Alþýðublaðið - 29.09.1965, Page 7
Bandamkar
hérsveitir
á land í Suffur-
Vietnam.
STRAUMHVÖRF
TNAM?
MEÐAN athygli toeimsin.s liefur
heinzt að styrjöld Indverja olg Pak
istana hafa breytingar átt sér stað
í Vietnam, bæði pólitískar en eink
um hernaðarlegar.
Bandarískir hermenn í Suður-
Vietnam eru nú 130.000 talsins.
Búizt er við, að talsverð fjölgun
verði í liði Bandaríkjamanna fyr-
ir áramót. Upp á síðkastið hafa
þeir snúið vörn upp í sókn. Nú
eru það þeir, sem taka frumkvæð
ið og leita skæruliðanna.
Og á undanförnum vikum hafa
þcir fellt mikinn fjölda skæruliða.
Bandariska Iandvarnaráðuneytið
hermir, að 695 bandarískir og suð
ur-yietnamiskir hermenn hafi fall
ið og 2080 særzt á fjögurra vikna
tímabili, sem lauk 4. september.
Á sama tíma féllu 3.440 hermenn
Vietcong o(g 555 særðust.
Loftárásir risastórra flugvéla
af gerðinni B52 á sveitir Vietcong
í Suður-Vietnam eru nú fastur
liður í stríðinu, enda þótt bæki-
istöðvar þessara flugvéla séu. í óra
fjarlægð. Sagt er, að loftárásirnar
séu farnar að hafa neikvæð áhrif
lá baráttuvilja skæruliðanna.
Sömu sögu er að segja um hinn
aukna hreyfanleika bandarísku
hersveitanna, sem stafar af því
að mikill fjöldi þyrla hefur bætzt
við.
Hersveitir Vietcong dveljast nú
sjaldan lengur en einn dag eða
svo á sama stað. Skæruliðar, sem
tteknir hafa verið höndum, segja
að félagar þeirra þjáist þvi oft af
svefnleysi og matvælaskorti og séu.
örmagna af þreytu.
* ÓBREYTT AÐSTOÐ
Á undanförnum vikum hefur
engin breyting orðið á aðstoð
þeirri, sem Rússar oig Kínverjar
hafa veitt Norður-Vietnam. Kín-
verjar vei'ta sem fyrr mjög litla
hernaðaraðstoð. Rússar hafa sent
állmikið magn matvæla og nokk
uð magn vopna og skotfæra. Gert
er ráð fyrir því, að Rússar vinni
að því að efla eldflaugarstöðvar
isínar þótt Bandaríkjamenn hafi
ekki ráðizt !á þessar stöðvar ný-
'lega, en á hinn bóginn liafa banda
rískar flugvélar heldur ekki verið
skotnar niður með þessum eld-
fiauigum.
Þótt Bandaríkjamenn kunni enn
að vera langt frá hernaðarlegum
Sigri getúr enginn vafi leikið á
því, að hernaðarástandið yfirleitt
er talsvert bjartara en fyrir að-
eins einum eða tveimur mánuð-
um. Og þar sem monsúnregntíman
um er nú lokið á óshólmasvæðinu
og að mestu lokið á miðhálendinu
verður hreyfanleiki bandarísku
hersveitanna ennþá meiri á þess
um slóðum og einnig munu þær
ihafa ennþi meiri not af flugvél
um sínum, enda ógnar ekkert yf
irburðum þeirra í lofti. Á Da Nang
svæðinu og í Norður-Vietnam eru
október og nóvember aftur á
móti mestu úrkomumánuðurnir
KY FLUGMARSKALKUR
— reynist hæfari en við var búist
að staðaldri.
Erfitt er að trúa því, ?ð leið-
togarnir í Hanoi hafi ekki gert
sér grein fyrir því nú, að þeir
Igeta ekki náð takmarkj sínu með
hernaðarlegum ráðum, nema því
aðeins að Kínverjar skerist í leiik
inn eða eitthvað óvænt gerist. Hins
vegar hefur ekkert bent til þess
enn sem komið er, að valdamenn
irnir í Hanoi reyni að koma þeim
boðum áleiðis til Washington, að
þeir séu reiðubúnir að setjast að
samningaborði.
Préttir þess efnis, að vera megi
að 325. norður-vietnamiska her-
fylkið hafi verið flutt burtu frá
Suður-Vietnam, hafa ekki verið
staðfestar í Washington. Sagt er,
að leyniþjónustan í Suður-Viet-
nam, hafi ekkert frétt af þessu
herfylki í nokkrar vikur. En em
bættismenn í Washimgton benda
á, að ekki sé hægt að líta á nei-
kvæðar upplýsingar sem þessar
sem sönnun um, að herfylkið hafi
hörfað norður á bóginn. Ekki alls
fyrir löngu nefndi Dean Rusk ut
anríkisráðherra brottflutning
þessa herfylkis sem dæmi um,
hvernig stjórnin í Hanoi gæti lát
ið í ljós vilja til að komast að
friðsamlegu samkomulagi.
