Alþýðublaðið - 05.09.1965, Page 15
Norræn sýgiing
Framhald á 15 síðu.
eru að því leyti lík og af finnsku
deildinni, að íslendingar sýna and
stæður milli raunsæisstefnu eldri
kynslóðar, sem Gunnlaugur Schev-
ing er fulltrúi fyrir og þekktur
er af fyrri sýningum í Osló og
hinni óhlutbundnu afstððu yngri
kynslóðar eins og við sjáum hana
birtast í verkum Eiríks Smith og
Guðmundu Andrésdóttur. Sá fyrr
nefndi með djörfum og hljóm-
miklum litsmíðum sínum, þar sem
svart er ráðandi afl, sú síðarnefnda
eð björtum kristalsmynduðum
formum. Yngsti þátttakandinn —
Steinþór Sigurðsson virðist við
fyrstu kynni vera nokkuð ruglings
legur í verkum sínum, sem bezt
sést á mynd hans, „Alheims ó-
skapnaður,” en litir hans bera
vott um gáfur, sem munu bera á-
vöxt við strangari vinnubrögð.
Jón Benediktsson og Jóhann
Eyfells kynna höggmyndalistina,
sá fyrrnefndi með dansandi kon-
um, sem unnar eru í alúm og
kopar, en sá síðarnefndi í óhlut-
bundnum myndum úr járni og al-
úmín.
Arbeider-Avisa, Þrándheimi:
Alb. Steen. t
Gunnlaugur Scheving er full-
trúi hinnar ungu hefðar í ís-
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina!
BlLASKOÐUN
Skúlagötu 34. Sixni 13-100
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásvegl 18. Síml 30949
lenzkri list. í nokkuð hörðum og I
köldum expressionistískum stíl, j
segir hann okkur fréttir af traustu j
fólki í harðbýlu landí. Dramatísk i
náttúra tslands er auðsæilega inn-
blástursefni þeim Eiríki Smith og
Steinþóri Sigurðssyni og móta
þeir áhrif sín í expressionistískar
og óhlutbundnar myndir. Smith
eru sérlegahugleiknar andstæður
Ijóss og myrkurs, dags og nætur,
hafs ög hauðurs í sínum stóru og
voldugu málverkum. Myndir hans
verka mjög sterkt í andstæðum
svarts og hvíts annars vegar og
hinnar fínlegu Ijóðrænu liins veg-
ar. Þær verka klárt og kröftugt,
þrátt fyrir það, að þær standa
hættulega nærri auðveldu skreyti.
Málverk Sigurðssonar eru í ætt
við eidfjalla náttúru íslands. — í
hinum líflega litaskála hans birt-
ast bæði hraun og hverir, en form
hans eru ekki nógu ákveðin. Guð-
mundu Adrésdóttur er sýnt um
að túlka hin ljóðrænu áhrif, sem
mynda uppistöðuna í björtum líf-
legum litljóðum hennar. Það er .
þó eitthvað þögult og óleyst yfir |
myndbyggingu hennar, það er erf-
itt að komast til botns í því línu-
neti, sem þekur smekklega sam-
setta litfleti.
Þörfin virðist einnig vera rík
hjá myndhöggvurunum að losa
sig undan klafa hefðbundins nat-
úralisma. En hvorki Jóhann Ey-
fells eða Jón Benediktsson virð-
ast hafa þann nauðsynlega bak-
hjarl til að leysa þann vanda. Það
er erfitt að skilja tilganginn með
hraunkökum Eyfells, sem verka
alltaf sundurlausar og tilviljunar-
kenndar til þess, að þær veiti veru
leg myndræn áhrif. Myndir Jóns
Benediktssonar vantar lifandi
myndrænt samhengi, sem jafnvel
óhlutbundnar höggmyndir verða
að hafa til þess að geta öðlast
listrænt líf. Hið óþægilega yfir-
borð myndanna eykur enn á veik-
leika þeirra, en myndir hans eru
bæði deigar og ónákvæmar.
Adresseavisen: Jan Zibrandt-
sen.
Undir eins og komið er inn í
íslenzku sýningardeildina, rekur
maður augun í höggmyndir Jó-
hanns Eyfells, sem gerðar eru úr
alúmín, járni og kopar. Þær eru
útfærðar á mjög smekklegan og
fínan máta, járnrauð efnisáferð er
ráðandi. Þessar sérstæðu forma-
myndir minna framar öllu á
storknað hraun. í s'ama sal gefur
og að líta óhlutbundnar myndir
ÓDÝRIR KARLMANNASKÓR
Seljum á morgun og næstu daga fjölmargar gerðir af
ódýrum KARLÍVIANNASKÓIVI
úr leðri með nylon, leður og gúmmísóla fyrir
kr. 240.00 - 310,00 - 315.00 og 398.00.
ENNFREMUR
KARLMANNASANDALA
fyrir kr. 220.00 og 246.00.
Skóbúb Austurbæjar
Laugavegi 100.
eftir Eirík Smith settar breiðum
litflötum, til orðnar auðsæilega
undir áhrifum frá franska málar-
anum Soulages. Guðmunda And-
résdóttir deilir myndum sínum
upp í netverk af beinum blýants-
strikum, horna línur, sem mynda
alls kyns flatamyndir. í gegnum
þetta net brýzt fram fíngerð lit-
hrynjandi næstum eins og um
teppi væri að ræða. Steinþór Sig-
urðsson vekur áhuga skoðanda
vegna litameðferðar og blæbrigða
ríkrar og lifandi myndbyggingar,
en honum er óhætt að skipa á
bekk með beztu málurum íslands.
Ennfremur gleðst maður yfir
hinni glitrandi dýpt í mynd Gunn-
laugs Schevings „Búðin.” Lista-
maðurinn leiðir okkur beint inn
í íslenzka náttúru og raunveru-
leik.
(Frétt frá Félagi íslenzkra
myndlistarmanna).
BIFREIÐAEtGENDUR
Tökum að okkur heilsprautur og blettingar.1
RÉTTING H.F. ■
Síðumúla 15 B. — Sími 35740.
———------
NAUÐUNGARUPPBOÐ
;■!
Nauðungaruppboð það á Nýbýlavegi 53 sem ,
auglýst var í 38., 39. og 40. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1965, fer fram á eigninni sjálfri eftilt
kröfu veðdeildar Landsbanka íslands mið- (
vikudaginn 8. september 1965 kl. 14.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
ÚTSALA-ÚTSALA-ÚTSALA-
Nýtt á úfsölunni
C
Drengjajakkar — drengjaföt — Unglingajakkar — unglingaföt . <
Stórkostleg verðlækkun
GEFJUN - IÐUNN
w KIRKJUSTRÆTI f
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 5. sept. 1906 ÍIS