Alþýðublaðið - 26.11.1965, Side 4

Alþýðublaðið - 26.11.1965, Side 4
Rltstjórai: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull- trúl: Eiður Guönason. — Síman: 14900 • 14903 — Auglýslngasíml: 14906. ABsetur: Alþýöuhúsiö vlö Hverfisgötu, Reykjavlk. — Prentsmiöja Alþýðu- blaöslns. — Askriftargjald kr. BO.OO. — I lausasölu kr. 5.00 elntaklö. tltgefandl: Alþýðufiokkurinn. Rauða Klna og S.Þ. ÞJOÐVILJINN, málgagn íslenzkrg kommúnista, hefur löngum verið þekktastur fyrir að halda hér fram málstað Sovétríkjanna í staðfastri ofsatrúar- folindu í einu og öllu. Hefur þar einu gilt, hvort réttlæta hefur þurft þrælkunarbúðir Stálíns, sem <að dómi Þjóðviljans voru ekki til fyrr en valdhafar eyistra viðurkenndu tilveru þeirra, eða það, að sovézkum hersveitum var sigað á almenning í Ung- ■verjalandi og verkamenn í Austur-Berlín. f En eftir Kínaför Magnúsar Kjartanssonar Þjóð- viljaritstjóra hefur Þjóðviljinn nú einnig eignast iþðra húsbændur, en váldhafana í Moskvu, því nú er íhann einnig farinn að þjóna þeim, sem völdin hafa 'í Peking. Þjóðviljinn reynir í þessum efnum að vísu að sigla milli skers og báru, því mikill ágrein- ingur er í röðum kommúnista sjálfra um það hvor- jum húsbóndanum beri að þjóna. ; I gær birtir Þjóðviljinn forystugrein og tekur þar upp hanzkann fyrir Kínaveldi, og er ritstjór- inn þar líklega lað launa fyrir austurförina. í nefndri forystugrein Þjóðvfljans er það full- yrt, að það sé brot á stofnskrá Sameinuðu þjóðanna <að Rauða Kína skuli enn ekki hafa hlotið þar inn- igöngu og dylgjur eru látnar fylgja með um það, /áð afstöðu íslands til þessa máls ráði einhver ann- <arleg sjónarmið. ■ Fulltrúar íslands hjá Sameinuðu þjóðunum hafa undanfarið fylgt þeirri stefnu að sitja hjá við •atkvæðagreiðslur um aðild Rauða Kína að sam- tökum Sameinuðu þjóðanna. Tvo þriðju atkvæða þarf til að Rauða Kína öðlist aðild að samtökunum, ■* en hélmingur aðildarþjóðanna er aðild Kínverja mót snúinn. Sannlcikurinn í þessu máli er sá, að eins og er uppfyllir Rauða Kína alls ekki þau skilyrði, sem sáttmáli Sameinuðu þjóðanna gerir til aðildarríkj- ánna. Leikur leiðtoga Kínverja að ófriðareldinum |iú í sumar og haust og stríðsæsingarhróp þeirra og hegðan öll eru óræk sönnun þar um. Rauða Kína |iefur ekkert það gert sem gerir að verkum að |æra eigi Kínverjum á silfurbakka aðgöngumiða áð Sameinuðu þjóðunum. Áður en til slíks getur fcomið þarf greinilega að verða um mikla hugarfars- þreytingu að ræða hjá leiðtogum Kínverja. * Eins og nú háttar er því ekki margt, sem mælir eð aðild Rauða Kína að Sameinuðu þjóðunum, og kkert bendir til, að þótt svo aðild þess yrði sam- þykkt mundi það hafa í för með ísér neina stefnu- breytingu Kínverja í 'álþjóðamálum. I Fyrr eða síðar kemur sjálfsagt að því, áð Rauða Kína verður tekið í Sameinuðu þjóðirnar, en það verður samt vafálaust ekki fyrr en sýnt er að land ið verðskuldar að eiga þar sæti. 26. nóv. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐlÐ Alþýðufiokksfélag Reykjavíkur Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 29. þ. m. kl. 8,30 e.h. í Iðnó. Dagskrá: 1. Félagsmál. Formaður félagsins Erlendur Vilhjálmsson. 2. Kosning kjömefndár vegna st jórnarkjörs. 