Alþýðublaðið - 11.11.1965, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 11.11.1965, Blaðsíða 4
 GQ£SO® Bltstjórar: Gylft Gröndal (áb.) og Benedlkt Gröndal. — RltstjórnarfaH- trðl: EiSur GuBnason. — Slmart 14900 -14903 — Auglýsingasíml: 14908. ABaetur: AlþýSuhúsiS viS Hverfisgötu, Reykjavík. — PrentsmiBja AlþýBu- MaSslns. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 6.00 elntakið. YJtgefandl: AlþýSuflokkurlnn. 18 ÁRA KOSNINGAALDUR ÞINGMENN ALÞÝÐUFLOKKSINS hafa lagt fram á Alþingi tillögu um 18 ára kosningaaldur. Þar með vekja þeir máls á réttarbót, sem um þessar mundir er mikið rædd 'víða um heim, ekki sízt á Norð Urlöndum. Stórveldin tvö, Sovétríkin og Bandaríkin, hafa fyrir löngu riðið á vaðið og tekið upp 18 ára kosningaaldur, Rússar í stjórnarskrá sinni, Banda- rjkjamenn í lögum einstakra fylkja. Er því aðeins um að spyrja, hve lengi það dragist að fleiri þjóðir taki upp þessa skipan. | Hér á landi eru aðeins þrír áratugir, síðan 21 árs kosningarréttur var lögfestur við þingkosningar I raun og veru fær aðeins fjórði hluti þjóðarinnar kosningarétt 21 árs, þegar þingkosningar fara fram fjjórða hvert ár. Annar fjórðungur er orðinn 22 ára, þegar hann kýs, þriðji fjórðungurinn 23 ára og all- margir 24 ára. Enda þótt það sé almenn regla að binda kosninga- rétt við 21—24 ár, er engin ástæða til að ætla, að það sé skipun framtíðarinnar. Unga fólkið fær nú bráðari þroska en áður og rneiri menntun. Því er sýnt meira traust í margvíslegum ábyrgðarstörfum, óg er engin ástæða til að láta það bíða eftir kosninga- rétti eins lengi og tíðkazt hefur. Hitt er vænlegra að sýna fólki á aldrinum 18—21 ára það traust að veita því sama rétt til áhrifa á. stjórn landsins og hinum eldri. Mál þetta hefur enn sem komið er ekki verið mikið rætt hér á landi. Alþýðuflokkurinn endurskoð aði stefnuskrá sína nemma árs 1963, og samþýkkti þá að hefja baráttu fyrir kosningarétti æskufólks frá 18 ára aldri. í samræmi við þessa ákvörðun er mál- ið nú upp tekið á þingi. Einfalt mál er að flytja breytingatillögu við stjórn arskrána og setia 18 í staðinn fyrir 21 árs aldur. En Alþýðuflokkurinn telur eðlilegt, að meira verði um málið rætt, áður en flutt er tillaga um stjórnarskrár breytingu, og leggur því til skipun nefndar, sem um málið fjalli. Þar mundi hinum flokkunum gefast tóm til að íhuga málið og ræða í sínum herbúðum. Ekki má breyta íslenzku stjómarskránni án þess, að þing sé þegar rofið og efnt til kosninga. Ekki tel- úr Alþýðuflokkurinn ástæðu til >að svo mikið sé við- haft. Þegar samkomulag næst, eða sterkur meiri- hluti reynist vera fyrir 18 ára kosninpaaldri, má af- greiða málið á síðasta þingi fyrir reglulegar kosn- ingar. | Sjálfsagt er, að sitt sýnist hiverjum um þetta mál. Ýms rök má færa með 18 ára kosningarétti og móti. Alþýðuflokkurinn hefur beðið þjóðina að taka þetta jnál á dagskrá. en hann treystir því, að úrslit geti að eins orðið á einn veg. 4 11. nóv. 1965 - ALÞÝÐUBLA0IÐ Dönsk sófasett Norsk sófasett íslenzk sófasett AHORFANDI SKRIFAR „Fag ur draumur rætist. Herferð gegrn himgTi! Það er heróp okkar íslend- inga í dag. Það hlýtur að kalla já- kvætt til gervallrar íslenzku þjóð: arinnar. Það hlýtur að snerta sam vizku okkar allra, sem vitum að hundruð milljóna manna líða fyrir vanfóðrun. Við erum blátt áfram skyldug til að skera nú ekki við nögl okkar og mikið meira en upp | fylla áætlunina. Við þurfum aðj þre- eða fjórfalda hana í ár. Þáj þá þurfa æskulýðssamtökin að, halda starfinu áfram og finna út i nýtt prógram. Þörfin verður ekki; minni næstu árin heldur en hún er í dag. FYRIR NOKKRUM MISSER- UM átti ég tal við merkan íslenzk- an blaðamann og bar fram við hann þessa hugmynd, sem sé að blaðamenn, sem hafa með sér virðulegan