Alþýðublaðið - 18.09.1965, Qupperneq 11
Ritstjóri Orn
Unglingameisfaramót íslands i sundi:
Armann sigraði og
vann bikar til eignar
UNGLINGAMEISTARAMÓT ÍS-
LANDS í sundi var haldið í Sund-
laug Sauðárkróks sunnudaginn 12.
sept. ICeppendur voru nær 80 skráð
ir frá 12 íþróttafélögum og sam-
böndum. Mótið hófst með ávarpi
Guðjóns Ingimundarsonar, form.
UMSS og ræðu Erlings Pálssonar,
form. SSÍ. Að sundmótinu loknu
sátu keppendur og starfsmenn
kaffiboð hjá bæjarstjórn Sauðár-
króks í Bifröst.
Aðalúrslit urðu þau að Glímufé-
lagið Ármann vann mótið með 114
stigum og verðlaunabikar til fullr-
ar eignar. Næst að stigatölu urðu
Umf. Selfoss 79 stig, Sundf. Ægir
48 stig, íþróttabandalag Akraness
28 stig Ungmennasamb. Skaga-
fjarðar 27 stig, Sundfélag Hafnar-
fjarðar 1814 stig, Knattspyrnufél.
Vestri 1714 stig og önnur færri.
Ekki komust allir keppendur frá
Vestra til mótsins vegna þess að
veður var óhagstætt til flugs.
50 m. baksund stúlkna.
Matthildur Guðm. Á 38.2 sek.
Ingunn Guðmundsd. Self. 39.4 sek.
Ingibj. Harðard. UMSS 40.5 sek.
100 m. bringusund drengja:
Gestir:
Þór Magnússon, ÍBK, 1:20.6 m.
Birgir Guðjónss. UMSS, 1.21.3
Reynir Guðmundss. Á. 1:22.0 m.
Guðm. Grímss. Á 1:25.7 m.
Ólafur Einarsson Æ 1:25.7 m.
50 m. skriðs. stúlkna:
Hrafnh. Kristjónsd. Á, 31,1 sek.
ísl. teipnamet.
Ingunn Guðmundsd. Self. 33.0 sek.
Guðfinna Svavarsd. Á, 34.1 sek.
50 m. baksund sveina:
Jón Stefánsson SelL 40.3 sek.
Páll Björgvinsson, Æ. 43.9 sek.
Gunnar Guðmundss. Á. 45.1 sek.
50 m. bringusund telpna.
Kolbrún Leifsdóttir V 41.6 sek.
Þuríður Jónsdóttir, Self. 40.7 sek.
Sigrún Siggeirsd. Á 43.7 sek.
Gréta Strange SH 43.7 sek.
100 m. skriðsund drengja:
Kári Geirlaugsson IA 1:04.8 mín.
Þorsteinn Ingólfsson Á 1:06.5 mín.
Guðm. H. Jónsson Æ 1:07.2 min.
50 m. bringusund sveina:
Ólafur Einarsson Æ 40.0 sek.
Guðjón Guðmundss. ÍA 41.0 sek.
Gunnar Guðmundsson Á 41.2 sek.
Framhald á 14. síSu
XVIII. Olympíuleikarnir i Laugarásbió:
Oi-myndin er glæsileg
spennandi og fróðleg
KVIKMYNDIN ,,Olympíuleik-
arnir í Tokyo 1964” var sýnd
nokkrum gestum í Laugar.ásbíó
í gær. Kvikmyndin er mjög góð,
enda mikið til hennar kostað, á
sjötta hundrað kvikmyndatöku-
menn unnu að myndinni og þar
var valinn maður í hverju
rúmi.
Myndin hefst á upprifjun
fyrri Olympíuleika, síðan sést
flutningur Olympíueldsins frá
Grikklandi til Japan, en inn í
fléttað ýmsum atvikum, svo sem
koma þátttakenda til Tokyo o.
