Alþýðublaðið - 26.11.1965, Side 9
%
KAFEINDAHEILUM BEIIT
VID SMlDI FISKISKIPA
Húsbyggjendur
Orðsending frá Gluggaverksmiðjunni
Ramma s.f. Keflavík:
BÚIZT er við, að næstu tíu ár
muni notkun hvers kyns rafeinda
heila við smíði og rekstur fiski-
skipa fara hraðvaxandi. Var þetta
ein af niðurstöðum ráðstefnu um
smíði fiskibáta, sem nýlega var
haldin í Svíþjóð á vegum sænsku
ríkisstjórnarinnar og Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna.
Ráðstefnu þessa sóttu um 300
skipaverkfræðingar, vélstjórar og
aðrir tengdir útvegi og útgerð og
alls áttu 50 lönd þarna fulltrúa.
Á ráðstefnunni héldu tveir vís-
indamenn, annar sænskur, hinn
brezkur, fyrirlestra um notkun
rafeindaheila í sambandi við
smíði lítilla fiskiskipa. Jan-Olof
Traung og D. J. Doust, en svo
heita þessir visindamenn, hafa
lengi unnið saman að rannsóknum
á þessu sviði, og í fyrirlestrum
sínum lýstu þeir því hvernig þeir
höfðu beitt rafeindaheilum til að
teikna mjög fullkomna togbáta,
sem voru frá 40—85 fet á lengd.
Byggð voru líkön af þrem þess-
ara báta og voru þau prófuð í
tilraunageymum í Teddington í
En'glandi. Kom þar í ljós gildi
útreikninga rafeindaheilans, og
árangur þessara tilrauna varð ná-
kvæmlega sá, sem rafeindaheil-
inn hafði sagt fyrir um.
Notkun rafeindaheila á þessu
sviði hefur í för með sér mikinn
tímasparnað, auk þess sem talið
er, að ölj vinnubrögð verði vís-
indalegri, en með eldri aðferðum
í þessum efnum. Margir urðu til
þess að halda því fram á þessari
ráðstefnu, að notkun rafeinda-
heila á þessu sviði ætti mjög eftir
að koma þróunarlöndunum til
góða, því þar sé sjaldnast til nóg
fé til að eyða í módeismíði og um
fangsmiklar tilraunir.
Á lokafundi ráðstefnunnar kom
það fram, að stórt átak þarf að
gera til að gera nútíma fiskibáta
hagkvæmari í rekstri, og að taka
verður upp aukna sjálfvirkni, ef
fiskiðnaðurinn á að blómgast. —
Það kom ennfremur skýrt fram,
að skortur á vinnuafli er erfitt
vandamál í flestum þeim löndum
þar sem fiskiðnaður er mikill.
Beztu leiðirnar til að leysa
þennan vanda taldi ráðstefnan
vera að beita sér fyrir smíði hag-
kvæmari fiskiskipa, sem kæmust
af með minni áhöfn en nú er
tíðkanlegt, og svo aukna notkun
allskyns hjálpartækja er sparað
gætu mannskap og erfiði.
Kanadiskur sérfræðingur, W.
M. Reid frá Vancouver lýstj fyrir
þátttakendum tæki, sem nú er
mikið notað á vesturströnd Kan-
ada. en mun lítið þekkt annars
staðar.
Tæki það, sem hér um ræðir er
allstór „tromla”, sem notuð er til
að kasta trollinu og hífa á skut-
togun'm. Áður en þetta spil kom
til sömmnar varð að hífa trollið
í tveimur eða þremur áföngum,
til þess þurfti mikið dekkpláss og
öflugar bómur og spil.
..Tromlan” starfar líkt og al-
þekkt leikfang, sem kallað hefur
verið „jú-jú”, með henni verður
miög auðvelt bæði að kasta og
hífa. Hún hefur það einnig í för
með sér, að hún tekur tiltölulega
m.iög lítið pláss, og þarf því aft-
urdekkið ekki að vera eins langt
og áður, og gerir þetta m. a. það
að verkum, að litlir skuttogarar
geta nú tekið álíka- mikinn fisk
og mörg stærri skip.
Ýmsir létu þá skoðun í ljós á
ráðstefnunni, að þetta tæki mundi
geta lyft mjög undir fiskveiðar í
mörgum vanþróuðum löndum.
Japanskur fyrirlesari á ráð-
stefnunni sagði, að vinnuafls-
skorturinn væri mesta vandamál-
ið, sem japanskur fiskiðnaður
ætti við að etja um þessar mund-
ir. Hann sagði að framtíð fisk-
iðnaðarins í Japan væri algjör-
lega undir því komin, hvort með
aukinni tækni og bættum búnaði
mætti ráða bót á þessu mikla
vandamáli.
