Elliðavog, allt að 4500 ferm.
með ákveðnum skilmálum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. ágúst 1965 J