* BETRA STJÓRN-
MÁLAÁSTAND
Á heimavígstöðvunum í Saigon
er ástandið betra en við hefði
mátt búast. En þetta samsvarar
nokkurn veginn þvi, er sagt. sé að
ástandið sé grátt en ekki svart.
Óstöðugleiki suður-vietnamiskra
stjórnmála, skortur sá á virðingu,
sem allar síðustu stjórnir lands-
ins hafa notið, og þau mistök
þeirra að taka ekki félaigsleg og
efnahagsleg vandamál þjóðarinn
ar föstum tökum — þetta er stöð
ugt vandamál og gefur stöðugt til
efni til svartsýni varðandi framtíð
landsins.
Stjórn Ky flugmarskálks er eng
in undantekning. En bandarískir
embættismenn, sem voru siður en
svo hrifnir þegar hann tók við
stjórnartaumunum, játa nú, að
hann hafi í raun og veru reynzt
talsvert seigari og hæfari forystu
maður en þeir gerðu ráð fyrir.
Þótt ástandið hafi vissulega
batnað á hernaðarsviðinu og að
nokkru leyti á stjórnmálasviðinu
á undanförnum vikum fer fjarri
að embættismenn í Wasbington
telji að baráttan taki skjótt enda.
Þeir vara jafnvel við of mikilli
bjartsýni vegna siðustu atburða.
Ýmislegt bendir til þess að jafn
framt því sem hernaðaraðstaðan
batni dragi úr áhuga manna í
Washington í samningaumleitun
um. Þetta er ef til vill eðlilegt.
Megintilgangurinn með þátttöku
Bandaríkjamanna í Vietnamstríð-
inu er að sannfæra Noi’ður-Viet-
nammenn og bandaimenn þeirra
um, að þeir geti ekki unnið hem-
aðarlegan silgur, eins og margoft
hefur verið lýst yfir, og um leið
að bæta hernaðaraðstöðu Suður-
Vietnammanna og veita þeim
betri samningsaðstöðu á ráð-
stefnu, sem kann að verða haldin
síðar meir.
* AUKINN STYRKUR
En því betur sem bandarískum
hersveitum verður ágengt í stríð
inu því betri verður samningsað-
staðan. Svo að ekki er að undra
þótt bandarísk yfirvöld vilji fá
meiri tíma til þess að liagnýta sér
hinn aukna hernaðarlega styrk-
leika í Suður-Vietnam svo að hæigt
verði að semja úr sterkri aðstöðu
þpgar þar að kemur.
Eftir ósigur Frakka við Dien,
Bien Phu 1954 sömdu vesturvekl
in greinilega úr veikri aðstöðu S
Genfarráðstefnunni siðar um ár-
ið.
Samkomulag það, sem náðist á
þeirri ráðstefnu, verður áreiðan
lega' grundvöllur sérhvers nýs
samkomulags. En þótt stjórnin i
Washington fallist á þetta vill
hún igera nokkrar breytingar cr
tryggi það, að ef þjóðin í Suður-
Vietnam kýs að koma á fót sjálf
stæðu ríki, sem laust verði við>
kommúnistísk áhrif og án nokk-
urra tengsla við Norður-Vietnam,
verði henni heimilt að gera slíkt.
í samningunum frá 1954 var gert
ráð fyrir kosningum í landinu
öllu er leiða mundi til sameining
ar Norður- og Suður-Vietnams.
TILKYNNING
frá Síldarverksmiðjum ríkisins um pantan-
ir og verð á síldarmjöli.
Verð á síldarmjöli hjá Síldarverksmiðjum ríkisins af
•framleiðslu sumarsins 1965 hefur verið ákveðið kr. 682,00
per 100 kg. frítt um borð á verksmiðjuhöfn eða afgreitt
á bíl.
Eins og áður hefur verið tilkynnt þarf að panta mjölið
hjá skrifstofu vorri á Siglufirði fyrir 30. þessa mánaðar
og hafi kaupendur leyst út pantanir sínar eigi síðar en
10. nóvember 1965.
Síldarverksmiðjur ríkisins.
Leikflokkurinn
BRINKMAN AMERICAN
THEATRE GROUP '
syngur og leikur ljóð'aflokkinn
, \
„Spoon river anthoiogy"
á Litla sviðinu í Lindarbæ lauigardaginn 2. október kl.
4 síðdegis og sunnudaginn 3. október kl. 8 siðdegis.
Aðgöngumiðar eru seldir í miðasölu Þjóðleikhússins.
Áskriftasími Alþýðublaðsins er 14900
ALÞÝÐUBIAÐIÐ - 29. sept. 1965 .y