fl. Þá hefst setningarhátíð leik
anna, sem er altíeg sérstaklega
vel tekin, það má taka undir
það, sem einn gestanna sagði:
maður kemst bókstaflega i ol-
ympískt „stuð”. Að setningar-
athöfninni lokinni, en þar sést
m. a. íslenzki flokkurinn, koma
sýnishorn frá hirtum ýmsu
íþróttagreinum leikanna, sem
eru mjög margar. Lengstur er
kaflinn um frjálsar íþróttir og
scgja verður það að kvikmynda
tökumennirnir eru hreinustu
snillingar. Kvikmyndin er lær-
dómsrík fyrir íþróttamenn, sem
bókstaflega geta lært af henni,
og skemmtileg fyrir allan al-
menning, því að það er andlega
dauður maður, sem ekki hrífst
með. Auk kaflans um frjálsar
íþróttir, er þáttur fimleikanna
einstaklega skemmtilegur. —
Myndin verður sýnd í Laugarás
bíó nú á næstunni og það er ó-
hætt að livetja alla til að sjá
þessa stórkostlegu mynd.
Ragnar Jónsson Ieikur í dag.
FH og KR leika á
Hörbuvöllum í dag
í DAG kl. 15.00 fer fram á Hörðu-
völlum í Hafnarfirði handknatt-
leikskeppni, sem er sérstæð í sinni
röð. Þá leika saman lið FH., sem
varð íslandsmeistari úti og inni
1956 og lið KR. sem varð Reykja-
víkurmeistari 1964. Leikurinn fer
fram í tilefni þess að FH hefur nú
í 10 ár í röð sigrað á útimótinu og
vill handknattleiksnefnd FII
heiðra hina fyrstu íslandsmeistara
sína með þessum leik.
Handknattleikur er sú íþrótt,
sem hvað hæst hefur risið hér á
íslandi og erum við í dag fyllilega
sambærilegir við aðrar þjóðir. Það
var á árunum milli 1950 og 1960,
sem fyrst fór að bera á íslenzkum
handknattleik”, þá fóru félagslið
fyrst utan til keppni og þá koma
liingað erlend lið. Það íslenzkt lið
sem mesta athygli vakti á þess-
um ái’um, var lið Fimleikafélags
Hafnarfjarðar, sem árið 1956 verð-
ur fyrst íslandsmeistari innanhúss
og sama ár einnig meistari utan-
húss. Skal nú í örfáum orðum
reynt að greina frá sögu þessa liðs:
Árið 1954 verða ungir piltar úr
FH íslandsmeistarar í II. fl. Þessir
niltar höfðu haldið hópinn í nokk-
ur ór og æft vel saman undir hand-
leiðslu hins kunna handknattleiks
biálfara Hallsteins Hinrikssonar.
Árið 1955 lék meistaraflokkur FH
í II. deild, en ekki gátu FH-ingar
notað alla sína beztu menn þar
vegna þess að þeir voru of ungir og
varð þess vegna að skipta liðinu
í mfl. og 1. flokk, en þann flokk
sigruðu FH-ingar þetta ár. Síðan
kemur árið 1956 og upphefst þá
blómaskeið meistaraflokks FH. —
Þeir sigra í innanhússmótinu eftir
harða baráttu við KR, sem hlaut
jafn mörg stig, en FH hafði betri
markatölu. Á útimótinu var sigur-
inn ekki eins knappur og sjaldan
hefur FH átt í nokkrum erfiðleik-
um með það mót, en félagið hefur
borið sigur úr býtum í því móti
síðastliðin 10 skipti eða frá 1956.
Enn skeði merkur atburður i
sögu FH þetta ár, nefnilega fyrsta
utanför félagsins. Einn FH-ingur
Gísli II. Guðlaugsson var við nám
í Óðinsvéum og æfði þar með
danska liðinu Fram. Hann kom FH
í sambandi við þetta danska lið og
um sumarið fór mfl. FH utan og
lék sex leiki í Danmörku og sigr-
aði í þeim öilum. Við heimkomuna
tóku Hafnfirðingar vel á móti lið-
inu og var mikill mannfjöldi sam-
an kominn til að þakka fróbæra
frammistöðu, sem varð bæ og landi
til mikils sóma. Þetta sama lið'
vann svo það afrek að leika 60
leiki í röð án tapleiks, geri aðrir
betur.
Leikmenn þessa fi’æga liðs eru:
Markmenn: Kristófer Magnússon
og Hjalti Einarsson. Báðir þessir
markverðir hafa varið mark ís-
lenzka landsliðsins og tekið þátt i
heimsmeistarakeppnum, Kristófer
1958 og Hjalti 1961 og 1964. Kristó
Framhald á 10. síðu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. sept. 1965