3. Umræður um skóla- og fræðslumál. Framsögumenn: Jón H. Guðmundsson, skólastjóri, Njörður P. Njarðvík, formaður lands- prófsnefndar og Stefán Júlíusson forstöðumaður Fræðslumynda- safns ríkisins. Umræðum stjórnar: Helgi Sæmundsson, formaður menntamálaráðs. Kaffiveitingar verða á fundinum. STJÓRNIN. ÍOOOÖOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO? X + Verðmerkingar í búðagluggum. ó ö ýr Léttir leit fólks að jólagjöfum. r 0 Góður siður og sjálfsagður. X Y + Gamli maðurinn og Tónlistardeildin. o <xx>ooooooooooooooooooooooooooooc> FREÍJA SKRIFAR: ;;Nú fara jólin að nálgast, að minnsta kosti eru jólaauglýsingar farnar að birt ast í blöðum og útvarpi. Við hús- mæðurnar þurfum að fara að hugsa um jólagjafir og við þurfum um leið að gæta þess að fá sem bezt ar jólagjafir fyrir sem rainnsta peninga, því að þó að sagt sé að margir hafi mikið handa á miili, þá er það alveg rangt að svo sé um allan fjöldann. EN TIL ÞESS AB GETA sætt beztum kaupum þurfum við að fara búð úr búð, Kaupmenn eru víst í harðri samkeppni. En geta þeir ekki gert okkur þann mikla greiða að heyja þessa samkeppni fyrir opnum tjöldum? Ég á við það, að þeir setji verð á vörur sínar sem þeir láta í glugga verzlana sinna. Þetta var gert almennt en smátt og smátt hefur aftur sótt í gamla formið, og nú er það viðburður Látið okkur stilla og herða upp nýju bifreiðina! BfLASKOÐUN Skúlag'tu 34. Sími 13-1.00. Látið okkur ryðverja og hljóðeinangra bifreiðina með TECTYL! RYÐVÖRN Grensásvegi 18. Síml 809*S SMURT BRAUÐ Snlttur Oplð frá kl. 0-23,30. Brauðstofan Vesturgötu 25. Síml 16012 ef maður sér verðmerkingar í búð argluggum. ANDVARI SKRIFAR: „Gamall maður liggur veikur í rúmi sinu og biður dauðans. Hann er einn allan daginn. Aðeins litið til hans á kvöldin. Hann hefur unnið mik ið um dagana og var lengi sæmi lega stæður. En nú hefur verð bólgan stolið af honum öllu, að he'ta má. Hann hefur varla til hnífs og skeiðar. Hið eina sem hann á eftir frá velgegnisárunum er útvarpstækið hans gamla, og svo hefur símatsekið enn ekki verið tekið af honum. HANN HEFUR ÞAÐ nærri höfðalagi sínu, og grípur til þess stöícu sinnum, þegar hann treystir sér til. — Hér um daginn hringdi hann í Tónlistardeild Ríkisút- varpsins og bað þess með mestu kurteisi að leikin væri fyrir hann tiltekin plata sungin af Sigurði heitnum Skagfeld. Veiki maðurinn og Sigurður voru nefnilega góðir vinir fyrir 45—50 árum. Og nú langaði hann til að heyra í þess um vini sínum áður en hann legði í hina síðustu ferð. En svar ið sem hann fékk var ákveðið „Nei“. Þetta er allt skipulagt fyr irfram og engu hægt að breyta. Kannski hægt eftir marga daga. EN ÞÁ VERÐA þeir í Tónlist ardeildinni búnir að gleyma þessu, eða þá að gamli maðurinn verður búinn að kveðja. Þarna sést berlega hvað stofnun þessi er orðin föst í sínum formum. Öll þessi of skipulagning gerir lífið að hálfgerðu fangelsi og fólkið að andlausum leikbrúðum. — f þessu tilfelli sem hér um ræð- ir, þurfti ekki annað en að ganga með umrædda plötu úr plötu? safninu og leggja hana á „fóninn" þar sem útsendingin fer fram. Það var nú allt og súmt." Verzlun okkar að Langholtsvegi 49 opnar aftur í dag, föstudag. ■ KJÖRBÖÐ - Nýlenduvörur — Brauð — Kjöt meti. Fisk- iuuaimuii,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.