Alþýðublaðið - 21.11.1965, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 21.11.1965, Blaðsíða 4
QJKíStlíP JUtstjörar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Rltstjórnarfull- trðl: Eiður Guðnason. — SímaK 14900 - 14903 — Auglýslngasíml: 14906. AOsetur: Alþýðuhúsið vlð Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðu- blaðslns. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið. tltgefandl: Alþýöuflokkurlnn. Séra Bjarni VIÐ LÁT séra Bjarna Jónssonar hverfur af sjón- arsviðinu einn þeirra íslendinga, sem mestan svip íhafa sett á þær Ikynslóðir, er bafa byggt landið um miðja þessa öld. Hann þjónaði dómkirkjunni í Reykjavík í meira en hálfa öld og varð bæði prófast- tur og vígslubiskup. Hann tók þátt í starfi f jölmargra félagssamtaka og stofnana, sem unnu í þágu trúar og mannúðar. Og hann hlaut mikinn stuðning sem forsetaefni hins unga lýðiveldis. Samt sem áður voru það ekki trúnaðarstörf eða veraldlegar vegsemdir, er skópu þann sess, sem séra Bjami skipaði í hugum þjóðarinnar. Hann kom við sögu á örlagastundum í lífi hinna fjölmörgu sóknar- !barna í Reykjavík. Þá var hann traustur sem bjarg og gaf fordæmi um jákvætt og skynsamlegt viðhorf til lífsbaráttunnar. Hann sýndi ekki aðeins mikinn persónuleika, heldur og mannvit og mannþekkingu, ; sem fáir gátu jafnazt við. Séra Bjarni var fæddur í Reykjavík og lézt þar. Hann varð ekki aðeins fyrsti heiðursborgari höfuð- staðarins, heldur alla tíð eftirlæti Reykvíkinga, hinn dæmigerði Reykvíkingur. Þar kom orðsnilld hans og kýmni mjög við sögu og gerði hann að þjóð | (sagnapersónu í lifanda lífi. íslendingar senda séra Bjarna síðustu kveðju með lotningu og þökk fyrir samfylgdina. Umferðamiðstöðin ÍSLAND er eitt af sárafáum löndum heims, sem hefur engar jámbrautir. Til þess skortir hreinlega mannfjölda. í þeirra stað hefur bifreiðin reynzt það farartæki á landi, sem bezt hentar þörfum þjóðar- innar. Hundrnð stórra og sterkra farþega- og vöru- flutningavagna þjóta daglega um þjóðvegi lands- horna á milli. Það hefur dregizt ótrúlega lengi að reisa viðeig- andi bækistöð fyrir þessar bifreiðar í Reykjavík, sem er að vonum mesta miðstöð þeirra. Slík stöð þarf aið hafa í einhverri mynd flesta þá þjónustu við ferða- menn, sem jámbrautastöðvar heimsins bjóða, auk , þess sem hún verður að vera þannig staðsett, að lang iferðabílamir valdi sem minnstri truflun í umferð 'borgarinnar. Nú hefur Umferðamiðstöð tekið til starfa sunn- an Hringbrautar. Hún hefur verið iengi í smíðum og ' þar af leiðandi kostað mikið fé. Hins vegar er hún í alla staði myndarleg iog fullkomin og mun færa 'bæði þeim, sem starfa við flutninga á bifreiðum, og ihlveg sérstáklega farþegunum, mikil þægindi. Þess j vegna er Umferðamiðstöðin hin mikilvægasta sam- igöngubót. 4 21. nóv. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þýzkir og hollenzkir kvenskór Ný sending STÓRGLÆSILEGT ÚRVAL. Skóval Austurstræti 18, Eymundssonarkjallara. Jólaskór FYRIR TELPUR OG DRENGI. Ný sending Skóbúö Austurbæjar Skókaup Laugavegi 100. Kjörgarði, Laugavegi 59 Ódýrir kuldaskór K A R L M A N N A, háir og lágir, 3 tegundir. Skóbúð Austurbæjar Skókaup Laugavegi 100. Kjörgarði, Laugavegi 59 □ Konur í Venezuela hafa komið fram með mótmæli gegn nýjum lögum, sem sett hafa verið. Lögin sýkna menn algjörlega, þó að þeir ráði niðurlögum kvenna sinna, ef þeir standa þær að fram- hjáhaldi. HÚSGÖGN Seljiun næstu daga á framleiðsluverði. Sófaborð á kr. 1200.— — Við viljum sömu réttindi, krefst talskona kvennanna, Rosa Brunstein. Lögin, sem setja mestu refsingu fyrir slíkt morð, þrjú ár, hafa verið samþykkt í öld- ungadeild þingsins, en eftir er að samþykkja þau í fulltrúadeild. Önnur kvenréttindakona sagði, að þetta væri hreint og beint lög- gilding á dauðarefsingu, þegar hún vissi, að lögin höfðu verlð samþykkt í þinginu. Og konurnar voru allar sammála um það, að lög þessi væri liindrun á réttind- um þeirra. Útvarps- og sjónvarpsborð á kr. 500.— Kommóður á kr. 2500.— Smíðastofan VALVIÐUR S.F. Dugguvogi 15 — Sími 30260. Auglýstngasíml ALÞÝÐUBLAÐSINS er 14906

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.