Alþýðublaðið - 26.09.1965, Page 1
Sunnudagur 26. september 1965 — 45. árg. — 216. tbl. — VERÐ 5 KR,
EN6IR NÝIR NEMENDUR
IIANNLÆKNADEILDINA
l >000000000000000000000000 oooooooooooooooooooooooo
DOKTORSVÖRN í HÁSKÓLANUM
Rey kjavik — ÓTJ
IjÆKNADEILD Háskóla íslands
hefur tekið ákvörðun um að engir
nýir nemendur skuli teknir til
náms í tannlæknadeild í vetur, og
verður tuttugu stúdentum sem
sóttu um inngöngu öllum synjað.
Verkbann á
húsasmiði?
Meistarafélag húsasmiöa í
Reykjavík, hefur ákveðið að gang
ast fyrir atkvæðagreiðslu um að
setja verkbann á húsasmiði, vegna
verkfalls, sem hinir síðamefndu
hafa efnt til í Árbæjarhverfinu svo
hefnda. Fer latkvæðagreiðslan
fram á skrifstofu félagsins.
Þar sem tannlæknaskortur er mjög
mikill í landinu er hér um alvar-
legt mál að ræða. Læknarnir segja
að aðstaða deildarinnar sé svo
slæm að ógerlegt sé að bæta við
flciri nemendum, hún sé þegar of-
setin, og vantí tilfinnanlega aukið
húsrými og tækjakost.
í fyrravetur urðu opinberar um-
ræður um þetta mál á Alþingi, og
á fjárlögum voru veittar 1.3 millj-
ónir króna til deildarinnar. Þetta
fé fer til rekstrarins og bætir á
engan hátt úr húsnæðisleysi og
tækjaskorti. Ríkisstjórnin hefur
boðist til að annast rekstur deild-
arinnar með því að Háskólinn
kosti byggingu nýs húss og kaup
á tækjum. Á þessu eru þeir ann-
markar að Háskólinn hefur hvergi
nægilegt fjármagn til framkvæmd-
anna, og kemur varla til að hafa á
næstu árum. Alþýðublaðið leitaði
í gær frétta um þetta mál hjá
rektor Háskólans, en hann vildi
ekkert segja eins og sakir standa.
Séra Jakob Jónsson varði í
gær doktorsritgerð við Guð-
spekideild Háskóla íslands. Rit-
gerðin er skrifuð á ensku og
nefnist Houmor and irony in
the New Testament — og hefur
hún komið út hjá Menningar-
sjóði ekki alls fyrir löngu.
Andmælendur voru tveir,
skozkur prófessor og danskur
fræðimaður í biblíufræðum.
Doktorsefni hóf vörn sína
klukkan 14,00 og stóð hún enn
yfir þegar blaðið fór í prentun
síðdegis í gær. DoktorsvQrnin
fór fram á ensku. (Mynd: Al-
þýðublaðið).
HUSMÆÐUR OSKAST
TIL BLAÐBURÐAR
Þessa dagana eru tniklir erfiðleikar á að koma Alþýðublað-
inu til fastra áskrifcuda vegna fólkseklu við dreifingu.
Enn liefur ekki reynzt unnt að fá fólk tU að bera blaðið
í allmörg hverfi í borginni, og biður blaðið kaupendur afsök.
unar á dræífi, s?-m kann að verða af þessum sökum á því að
þeir fái biaðið sk.lvíslcga, Blaðdreifing hér á landi hefur að
mestu leyti byjrgzt á vinnu skólabarna, sem hverfa nú til náms,
en stálpaðir unglii gar stunda vel Iaunuð störf í atvinnulífinu
meira en áður var.
Á Norðurlöndum hafa margar húsmæður það að aukastarfi
að bera út blöð, og ef einhverjar reykvískar húsmæður vildu
taka að sér að bera út Alþýðublaðið, þá vinsamlega hafi þær
samband við afgreiðslu blaðsins hið allra fyrsta.
Blaðapakki er sendur heim árla morguns, og starfið er
fólgið í því að bera það til kaupenda við nærliggjandi götur.