félagsskap kæmu svip- uðu prógrammi af stað, sem væri ^ söfnun hjá þjóðinni allri, sem not-1 uð væri til hjálpar sveltandi með- j bræðrum, hvort sem þeir væru í austri, jSuðri eða vestri. Ég veit ekki hvað sá góði maður hefur gert úr minni hugmynd. En hvað um það. Stefnan er í fullum gangi. í DAG 6. nóv. fer fram allsherj-' ar söfnun, en henni má alls ekki ijúka þar með. Hún þarf að standa til áramóta. Við skulum spara í: óhóflegar jólagjafir í ár, en beina ■ spöruðu peningunum þess í stað til hjálpar þeim, sem bágt eiga og að gagni kemur. Og umfram allt meðan við getum miðlað og verið aflögufærir, þá má þráðurinn ekki slitná. Ný áform næstu árin með æskulýðssamtökin í fararbroddi. Okkur hinum eldri ber að rétta þeim örfandi hönd. ÉG FINN MIG knúðan til að færa þeim öllum og ekki síza þeim, er í fararbroddi standa, mínar beztu <-oooooooooooooooooooooooooooooo> * Aff fórna fyrir affra. ★ Gjöf göfgar gefanda. Gömlu lögin sungin og leikin. ir Þakkir frá gömlum manni. <> S ó >0000000000000000000000000000000 þakkir og bið þá einlæglega að láta ekki staðar numið. Ég er alveg hárviss, veit með öruggri vissu, að forsjónin launar okkur það aftur. Við fáum launin fyrr eða síðar. Ég hefi kynnzt gjafmildum mönnum, sem gefa til þeirra, er þurfa og til liknarstofn- ananna. Þeir sögðu mér að ávalt hafi forsjónin fært þeim á ein- hvern hátt til baka, það, sem úti var látið. Mín reynsla er sú sama og þessara góðhjörtuðu íslenzku borgara, sem nú eru flestir ekki lengur á foldu. EN ÞRÁTT FYRIR ÞAÐ verðum við ávalt að muna, að gjöfin sé okkur ávalt gleymd, þegar hún er af hendi látin, þá er hún gefin með réttu hugarfari. Spakmælið: æ sér gjöf til gjalda, má ek^í sannast á neinn hátt í þessu til- liti.“ S. P. Á. SKRIFAR: „Tek það fram að ég ætla ekki að fara að skamma útvarpið, þó ég beri fram litlar athugasemdir við það sem ég vona að það taki til greina, vegna meðfæddrar vináttu sinnar til hlust endá. ÉG ER ELDRÍ MAÐUR, og hefi því reynt að hlusta á þáttinn „Gömlu lögin sungin og leikin,' en ég hefi orðið fyrir vonbrigðum, því lögin hafa verið, að ég tel, ekki gömlu góðu lögin okkar, heldur lög eftir Jón Leifs og Sigfús Halldórs- son, og elzt eftir Sigfús Einarsson sem er ágætt tónskáld enda hægt kannski að segja, að mörg hans lög séu gömul. Sigfús Halldórsson er ágætur, en engin hans laga eru gömul þó falleg séu. Um stórmeist arann Jón Leifs vil ég ekkert mis- jafnt segja. Á FÖSTUDAGSKVÖLDH) 5. nóv. voru gömlu lögin sungin, og falleg gömul kvæði, og vísur fékk maður að heyra. Ég sat við hljóðnemann og hlustaði hugfanginn, kunni öll lögin og flest kvæðanna, og ósjálf- rátt fór ég að raula með þó ekki sé ég söngmaður, en tel mig söng- elskan, hefi af fáu meiri ánægju en góðum söng. Missti því miður af því að heyra hvað þetta elsku- lega fólk var kallað sem flutti þáttinn í útvarpinu, en færi því hjartans þökk mína fyrir góðan flutning á gömlu kvæðunum og lögunum, — veit að fleira gamalt fólk sem heyrði þennan þátt, mun hugsa þakklátt til þeirra, sem þarna stóðu að verki fyrir okkur gamalmennin. ÉG FER ÞESS Á LEIT við út- varpið að það breyti nafni á þætt- inum „Gömlu lögin sungin og leik- in“ .og kalii þáttinn bara „íslenzk lög sungin og leikin," en þátturinn sem lét til sín lieyra föstudags- kvöldið 5. nóv. gæti lieitið og bor- ið það nafn með sönnu. Gömlu lögin sungin og leikin, og komi hann fram sem oftast í útvarpinu. Að síðustu fyrirspurn til útvarps- ins. Eyðileggur það áhrif klass- ískrar hljómlistar, ef inn á milli þessara stóru verka, kæmi eitt og eitt létt lag, svo allir fengju eitt- hvað að heyra við sitt hæfi, þenn- an langa tíma, sem útvarpið eyðir í ‘tónlist fyrir fræðimenn á tón- listarsviðinu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.