Alþýðublaðið - 29.09.1965, Side 4

Alþýðublaðið - 29.09.1965, Side 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (éb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull- trúi: Eiður Guðnason. — Símars 14900 - 14903 — Auglýslngasími: 14906. Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu- blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakiö. XJtgefancii: Alþýðuflokkurinn. Ógeðfelld árás GUÐMUNDUR í. GUÐMUNDSSON hefur eftir þriggja áratuga þátttöku í íslenzíkum stjórnmálum vikið af þeim vettvangi og verið skipaður ambassa- dor í Bretlandi. Guðmundur hazlaði sér völl á sviði utanríkismála, þar sem baráttan við kommúnista hefur jafnan verið hörðust. Reyndist hann þeim hættulegur andstæðingur. Af þessu (og ýmsu öðru) leiddi, að Þjóðviíiinn lagði Guðmund í einelti og hefur um langt árabil reynt að buga hann með einni svívirðilegustu rógs- og álygaherferð, sem hér hefur sézt. Kommúnistar hafa reynt að knésetja fleiri leiðtoga jafnaðar- manna á þennan ógeðfellda og óheiðarlega hátt, en fáir hafa mátt þola annað eins og Guðmundur í þeim efnum. Nú hverfur hann til annara starfa, og mætti ætla, að kommúnistar hefðu þá sómatilfinningu að láta íslenzkan ambassador í friði, en beina spjótum sínum gegn öðrum leiðtogum jafnaðarmanna, ef ó- hjákvæmilegt er að skjóta eiturörvum í stjórnmála baráttunni. Síðasta árásarefni Þjóðviljans á Guðmund eru kaup ríkisins á húsi hans í Hafnarfirði. Tíminn hefur aipplýst, að ríkið hafi samkvæmt lögum frá 1947 um embættisbústaði dómara keypt eða látið byggja em bættisbústaði fyrir álla héraðsdómara landsins, nema þrjá. Hafi iengum héraðsdómara, sem óskaði að selja ríkinu embættisbústað isinn, verið neitað. Þess vegna hafi sú ráðstöfun Hermanns Jónassonar að ákveða kaup á bústað Guðmundar, sem þá var bæjarfógeti í Hafnarfirði, iverið sjálfsögð og rétt. íslenzka ríkið kaupir og selur mörg hús á hverju ári. Kommúnistar hafa ekkert skrifað um önnur húsa kaup, en birta hverja greinina -annarri svívirði-legri um bæjarfógetahúsið í Hafnarfirði. Af þessu verður augljóst, að Þjóðviljanum kemur ekki til almennur áhugr á húsakaupum hins opinbera, heldur hefur blað ið eingöngu áhuga á að svívirða Guðmund í. Guð- mundsson. Verðui* ekki betur séð, en hér sé um að ræða persónulegt hefndarstríð af hálfu ritstjóra Þjóð viljans. íslendingar hljóta að fordæma árásir Þjóðvilj- ans á Guðmund í. Guðmundsson, eftir að hann hef- ur verið skipaður ambassador í London. Þurfa í-s- lenzkar stjórnmálaerjur -að elta menn út fyrir land- steina — eftir að þeir hafa látið af þátttöku í stjóm málum og tekið að sér ópólitísk trúnaðarstörf fyrir þjóðina? Enginn íslendingur hefur eins mikla þekkingu á utanríkismálum þjóðarinnar -og Guðmundur í. Guð- nnundsson -eftir rúmlega níu ára feril sem utanríkis- ■ráðherra. Þess ivegna er torfundinn sá maður, sem 'væri hæfari sendiherra -en hann. 4 29. sept. