Alþýðublaðið - 15.09.1965, Page 9

Alþýðublaðið - 15.09.1965, Page 9
 Égg|p iiiii^miiii . WMM mmm /■ £**:.%% 'íí' S! > $ Vf Þorsteinn Hjálmarsson, Hofsósi: — Það er allt of lítið um það, að menn, sem framarlega standa í verkalýðsmálunum, hittist og ræði málin, .og því er ég mjög á- nægður með þessa ráðstefnu, og tel ég hana vera spor í rétta átt. Á Iíofsósi er algert atvinnuleysi allan veturinn og fara þá flestir, sem heimangengt eiga, suður á vertíð. Við bindum alltaf okkar vonir við sjávarútveginn, og í fyrra var leyfð snurvoðaveiði og stunda hana fjórir bátar, en afl- inn hefur alveg brugðizt, svo að þrátt fyrir aukningu bátaflotans hefur atvinna verið minni í landi nú en í fyrra. Verið er að byggja hjá okkur málmiðnaðarverk- smiðju, sem við vónum fastlega, að bæti úr hinu árstíðabundna at- vinnuleysi, sem er okkar stóra vandamál. Kristján Þorgeirsson, Reykjavík: — Mér lízt mjög vel á þessa nýjung í starfi verkalýðsmála- nefndarinnar. Ráðstefnur, eins og þessi, sem hér var haldin í gær og dag, gera gagn á margan hátt, um leið og þær efla sambandið milli þeirra manna, sem að þess- um málum starfa. Nauðsynlegt væri að fleiri verkalýðsmálaráð- stefnur yrðu haldnar utan Reýkja- víkur á næstunni, því að persónu- ieg kynni manna í verkalýðsbar- áttunni eru grundvöllur undir meiri og betri flokk. Friðrik Sigurðsson, Sauðárkróki: —Við hér, í Verkamannafélag- inu Fram, eins og aðrir þeir, sem að þessum málum vinna, erum mjög ánægðir með, að þessi ráð- stefna skuli hafa verið haldin. — Þessi fyrsta tilraun hefur tekizt vel, þó að undirbúningurinn hefði mátt vera betri, og vonandi er, að þessu verði haldið áfram. Eg tel, að ríkisstjórnin vefði að taka at- vinnumálin raunhæfari tökum. en gert hefur yerið og auka fjöl- breytni í atvinnulífi og atvinnu- háttum. Eg ér bjartsýnn á fram- tíðina, jafnvel þótt ástandið sé ekki gott, en atvinnulífinu þarf að gefa meiri gaum en gert hef- ur verið. Jóhann Möller, Siglufirði: — Ég hef, eins og margir fleiri, bent á það, að ekki væri nóg sam- starf milli þeirra manna, sem að verkalýðsmálum vinna sunnan og norðanlands. Þessa ráðstefnu tel ég hafa sannað það og sýnt, að Alþýðuflokksmenn í verkalýðs- baráttunni þurfa að koma sem oft- ast saman og ræða sameiginleg á- hugamál, verkalýðsmálin. Höfuð- mál verkalýðshi-eyfingarinnar á Norðurlandi ætti að vera það, að stefna að fullri atvinnuuppbygg- ingu á skipulagðan hátt, til að úti- loka með öllu það atvinnuleysi, sem nú sækir heim ýmsa staði hér norðan lands. Jón Sigurðsson, form. verkalýðsmálanefndar: — Hún er vel heppnuð í alla staði, þessi fyrsta ráðstefna, og hér hefur verið ríkjandi mikill á- hugi og eining. Þátttakan var um- fram okkar björtustu vonir og ár- angur ráðstefnunnar á án efa eft- ir að koma betur fram síðar. —■ Verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokks- ins mun beita sér fyrir því, að slíkar ráðstefnur verði haldnar viðar, bæði til að ræða sameigin-, leg áhugamál og treysta samstarf- ið milli þeirra manna, sem vinna að verkalýðsmálum víðs vegar um land. — ór. ALÞÝÐUBLA9IÐ - 15. sept. 1965 9

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.