Þá voru ráðstefnumenn samr
máia um, að mjög mikilvægt væri
að bæta alla aðbúð sjómanna um
borð í fiskiskipum, því slíkt
mundi ekki aðeins hafa í för
með sér bætt skilyrði um borð
heldur einnig aukna hagkvæmni
á ýmsum sviðum.
Samkomulag var um það á ráð-
stefnunni að sennilega mundi
tré aldrei alveg hverfa úr sög-
unni við smíði fiskiskipa, en í
framtíðinni væri þó greinilegt, að
notkun alúmíníum og plasts
mundi fara mjög ört vaxandi. —
Búizt er við, að verð þessara
tveggja síðasttöldu- byggingar-
efna rnuni fara lækkandi á næstu
árum og fjöldaframleiðsla muni
gera notkun þeirra hagkvæmari
við skipasmíðar. Bæði hafa þessi
efni marga og augljósa kosti fram
yfir tré og stál, þau eru. talin
endast mun betur, og víðhalds-
kostnaður við þau er einnig tal-
inn minni.
Einnig var um að rætt á ráðstefn
unni að litlir hraðskreiðir bátar
með utanborðsmótor ættu að geta
komið að mjög miklu gagni við að
auka fiskveiðar í ýmsum þróun-
arlöndum.
Svissneskur skipaverkfræðing-
ur, Peter Gurner, ræddi á ráð-
stefnunni um kosti þess og galla
fyrir þróunarlöndin að kaupa mik-
ið af fiskiskipum erlendis frá.
Taldi hann þrjá höfuðókostina
við það vera þessa:
— Eyða þarf dýrmætum er-
lendum gjaldeyri til að kaupa bát-
ana, og gjaldeyrií- er oft af frem-
ur skornum skammti í þessum
iöndum.
— Innflutningur báta skapar
oft viðgerðarvandamál, sem lands
menn í þessum löndum ráða alls
ekki yið.
— Ef eingöngu er treyst á inn-
flutning báta er hætt Við að skipa
smíðar innanlands í þessum lönd-
um nái ekki að þróast sem æski-
legt væri.
Sérfræðingarnir, sem sátu -
þessa ráðstefnu, voru sammála
um að enn sé langt í frá að öll
fiskimið séu nýtt eða byrjað sé
að nýta öll þeirra. En skynsam-
leg nýting fiskimiðanna, sé ó-
hugsandi nema á hverjum stað
séu í notkun þeir bátar, sem hag-
kvæmast er að stunda veiðar á,
miðað við aðstæður allar.
oooooooooooooooo
| Bjarni |
| Loftsson |
f sjöfugur |
í dag er einn af borgurum Eyr
arbakka sjötugur. Og vil ég með
þessum línum senda honum kæra
afmæliskveðju og beztu óskir um
bjarta framtið.
Ekki veit ég mikið um fyrstu
spor hans í þessum heimi, en hann
mun vera fæddur upp við fjöll
in í Árnessýslu og þaðan kominn
á miðjum aldri niður á ströndina.
En þar hefur hann unað sér vel og
eignazt marga vini og starfsfélaga
sem treysta honum og meta hann
að verðleikum.
Bjarni er einn af þeim, sem
hylla fornar dyggðir og temja
sér þær í öllu dagfari, trúr í störf
um og orðum vandvirkur og prúð
ur í framgöngu og athöfn allri,
gestrisinn og góðviljaður.
Helzta sérkenni hans er þó sér
stök samúð með öllum, sem giga
bágt, eða hann telur á einhvern
hátt lítilmagna við veg sinn. Þar
Framhald á 15. síðn
Vegna frostanna getum við bætt víð okkur einni til
tveimur b'okkum, sem hægt yrði að aígreiða í des-
ember/janúar.
Leitið tilboffa.
GKuggaverksmiðjan Rammi s.f.
Hafnargötu 90 Keflavík — Sími 1601.
Heimasímar: 2240 — 2412.
Jólatrésskraut
Mikið úrval af jólatrésseríum- og skreyt-
ingarkeðjum
LJÓS & HITI Garðastræti 2.
(Vesturgötumegin) — Sími 15184.
Lampaúrval
Gjörið svo vel og lítið á lampaúrvalið hjá
okkur.
í
3
LJOS & HITI Garðastræti 2.
(Vesturgötumegin) — Sími 15184.
Samkvæmisspil fyrir
alla fjölskylduna
G spil í einum kassa.
DAM — DEUBY — HALMA — GÆSASPIL
LUDO — MYLLA
Fæst í öllum helztu leikfanga- og ritfangaverzlunum. '
Útsöluverð kr. 175.00,
Heildsölubirgffir:
KitgóKfshvoli hf.
Laugavegi 18A — Símar 14202 — 14280.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 26. nóv. 1965 &