Alþýðublaðið - 12.10.1965, Page 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnarfull-
trúl: EiSur Guönason. — Símaiv 14900- 14903 — Auglýsingasími: 14906.
AOsetur: Alþí'öuhúsiS við Hverfisgötu, Reykjavtk. — PrentsmiSja Alþýðu-
blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakiS.
Utgefandi: AIÞýSuflokkurinn.
ÍSLAND OG EFTA
AÐSTAÐA okkar ísle’ndinga, hvað varðar út-
lutning ýmissa sjávarafurða til Efta landanna hef
jr farið versnandi undanfarin ár. Er nú svo komið,
að 10% 'tollur er á íslenzkum freðfiski, sem fluttur
■sr til Bretlands, en Danir og Norðmenn þurfa hins
vegar ekki að greiða nema 3% toll af freðfiski, sem
3eir flytja þangað, og fellur sá tollur alveg niður
oftir um það bil eitt og hálft ár. Hvað síldarlýsi við-
kemur, þá er nú enginn tollur á síldarlýsi, sem flutt
er inn til Bretlands frá Efta löndunum, en við verðum
að greiða 10% toll af íslenzku síldarlýsi, sem flutt er
þangað.
Samtök útflytjenda sjávarafurða hafa bent á hve
hættulegt ástand þarna er áð skapast, og dr. Gylfi
Þ. Gíslason viðskiptamálaráðherra lét svo ummælt
í fyrri viku, að það hlyti að verða eitt helzta
viðfangsefni íslenzkra efnahags, og viðskipta-
mála á næstu mánuðum og misserum að
vega og meta kosti þess og gallla, að ísland
gerist aðili að Efta. Hefur það mál verið í gaum
gæfilegri athugun hjá stjórnvöldum nú um skeið en
nokkur tími mun þó vafalaust líða þar til hægt verð-
ur að taka ákvörðun.
Gylfi benti á í ræðu sinni, að aðild að Efta myndi
greiða fyrir útflutningi ýmissa íslenzkra afurða, þá
væntanlega fvrst og fremst sjávarafurða til Efta land
anna, en iviðskipti okkar yið þau hafa verið mjög
mikil á undanförnum árum. Aðild að Efta mundi
einnig geta skapað nýja útflutningsmöguleika fyrir
ýmsar iðnaðarvörur, sem framleiddar eru hér á landi.
En sú höfuðbreyting, sem aðild að Efta mundi
hafa í för með sér fyrir ísland iværi, að hér yrði að
afnema alla verndartolla. Afnám verndartolla mundi
hafa veruleg áhrif á fjárhagsafkomu ríkissjóðs og
einnig ber að hafa þá staðreynd í huga, að nokkur
hluti íslenzks iðnaðar nýtur tollverndar, sem ekki er
hægt að kippa burt í einu vetfangi
Á þessum vettvangi blasa mörg vandamál við,
sem leysa verður hvort sem ísland gerðist aðili að
Efta eður ei. Gylfi benti á í ræðu sinni, að þótt við
ekki tengjumst Efta á neinn hátt ler skipu-
lögð tollalækkun á næstu árum brýn nauð-
syn, bæði svo unnt verði að tryggja hagkvæm-
ari nýtingu vinnuafls og fjármuna, en nú á sér
stað og eins til að draga úr þenslunni innan lands
með því að stuðla á þennan hátt að verðlækkunum.
Slíkar tollalækkanir yrði auðvitað að framkvæma í
áföhgum og gefa iðnaðinum hér á landi hæfilegan
tíma til að laga sig að breyttum aðstæðum.
Ákvarðanir um tengsl íslands við Efta verða að
sjálfsögðu ekki teknar nerna að vandlega yfirveguðu
ráðýog með það eitt í huga hvað þjóðarheildinni er
fyrir beztu.
4 12. október 1965 - ALÞÝÐUBLAÐI9
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur
Félagsfundur
verður í Iðnó í kvöld kl. 8,30.
Fundarefni: „Aðalmál stjórnmá1 anna“.
Framsögumenn: Emil Jónsson, ut anríkisráðherra
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra
Eggert G. Þorst einsson, félagsmálaráðherra.
Fjölmennið stundvíslega.
Stjórnin.
Nýtt Chrysler-
umboð á íslandi
Reykjavík — EG
NÝTT fyrirtæki hefur tekið við
umboði Chrysler bifreiðaverk-
smiðjanna á íslandi. Néfnist hið
nýja fyrirtæki Chrysler-umboðið
Vökull og er til húsa að Hring-
braut 121. Fyrri umboðsmaður
Chrysler verksmiðjanna hér var
Ræsir hf.
Hið nýja fyrirtæki á von á.
fyrstu bifreiðasendingunni frá
Bandaríkjunum upp úr miðjum
þessum mánuði, en það mun auk
þess að annast sölu nýrra bifreiða,
einnig annast varahlutasölu og
viðhald bifreiða af gerðunum
Dodge, Chrysler og Plymouth, sem
allar eru framleiddar af Chrysler
verksmiðjunum í Bandaríkjunum.
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannar gæðin.
BRIDGESTONE
veltir aukið
öryggl í akstri.
BRID GESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Verzlun og viðgerSir.
Gúmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Síml 17-9-84.
Alþýðublaðið
óskar að ráða blaðburðarbörn í eftirtalin hverfi:
Teigagerði
Miðbæ
Laugaveg, neðri
H-verfisgötu, efri
Kleppsholt
Miklubraut.
Skjólin
Hverfisgötu, neðri
Tjarnargötu
Seltjarnarnes I.
Laufásvegur
Starfsstúlkur
óskast að ivistheimilinu Arnarholti.
Upplýsingar að Amarholti í síma um Brú-
arland.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Hefi flutt skrifstofu mína frá Hafnar-
stræti 15 að
Ármúla 6 Sími 3-88-75
GUNNAR R. MAGNÚSSON
löggiltur endurskoðandi.
Pappirsumbúöir
Umbúðapappír, hvítur 40 og 57 cm rúllur
Kraftpappír, 90 cm rúllur
Umbúðapappír, brúnn 57 cm
Smjörpappír 33x54 og 50x75 cm
Pappírspokar, allar stærðir
Cellophanepappír í örkum
Brauðapappír 50x75 cm.
Heildsölubirgðir:
Eggert Kristjánsson & Co hf.
SÍMI 1-1400.