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar DANSKENNARASAMBAND ISLANDS Skólinn tekur til starfa mánudaginn 4. október. Kenndir eru allir samkvæmisdansar, þar á með- al þeir nýjustu, t.d. Jenka, Zorga (Siritaki) og Quando. Einnig eni -barnadansarnir kenndir í yngstu flokkunum. REYKJAVÍK: Innritun daglega frá 1—7 í síma 10118 og 20345. Kennt verður í nýjum glæsilegum húsakynnum skólans að Brautarholti 4. KÓPAVOGUR: Innritun daiglega frá 1—7 í síma 1-31-29. HAFNARFJÖRÐUR: Innritun daglega frá 1—7 í síma 1-31-29. KEVLAVÍK: Innritun daglega frá 3—7 í sí-ma 2097. Nemendur þjálfaðir til að taka heimsmerkið í dansi. Stærsta NÝLEGA LÝSTI eitt af dag- blöðtmum nýju íþróttahöllinni og sagði þá meðal annai-s af stolti að á henni væri stærsta hvolfþak, sem þekktist á nokkurri íþróttahöll í heimi. Ég hef aldrei skilið þessa byggingu. Hún stendur í lægð og maður sér aðeins ofan á kollinn á henni. Ég hafði haldið, að hús í þessum stíl ætti að standa á hæð, allmikilli hæð. Nú er að sjá þetta stórhýsi eins og ma'ður horfi nið ur á skjaldböku. EN ÞAÐ ER MIKILS VIRÐI að eiga stáersta hvolfþak í heimi Einhvernveginn finnst manni að þetta sé glymjandi tómahljóð. Það er eins og þarna hafi verið kom ið fyrir tómri tunnu. Myndarlegt skrifstofuhús reis þarna fyrst og var fullgert og það er táknrænt að það þurfi að byggja yfir skrif- stofufólkið, sem á að sjá um tóma hljóðið. EINS OG KUNNUGT ER stönd um við langt að baki þeim ungu mönnum sem gerðu garðinn fræg- an fyrir aldarfjórðungi. Engin ný afi’ek liafa átt sér stað í frjálsum íþróttum og ég efast um að knatt spyrna okkar hafi tekið nokkrum framförum á síðustu þrjátíu ár um. ÞAÐ EINA sem hægt er að vitna hvolfþak til, er handboltinn, en þar er í raun og veru um tiltölulega nýja íþrótt að ræða, að minsta kosti hér á landi. Að öðru leyti er ekki um neinar framfarir að ræða hjá íþi-óttafólki. Nema síður sé. Ég veit ekki hversu marga milljóna tugi „stærsta hvolfþak i heimi“ hefur kostað okkur. Það væri sök Sér að ráðast í slíka byggingu ef mikil afrek í íþi-óttum hefðu átt sér stað og hefði byggingin þá ver ið verðlaun handa afreksmönnum og konum. ÉG VEIT AÐ SAGT VERÐUR, að einmitt þessi skjaldbökuhöll eigi að verða til þess afi efla íþróttir og íþróttalíf, og við skulum vona, afi hún geri þaff. En sem stendur lief ég litla trú á því. Mórallinn í íþróttahreyfingunni er ekki góður enda ber hann svip af andlegum habítus þjó'fiarinnar í heild sem all ur markast af gróðaliyggju og lífs gæðagræðgi. Á slíkum tíma verða hvorki unnin andleg né líkamleg afrek. ÞETTA ERU EF TIL VILL hörð orð. En maður fær ekki oi’ða bund izt. Hégómaskapu-rinn, tildrið og sýndarmennskan tröllríður öllu og öllum, og jafn vel beztu menn tapa sjónum af þeim raunverulegu verð mætum, sem er það eina sem fram tíðin getur byggt á. / heimi! EF HÉR VÆRI öflug íþrótta- hreyfing, þá mundi ég ekkert segja. En ég hef enga trú á því, að þessi gx-íðarlega galtóma tunna í lægðinni fyrir neðan Suðurlands braut verði til þess að styrkja ein staklingana eða samtökin til af- reka. Hvað varð til þess að skapa afrek snillinganna fyrir tveimur til þremur áratugum? Þá áttu þeir fáa og lélega samkomustaði til fé lagsskapar og afreka, og unnu mik il afrek. Þetta tómahljóð ætlar að æra allt og alla. Hannes á horninu. Koparpípur of Fittings, Ofnkranar, Tengikranar, Slöngukranar, Rennilokar, Blöndunartæki. Burstafell byggingavöruverzlnm, Réttarholtsvegi 3. Síml 3 88 40.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.