Alþýðublaðið - 26.11.1965, Page 16

Alþýðublaðið - 26.11.1965, Page 16
Glæpur og refsin í sem talaði bara um íbúðir, í sportbíla, minkapelsa og mál | verk eftir Kjanal og svo J. leiðis. . . flaug urn höfuðborgina að Jóliann Löve lögregluþjón, þrítugur að aldri, væri kom \ inn fram og sæmilega mál i '■ hress og tiltölulega lítið kal inn eftir að hafa legið úti í alit að 15 stiga gaddi, ann að slagið, og stórhríð um langan tíma, gengrið um gólf i og barið sér til hita. . . Mogginn. ÞAÐ gengur á ýmsu fyrir okkur hér á baksíðunni og nú síðast var einn fáráður blaðamaður staðinn að þeim ósköpum að brjóta lögin og hefur pappír upp á það, og það sem verra er: refsivaldið hefur líka pappír upp á það. Og það ekki ómerkara yfirvald en bæjar- fógetaembætlið í Hafnarfirði, en eins og allir vita gerast öll tíðindi, góð og slæm, þar þessa dagana. Svo bar til að blaðamaður kom akandi Keflavikurveginn nýja, og slapp við að greiða vegatollinn, en það er auðvelt ef menn liafa vit á að fara ekki suður fyrir Straum. Lítil umferð var á vegin- um og enn minni þegar komið var á Hafnarfjarðarveginn á móts við Álftanes, en þar stóð einmitt hníf- urinn í kúnni, eins og síðar kom í Ijós. í Garðahréppnum birtist allt i einu rautt ljóshaf aftan við bilinn og sírena hvein svo skar innan hlustirnar. Auðvitað var strax ekið út fyrir veginn, því að þarna var náttúrlega Hafnarfjarð- arslökkviliðið á ferð í Garða- hreppinn, og lá á eins og venju- lega, þegar kviknar í hjá þeim hrepþi. En svo vel vildi ekki til i þetta sinn, því. þarna var hin sívakandi Hafnarfjarðarlögregla á ferð og lá mikið á. Þessi hávaða- sami lögreglubíll gaf stöðvunar- merki og stanzaði síðan fyrir fram an sökudólginn, á miðri brú. Út snöruðust þrír lögregluþjónar og nú fór sumum ekki að verða úm sel. Hvað gat nú verið á ferð- inni? Þrír lögregluþjónar úti á götu og bíll þeirra standandi á miðri brú blikkandi rauðu Ijósi, en hávaðaminni en áður. Verðir lag- anna gengu rólega en ákveðið að bílnum, einn fór aftur fyrir bílinn til að skrifa upp númerið og ann- ar fram fyrir til að skrifa upp númerið þar, en sá þriðji viidi hafa tal af bílstjóranum, sem beið milli vonar og ótta, og svolitið spenntur að vita, hvað hann hefði brotið af sér. Lögregluþjónninn reyndist liinn elskulegasti og við- kunnanlegasti maður, sem setti sig í stellingar og las upp ákær- una: Þér hafið gerzt brotlegur gegn umferðarákvæðum um stöðv- unarskyldu og samkvæmt reglu- gerð nr. 73, 6. júlí 1961 um sak- argiftir lögreglumaiina er yður heimilt að Ijúka framangreindu máli án dómsmeðferðar gegn greiðslu í ríkissjóð er nemi hundr- OOOOOOOOOOOOOOOOOO<OOOO<OOOOOOOOOO< Þingræður Alþingi vasast í öllu. oft þarf að breyta og laga, • inn Björn eða veiðibjöllu, berjast þeir marga dagra. Auðvitað allir flokkar, ótrauðir leysa hvern vanda, en vizka og orðræður okkar í öfugu hlutfalli standa. KANKVIS. OOOO oooooooooooooooooooooooooooo<. að og fimmtiu krónum. Ef þér fallizt á þessa málsmeðferð, ber yður að greiða sektina innan viku. Ef þér fallizt ekki á þessa máls- meðferð, sætir kæran venjulegri meðferð í sakadómi. Þá getur sektin hækkað og nafn yðar verð- ur sett á sakaskrá.” Þegar hér var komið lestrinum vöknuðu lögreglumenn upp við vondan draum, umferðin var að stöðvast á brúnni af eðlilegum á- stæðum, en þar sem orsökin blikkaffi rauðu ljósi voru ökumenn hógværir og biðu rólegir án þess að þeyta flautur sínar, sem þeir annars eru furðufljótir að leggjast á, ef þeim finnst einhver vera að tefja sig og þarf jafnvel ekki til. Tveir lögreglumannanna snöruðu sér upp í bílinn og óku góðan spöl frá brúnni, en sá sem var að skrifa númerið að aftan varð eftir þegar ákærður elti dómara sinn, því eftir var að undirrita dóminn, þefa út úr ökumanni og skoða báðar hlið- ar á ökuskírteini hans, sem báðar eru grænar. Þegar vingjarnlegi lögreglumaðurinn kom aftur, hélt hann á bláu korti í hendinni, og rétti þeim ákærða. Það var dóm- urinn. Þar var kveðið svo á að hinum brotlega væri gert að greiða sekt að upphæð kr. 150,00 í ríkissjóð fyrir að hafa gerzt brot legur gegn umferðarlagaákvæðum um stöðvunarskyldu (48. gr. sbr. 65. gr. umferðarlaga nr. 26, 1958). Umferðarbrotið átti sér stað kl. 2,20 á gatnamótum Reykjanes- brautar og Hafnarfjarðarvegar. Skýrslan er no. 29938, sem sýnir að umferðarlagabrjótshópurinn er orðinn allálitlegur og sennilega er þetta góður og öruggur tekjustofn fyrir ríkissjóð. Á skýrslunni eru merkt* 1 heil sex ákvæði um þettá og hiít og samvizkusamlega talið mcð hverju þeirra hvenær þau gengu í gildi og númer á greinum og reglugerðum. Þótí dómurinn væri kveðind upp í Garðahreppi er samvizku- samlega getið um að hann sé und- irrjtaður í Hafnarfirði, hvernig sem á því stendur, en dagsetning er hárrétt, 20.11.65. Jójó lögreglú- maður nr. 007 tekur hátíðlegt lof- orð af ökumanni um að passa sig betur'næst í lögsagnarumdæminu og múna nú vel eftir að greiða sektina innan viku svo ekki fari enn vferr, og er lögbrjótur enn að reyna: að slá einhvern um hundr- aðogfimmtíukallinn, sem ekki er auðveit þegar komið er fram yfii' 20. mánaðarins. En takizt það mun hann með ljúfu geði liressa ofur lítið gpp á hrelldan ríkissjóð. — Mér líkar vel, að þér skuluö liafa kjark til að segja meining yðar í fullri hreinskllni. Vður er hérmeð sagt upp. . . .

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.