Fyrir þetta gætu húsmæðm- fengið dálitla vasapeninga,
þær sem hug hefðu á.
John Lyng verður
utanríkisráðherra
BARDAGAR ÞRÁTT
FYRIR VOPNAHLSÍ:
OsZó, 25. september (NTB)
SÍÐAN norsku borgaraflokkarnir
'urðu ásáttir í gær um að Per Bor-
'ten verði forsætisráðherra stjórn-
arinnar, sem flokkarnir mynda
þegar þing kemur saman eftir hálf i
a?i mánuð, hefur mikið verið bolla I
lagt um skiptingu ráðherraemb-
ættanna. Almennt er talið, að Bent
Röiseland, leiðtogi Vinstri flokks-
ins, sem talinn var líklegasta for-
sætisráðherraefnið, verði leiðtogi
borgaraflokkanna á þingi. Annav
Framh. á 14 síðu.
Nýju Delhi og Ravvalpindi.
25. sept. (ntb-reut.-afp).
Formælandi indvérska land-
varnaráðuneytisins sagði í nótt,
að tiltölulega harðir bardagar
hefðu brotizt út með'i indverskum
og pakistönskum heifjsveittim á
Burki-svæðinu skammt frá La-
hore. Hann sagði, að stórskotaliðs
árás hefði verið gerð á indverska
lögreglustöð.
Barizt var Indlandsmegin við
Chogil-skurðinn, þar sem flokkur
pakistanskra hermanna reyndi
að þrengja sér balc við indversku
varnarlínuna, að því er indverski
formælandinn sagði.
Jafnframt sögðu pakistanskir
formælendur í Rawalpindi, — að
Indverjar hefðu hafið skothríð á
stöðvar Pakistana á Burkisvæð-
inu kl. 17,30 í gær að staðar-
tíma. Sagt var, að Pakistanar
liefðu skýrt eftirlitsnefnd SÞ frá
þessu broti á vopnahléssamningn-
um. Seinna var sagt, að indverski
herínn hefði brotið vopnahlés-
samninginn á mörgum stöðum og
að SÞ yrðu send harðorð mót-
mæli.
Eftirlitsmenn SÞ hófu í morg-
un að staðantíma eftirlit meðfram
vopnahléslínunni í Khemikaran-
héraðinu í hinum pakistanska
hluta Kasmírs. Pakistanar segja,
að Indverjar hafi mörgum sinnum
rofið vopnahléð á þessu svæði.
Vopnahléslínan er óljós á þessurtt
slóðum, en einhverjir hörðusti*
bardagar stríðsins voru ’iáðir ein-
mitt við bæinn Karan. Pakistanar
segja að 2.000 indverskir hermenn
hafi fallið í þessum barcögum, ea
það hefur ekki verið staðfest. ■(
Nú veiðist géð
sðltunarsild
Næstliðinn sólarhring fengu 48
skip samtals 45227 mál og tunnur
af síld fyrin Austurlandi. Meiri-
liluti skipanna var með prýðisgóð-
an afla, eða 1000 tunnur og þar
yfir, en aðrir fengu minna eins
og gengur.
Hér er um mjög góða söltunar-
síld að ræða og fer hún að lang-
mestu leyti til vinnslu á höfnum
eystra. Eitthvert magn verður þó
flutt til hafna fýrir vestan Langa
nes.
Síldin fékkst á sömu slóðum og
fyrr, eða í Norðfjarðar og Reyðar*
fjarðardýpi.
Sl. þrjá sólarhringa hefur heildi
araflinn á síldarmiðunum eystra
komizt upp í rúmlega 175,000 mál
og tunnur. Það verður að teljast
ákaflega góð og jöfn veiði. Fyrsta
sólarhringinn fengu 74 skip rúm
lega 95 þús. mál og tunnur, annan
sólarhringinn 48 skip, 31,800 mál
og tunnur og nú síðast eins og
fyrr en greint.. Meðalafli á 170 skip
þessa þrjá sólarhringa er þannig
ríflega 1000 mál og tunnur.